Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1905, Blaðsíða 93
Skritlur.
í Svifiríki lifa 2 bvæður, annar þeirra á 3 mill. kr.T
og er kallaður riki Larsen; hinn á 2 mill. kr. og er til
aðgreiningar kallaður fátæki Larsen.
*
* *
Oftátungur (aðkomandi á veitingahúsi); „Eru margir
idíótar í þessum bœ“.
Veitingamaðurinn: Nei! Hér eru engir idíódar, svo
herranum finst líklega nokkuð einstceðingslegt að vera
hjá okkur“.
* *
Ákærði: „Kerlingin jós yfir mig svo óþolandi skBmm-
um, að ég gat ekki stilt mig um að berja hana.“
Dómarinn: „Þú veist, að það er yfirvaldið en ekki þú,
sem á að straffa“.
Ákœrði: Er það þá meining dómarans, að ég eigi
að draslast með kerlinguna mína hingað í hvert skií’ti
sem hún verðskuldar að fá löðrung.LL
*
* *
Dómarinn: „Hefur þú verið straffaður áður“. —
nJá“. — „Fyrir hvað“. — „Eg sló höfðinu upp að stein-
vegg“. — Ekki hefur þér verið hegnt fyrir það.“ — „Jú,-
það var ekki minn haus, heldur annars manns.“
*
* *
Dómarinn: „Það er ekki trúlegt að þú hafir drepið
manninn með fyrsta höggi.LL
Sá seki: „Viljið þér láta mig reyna það?“
Jón (á sáttafundi); „Eg vil ekki þola það bótalaust,
að hann Pétur þarna barði mig 72 högg í einu.“
Sáttamaðwrinn: „Hvaða ógnar þolinmæði er þér
gefin maður, að standa undir 72 liöggum og nenna að
telja þau“.
Pétur: *Þú ert kominn á fælur svona snemma, ég
hélt jiú svæfir fram á dag. Þú varst svo þreifandí fullur
i gær“.
(87)