Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 87
það lánað hjá öðrum til veðsetningar, þarf nteiknun lilut-
aðeigandi lögreglustjóra á veðleyfið um uudirskrift veð-
eiganda. Veðleyfið má vera á þessa leið:
„Jeg (nafn og heimili veðleyfanda) gef hjer með (lán-
takandi) fulla heimild til að veðsetja, eins og það
væri hans eigin eign, eign mína (nafn veðsins) til
tryggingar fyrir láni að upphæð allt að — — krón.,.
er hann ætlar að fá úr landsbankannm í Reykjavík..
Nær veðleyfið einnig til vaxta af láninu og alls
kostnaðar við innlieimtu þess.
(Heimili, dagsetning og nafn veðleyfanda).
(Hjer undir kemur notaríalvottorð lögreglustjóra)..
Eigi veðleyfið að vera bundið við ákveðið tímatak-
mark. þarf það með berum orðum að vera tekið fram;
ella er svo álitið, að veðleyfið gildi þangað til lánið er
að fullu endurborgað,
Þegar sjálfskuldarábyrgðarmenn geta eigi mætt sjálf-
ir í bankanum til að undirskrifa ábyrgðarskjal sitt, verða
þeir að gjöra það í viðurvist hlutaðeigandi lögreglustjóra
og fá áteiknun hans þar um á skjalið; þó geta menn, ef'
sjálfskuldarábyrgðarmennirnir eiga heimili langt frá bú-
stað sýslumanns, búizt við að fá sjálfskuldarábyrgðarlán,.
þegar hreppstjóri með tveimur valinkunnum búsettum
mönnum, er tilgreina beimili sitt, votta á ábyrgðarskjalið,
að þeir hafi séð sjálfskuldarábyrgðarmennina rita nöfn
sin undir það með fúsum vilja og alls gáða.
Ábyrgðarskj. sjálfsk.ábyrgðarmanna má veraáþessaleiði
„Við undirskrifaðir (nöfn og heimili ábyrgðarmanna)
gjörum hér með kunnugt, að við með þessu skjali
tökumst á hendu sjálfskuldaráhyrgð báðir fyrir einn
og emn fyrir báða fyrir láni að upphæð allt að
_ _ — krón., er (nafn og heimili lántakanda) ætlar
að fá i landsbankanum í Reykjavík. Nær sjálfskuld-
arábyrgð þessi einnig til vaxta af lánínu og alls
kostnaðar, er orsakast kann af innheimtu höfuðstóls.
eða vaxta og gildir unz iánið er greitt að fullu.
Skylt er okkur, ef málssókn verður út af lání þessu.,
að mceta fyrir gestarétti í Beykjavík.
(81)