Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2004, Side 2
2 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST2004
Fyrst og fremst DV
Helgarblað DV
aftast og gert meira úr þvi efni sem
þjóöin hefur tekiö svo ótrúlega vel.
Helgarblaði
DVsnúiðá
hvolf
Helgarblað DV hefur
verið í mikilli sókn síðan
ný ritstjórn tók við þann
14. nóvember síðastlið-
inn. Það er augljóst að
þjóðin hefur tekið fagn-
andi þeim stóru og miklu
umfjöllunum og greinum
sem við höfum boðið
upp á og því höfum við
hér á ritstjórn DV ákveðið
að snúa Helgarblaðinu á
hvolf hér eftir. Fréttirnar
og greinaskrifin eru aftast
í blaðinu í stað þess að
vera á fyrstu síðum þess
eins og hefur verið. DV
verður að sjálfsögðu
áfram með sama hætti og
verið hefur á virkum dög-
um og er það eingöngu
Helgarblaðið sem fær
þessa andlitslyftingu.
Þetta er gert til að koma
til móts við lesendur okk-
ar, sem hafa allt aðrar
þarfir á laugardögum. Þá
vill fólk lengri greinar og
meira efni sem lifir ffam
á mánudag. Helgarblað
DV leggur mikið upp úr
því að efnið höfði til sem
flestra og að drifkraftur-
inn sé fólk og aftur fólk
um leið og lesandinn á
að fá beint í æð allt sem
nauðsynlegt er að vita
um helgina og miklu
meira til. Það er einlæg
von ritstjórnar DV að þið,
lesendur okkar, verðið
ánægðir með þessa
breytingu á Helgarblað-
inu. Breytingin er komin
til að vera.
grB/ÍKflBiji
I DV komst yfir þessa athyglisveröu
Ijósmynd af hljómsveitinni Plús en sú
hljómsveit kemur fram I kvikmyndinni
I „Strákarnir okkar" eftir Róbert Dou-
glas. Menn þurfa ekki að skoða mynd-
' ina lengi, né vera vel að sér (nýjustu
hraeringum f rokktónlistinni, til að sjá
að þarna fara þeir Mínusmenn sem nú
ramba á barmi heimsfraegðarinnar.
Samkvæmt heimildum blaðsins
kemur hljómsveitin Plús fram sem
húshljómsveit þegar er "reunion" hjá
KR-ingum. Hljómsveitarmeðlimir eiga
engar setningar en flytja lagið «Eg sé
þig" eftir Einar Bárðarson sem Bjorg-
vin Halldórsson söngsvofallegaá
plötu sem kom út fyrir síðustu jol. Fer
vel á því en eins og kunnugt erþáer
Krummi, söngvari Mlnus, sonur stór-
söngvarans. Mínusmenn munu nafa
tekið sig sérlega vel út fyrir framan
kvikmyndatökuvélarnar. I hlutverkum
sínum, og sennilega rímar það nuvið
veruleíkann, eru þeir (hljómsveitinni
ekki fyrir strákana líkt og „strákarmr
okkar" heldur þvert á móti - þeir eru
„inn furir hitt kvnið. Fram hefur kom-
ið að kvikmyndin fjallar um sorgir og
gleði nokkurra homma sem koma
saman og stofna knattspyrnulið.Tök-
um myndarinnar lýkur 5. september
og eru þá búnar að standa i rúmar
fimm vikur. Þá tekur við eftirvinnsla
en ekki hefur verið afráðið hvenær
frumsýning verður - einhvern tíma á
næsta ári.
DV-myrig emiHano mopaco
Hljómsveitin Mínus er eitt af flaggskipum íslenska meiksins. Mínuspiltarnir hafa
Í>ann skrýtna ávana aö hneyksla í hvert sinn sem þeir opna munninn eða koma
ram. Nú hafa þeir hins vegar snúið vörn í sókn og munu koma fram í homma-
úómynd Róberts Douglas sem annáluð prúðmenni.
Hljómsveitin Plús syngur
lag með Bjögga
Samkynhneigðir
knattspyrnumenn
Tökur ganga vel á
„Strákunum okkar"en
þeim lýkur 5. september.
