Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1894, Blaðsíða 54
Af spilahúsinu Monacó, svonefndu »spila helvíti*, sem getíð
er um í alman. þvfl. 1891, hefur hver hlutabrjefseigandi fengið
160 fránka ,í vöxtn næstliðið ár, og er það miklu meira en að
undanförnu síðan 1872. Árið áður var ágóðinn 155 og árið þar
áður 127 fránkar; aptur á móti hafa aldrei eins margir spilamenn
fyrirfarið sjer eins og þetta ár; það voru 87 alls karlar og
konur. Umsjónarmaður hússins hefur meðal annars þann starfa
á hendi, að koma þeim mönnum burt í tíma, sem óheppnir eru i
spilum, áður en þeir bana sjer sjálfir, en geri þeir það, verður
hann að sjá um að sem allra minst kvisist um það. Grafiv
þessara auðnuleysingja er á afviknum stað í kirkjugarðinum,
óhirtar og vaxnar illgresi.
Plest hlutabijef í spilabankanum eiga tveir prinsar, Roland
Bonaparta og Radziwill prins.
í janúar mán. 1892 rjeðu 14 menn sjer bana við bankann,
komuþeir þangað skömmu áður ríkir, en höfðu misst aleigu sína.
í Apríl mán. komu þangað nýgipt hjón auðug, að fám dögum
liðnum voru þau orðin örsnauð og skutu sig bæði.
*
$ $
Næstliðinn vetur kom bók út þess efnis, að skript eður
handarlag hvers einstaks manns, einkenndi eðlisfar hans. Um
þetta var skrifað margt í dagblöðum fram og aptur, bæði með
og mót. — En hvort nokkuð er satt í þessu eður eigi, þá het'
jeg ætíð haft gaman af að bera saman skript ýmsra manna, og,
hefur mjer fundizt að nokkuð megi af því læra.
í von um að fleiri en jeg hafi gaman af slíku, þá hef jeg
áformað, að næsta ár komi í almanak þjóðvinafl. eiginhandar nöfn
Gladstons, Bismarcks og fieíri heimsfrægra manna. í þetta sinn
birtast eiginhandarnöfn þriggja ríkja stjórnenda og nokkurra skild-
manna þeirra.
í fyrra sumar bauð ÓskarSvía konungur, Kristjáni konungi
IX., Alexander keisara Rússlands, og nokkrum ættingjum þeirra,
til dýraveiða á eyjunni Hveen.
Meðan þeir vóru að hvíla sig frá veiðunum, fóru þeir að
skoða kirkju, sem er á eyjunni; meðal annars gjörðu þeir það sjer
til gamans að skrifa nöfn sín innan á spjaldið á gamalli biblíu,
sem þar var. Ljósmynd hefur síðan verið tekin af spjaldinu, og
er það hún sem hjer stendur.
Af þvi ekki er auðvelt fyrir þá, sem óvanir eru, að fesa sum
nöfnin, eru þau sett hjer í rjettri röð:
Efst er Alexander keisari Rússlands, næst honum er Krislján
IX. konungur í Danmerkur ríki, þá Georg konungur Grikkja, þá
Constantin erfðaprins í Rússlandi, þá FriSrik erfðaprins í Dan-
mörku, þá Georg prins af Wales — barnabarn Kristjáns konungs
IX. og Yiktoríu Englands drottningar —, þá koma prinsarnar í
Grikklandi Georg og Nikulás, og svo seinast prinsarnir Wilhelm
og Hans af Glúcksborg, bræður Kristjáns konungs IX.
Utan við þessi nöfn stendur til hliðar nafn Óskars Svía
konungs.
(48)
T. G.