Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1894, Blaðsíða 52
veríð smíðað. f>að á að yerða 200 álna langt, 29 álna breítt,
með þremur skrúfuvængjum og 21,000 hesta afli, bera 7400 tons,
fara 5 mílur á klukkustund og kosta með hernaðaráhöldum 10
mill. króna.
* *
Byssur, svo tugum þúsunda skiptir, með nýju lagi er
verið að búa til handa enska hernum. þær flytja kúlurnar 500
faðma og eru svo haglega gerðar, að hægt er að skjóta með
þeim 46 skot á mínútu hverri.
*
* * • *
Fallbyssur, óvanalega aflmiklar, vóru smíðaðar næstliðio
ár í hinni nafnfrægu verksmiðju Krupps í Essen á þýzkalandi,
og reyndar í margra manna viðurvist. Kúla, sem var 430 pd-
að þyngd, fór í gegnum stálsoðna járnplötu, 16 þumlunga þykka,
og 8 þumlunga þykkan eikarfleka, sem var á bak við plötuna.
það fer ekki að verða álitlegt fyrir hermennina að láta raða
sjer á hernaðar tímum fyrir framan opin á slíkum morðvjelum,
sem þessar fallbyssur og byssur eru.
„ *
* *
Fiskiveiðafjelag eitt í Lundúnum — kallað »Yernd-
unarfjelag flskiveiða« -- hefur nýlega látið prenta skýrslu um
fiskiveiðar við Bretland hið mikla og írland fyrir árið 1890.
Eptir henni hafa innlendir menn á Englandi flutt fisk á land
þetta ár fyrir 73 mill. króna, á Skotlandi fyrir 46 mill. og á Ir-
landi fyrir 20 mill. kr. það verða samtals 139 mill. króna, og
er þó eigi talinn silungur eða aðrir fiskar í ósöltu vatni, sem
ógrynni veiðist af, og eigi heldur er hjer tekið tillit til hvala-
veiða nje selveiða.
Til þessara fiskiveiða gengu 45,250 bátar og skip, stór og
smá, og 130 þúsundir manna; auk þess lifðu 120 þúsundir
manna á veiðum þessum.
*
, * f *
I Danmörku eru 70 höfnðból, sem greifar og barónar eiga,
1954 stórbýli, sem eru bænda eign og metin yfir 12 »hartkorn« *),
71,678 minni bændabýli að mati 1—12 »hartkorn«, og 150,260
smábýli eða hús með litlum jarðarbletti, sem metin eru minna
en eitt «hartkorn».
*
* *
Frá Danmörku var flutt til Englands:
1889 1890 1891
Nautpeningur eldri en */* árs . 77,942 53,937 20,600
— yngri en 'fa árs . 10,911 22,021 6,263
Sauðkindur................... 153,362 139,465 65,368
Svín........................19,719 14,020 ?
*) »Hartkorn« er að sínu leyti í Danmörk eins og jarðarhundr-
uð á íslandi, og er metið eptir jarðargæðnm, en ekki land-
stærð. Skattar eru lagðir á »hartkom« eins og jarðar-
hundmð á íslandi.
(46)