Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1899, Page 74

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1899, Page 74
r gjaldið er svo hátt, að útgerðin ekki svarar kostnaði, eða að skipseignin komist að eins á fáar hendur, sem þá geta með samtökum farið sínu fram; komi aflaleysi og lágt fiskiverð 2—S ár í röð, þá missa hinir efuaminni skipa- eigendur skip sín upp í skuldir, eða verða að láta þau liggja aðgjörðalaus, þegar þeir hafa ekki ráð á að leggja þeim það til, sem árlega þarf til útbúnaðar. 2. Sem þó er meira vert er það, að landbúnaðinum er inikil liætta búin af sjávarútveginum meðan kaupið ersvona hátt. Meðan svo' stendur, að þeir sem sjóinn stunda, geta fengið tvöfalt hærra kaup um mánuðinn, eu þeir, sem við landvinnu eru, þá er eðlilegt, að menn streymi til sjávar- ins. og láti landbúnaðinn eiga sig, sem minna gefur af sér. Það hefir aldrei verið tilgangur minn, að hvetja til þil- skipakaupa og styðja þau, til þess þar með að draga vinnu- afl frá landbúnaðinum, honum til skaða, heldur hef ég vilj- að styðja að þvi, að þeir sem þurfa að hafa sjávarútveg- inn fyrir aðalatvinnuveg, fái betri fleytur en opnu bátarn- ir eru, svo lífi þeirra sé minni liætta húin, og þeir síður séu bundnir við þann fjörð eða flóa, sem þeir búa við, ef fisk- nrinn kemur eigi þangað meðan veiðitíminn er. Nú er talað um bjargarskort um hásumar i þeim sveitum sumum hér við sunnanverðan Faxaflóa, sem ekki hafa ann- að að bjarga sér á en opna báta. En i Reykjavik og ná- grenninu er ógrynni af fiski, sem þilskipin hafa því nær eingöngu sótt austur íyrir Reykjanes og norður fyrir vest- fjörðum alt á Húnaflóa. Þetta sýnir hve miklir bjargvætt- ir þilskipin eru fyrir þá, sem fiskiveiðar stunda, en þvi liörmulegra er það, ef þessir ágætu hlutir — þilskipin — verða til þess að stórskemma landbúnaðinn fyrir heimskulega liá- ar kröfur skipstjóra og háseta, og gunguskap og samtaka- leysi skipseigenda. »Hvaða kaup hafa stéttarbræður minir á líku reki að meðaltali i útlöndum, og hve hátt kaup hafa jafnokar minir við landvinnu hér á landi? Þetta vil ég hafa og ríflega það meðan ég er á sjónum«. Svona ættu sjómenn að hugsa, og a þennan mælikvarða ættu þeir að mæla kröfur sinar, hann er sanngjarn fyrir báða málsparta; væri mælt á hann, þa mundi hvorki sjávarútveginum ué landbúnaði hætta búin. (66)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.