Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Page 26

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Page 26
ÚR TILSKIPUN 3. FEBRÚAR 183Ö; VII. atr, um almanök; 1. gr. Brjóti nokkur það einkaleyfi, séni Kaup- mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út almanök, annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend almanök, eða með því að láta prenta nokkurt almanak án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20 til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í Danmörku (op. br. 5. Ag. 1831); þau almanök eru og upptæk, sem finnast hjá þeim hinum seka, og gjaldi þar á ofan Yi rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Plelming sekta- fjárins og almanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá, sem háskólinn hefir selt prentleyfi til almanakanna, en annar helmingur gengur tii stjörnuturnsins í Kaup- mannahöfn. 2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var talið. 3. gr. Oll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er skert, skal fara með sem opinber lögreglumál. Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta. Almanak þettá kostar óinnfest io aura, en innfest 11 aura, alstaðar á Islandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka- verzlan í Kaupmannahöfn, sem heíir sölu-umboóið, er skykl til að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem kaupa 50 eða þaðan af fleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt að skila aptur óseldum almanökum, ef það er gjört innan árs- loka 1905; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem ósködduð eru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sein óinnfest; skyldir eru þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verður.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.