Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 88
(Heimili, dagsetning og nöfn ábyrgðarmanna).
Hér neðan á sé svo ritað notarialvottorð lögreglu-
•stjóra eða vottorð það frá hreppstjóra og 2 öðrum mönn-
um, sein áður er nefnt.
Sé það eigi með berum orðum tekið fram i sjálfskuld-
arábyrgðarskjalinu, að ábyrgðin gildi þangað til lánið er
að fullu endurborgað þarf nýtt ábyrgðarbréf eða yfirlýs-
ingu frá sjálfskuldarábyrgðarmönnum, ef lántakandi ætlar
sér að fá lánið framlengt að öllu eða einhverju leyti, þeg-
ar það fcllur i gjalddaga. Slikt endurnýjunarábyrgðarskjal
getur hljóðað á þessa leið:
„Yið undirskrifaðir (nöfn og heimili ábyrgðarmanna)
lýsum því hér með yfir, að við með þessu skjali
endurnýjum sjálfskuldar-ábyrgð þá, er við (dagsetn-
ing á hinu fyrra ábyrgðarskjali) höfum tekist á hend-
ur fyrir (nafn og heimili lántakanda) fyrir — — —
króna bankaláni, og gilda gagnvart okkur allar hin-
ar sömu skuldbindingar og við áður höfum undir-
gengizt að þvi er lán þetta snertir“.
(Heimili, dagsetning og nöfn ábyrgðarmanna).
Neðan á skjalið þarf svo að útvega votlorð hlutað-
eigandi lögreglustjóra eða hreppstjóra á sama hátt ogáður
er tekið fram um aðal-ábyrgðarskjalið.
Handveðslán eru það, þegar landsbankinn sjálfur
geymir veðið, t. d. arðberandi verðbréf, lífsábyrgðarskír-
teini eða bluti úr gulli og silfri, sem litið rúm þurfa. Um
timalengd lánsins fer eftir samningum.
Skilyrði fyrir því, að sveita- og bæjafélög geti fengið
lán i bankanum eru þessi: a. Leyfi blutaðeigandi yfirboð-
ara til lántökunnar, sem er sýslunefnd og amtsráð eða
ráðherrann, b. fjárhagsreikningur hlutaðeigandi sveitar-
félags næst ár á undan, c. Vottorð hlutaðeigandi yfirvalds
um, að þeir, sem annast um lántökuna, eða veita öðrum
umboð til þess, séu réttir hlutaðeigendur.
Lán til prestakalla og almennra stofnanna fer' eftir
skilyrðum þeim, er stjórnarráðið ákveður í hvert skif'ti.
(82)