Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 37
en eingöngu að siðgóðum og sjálfstæðum verum. I ritum
þessum kemur sá eiginleiki bersýnilegast í ljós, er má
sin mest hjá Höffding ; það er mannúðarþel hans, og gætir
þess jafnt í öllum ritum hans og athöfnum.
Höffding hefur fengizt mjögvið heimspekisögu ; hefur
hún allt af verið annar þátturinn í allri ritsmíð hans.
Hann hefur auðvitað ritað helzt um heimspekinga þá, er
mest hafa á hann fengið sjálfan einhverntíma á lífsleið-
inni, og má til þess telja af stærri ritum — en hann hef-
ur auk þess ritað fjölda smárita bæði um það og annað —
lýsing af Sören Kierkegaard, Spinoza, Kant og Rousseau.
Agæta grein hefur hann og ritað um Sókrates gamla og
var henni einu sinni snjið á íslenzku i Iðunni. En eptir
1890 rjeðst Höffding í mesta stórvirkið og tók að semja
sögu hinnar nýrri heimspeki; kom hún út í '2 bindum
1894—95 og er nú um alla Evrópu talin með beztu heim-
spekisögum. (Den nyere Filosofis Historie, Kbh. 1894—95).
Saga þessi er vel rituð og af stakri þekkingu. Hefst hún
með viðreisninni (renaissancen) á Italíu, þá er aptur fór að
elda fyrir visindum og frjólsri hugsun eptir myrkur páp-
iskunnar og fávizku miðaldanna, og farið var að komast
að raun um verðmæti mannanna sjálfra, mannlegra lista
og vísinda, er menn fóru að húa sjer til nýja heimsskoð-
un (Kopernikus og Galilei) og berjast fyrir henni út á
við (Bruno og Baco). Þræðir hún því næst hin miklu
heimspekikerfi þeirra Cartesiusar, Spinoza og Leibnitz, snýr
sjer svo að raunspekinni ensku (Locke, Hume) og að
fræðslustefnunni frönsku og þýzku (Voltaire, Rousseau,
Lessing). þá hefst tímabil hinnar nýjustu hcimspeki með
Kant, er leggur alla áherzluna á raunvísindin, en af henni
reis hugsvifastefnan þýzka (Fichte, Schelling, Hegel, Schop-
enhauer), sem kafnaði þó að lokum í náttúruvísindunum
og holdhyggjunni (materialisme) þýzku um miðja 19. öldina.
Var holdhyggjan aptur kveðin niður, en raunvísindin fengu
vöxt og viðgang, en síðan tók við af þeirn framþróunarkenn-
ing ensku spekinganna, Spencers og Darvins, Sagan nær
lítið lengra, en nú er höfundurinn að búa út 3. bindi henn-