Hljómsveitin Plus Þessi hljómsveit kemur fram
sem húshljómsveit á„KR-reunioni‘‘i myndinni.Strák-
arnir okkar“. Hljómsveitarmeðlimir eru mjög fyrir hitt
kyniö, ólikt þeim sem eru í brennidepli myndarinnar.
„Eg er saklaus"
Stella í bók Yrsa Sigurðardóttir þvertekur fyrir að vera Stella Blómkvist.
eftir Árna
Annar höfundur sem iðu-
lega hefur verið nefndur sem
hugsanleg
Stella
Blómkvist
er Ami
Þórarins-
son blaða-
maður og
rithöfund-
ur, sem
hefur eins
og Stella
skrifað
sakamála-
sögur. Hann
hefur þó ævinlega
svarið eindregið af
sér bækur Stellu og
raunar talið það hina
mestu hneisu að
vera orðaður við
- þær. Athygli
glöggra lesenda
hefur þó vakið að í
Þórar-
insson
Svereindreg-
iöafsér
Stellu.
í nýrri bylgju íslenskra saka-
málasagna hefur undanfarið
borið nokkuð á bókum Stellu
nokkurrar Blómkvist og sker
höfundur þeirra sig frá öðrum
að því leyti að um dulnefni er að
ræða. „Stella Blómkvist" er sjálf
höfuðpersóna bókanna og kjaft-
for leysir hún erfið sakamál í
sjónvarpinu, f Hæstarétti, í
Stjómarráðinu og víðar.
Bækumar þykja ívið æsi-
legri en títt er um íslenskar
sakamálasögur og er í tísku
einni af sakamálasög-
um Árna, Hvítu kartín-
unni, er meðal aukaper-
sóna lögfræðingurinn
Stella sem virðist hafa
ýmis karaktereinkenni
hinnar knáu Blómkvist.
Yrsa Sigurðardótt-
ir Verölaunabarna-
bókahöfundur sem
starfar sem tsekni-
stjóri viö Kárahnjúka-
virkjun segist höfö
fyrir rangri sök - hún
sé ekki Stella Blóm-
kvist.
að tala illa um þær en þær hafa þó
vakið athygh út fyrir landsteinana
og til dæmis hafa Þjóðverjar keypt
réttinn á þeim öllum.
En hver er Stella Blómkvist?
„Ein lífseigasta ráðgáta íslenskra
bókmennta er hver búi að baki höf-
undarnafninu Stella Blómkvist.
Þrátt fyrir ótaldar eftirgrennslanir
og vangaveltur hefur útgefendum
Steilu, Máli og menningu, tekist að
halda réttu nafni hennar leyndu og
greinilega hefur Stella sjálf gætt
þess vandlega að ekki sjáist til
hennar við skriftirnar," segir
nánast storkandi á vef Eddu
útgáfu sem gefur bækur
Stellu út. Margir hafa verið
nefndir til sögunnar sem
; hugsanlegar Stellur: Arni
Þórarinsson (sjá hér til hlið-
ar), Stefán Jón Hafstein, Þrá-
inn Bertelsson og Jón Óttar
Ragnarsson em meðal þeirra
sem nefiidir hafa verið og ...
Yrsa Sigurðardóttir!
„Nei, ég er ekki Stella. Þeir
virðast nokkrir sem halda
það en svo er ekki. Þetta hef
Morðið (sjónvarpinu og
Morðið (Hæstarétti eftlr
Stellu Blómkvist Nú eraö
sjá hvort Moröiö á Kárahnjúk-
um bætistvið...
j
ég fengið að heyra
nokkrum sinnum en því miður, ég
er saklaus," segir Yrsa barnabóka-
höfundur og byggingarverkffæð-
ingur. Hún starfar sem tæknistjóri
Landsvirkjunar við Kárahnjúka-
virkjun, er um fertugt, tveggja
barna móðir, gift og búsett á Sel-
tjarnamesi.
Arið 2000 hlaut Yrsa verðlaun
Barnabókaráðs íslands fyrir bókina
„Við viljum jólin í júlí“ og í fyrra
hlaut hún íslensku bamabókaverð-
launin fyrir söguna Bíóböm. Fyrsta
bók hennar, „Þar lágu Danir f því",
kom út árið 1998. Aðspurð segir
hún að það fari ekki mjög vel sam-
an að vera barnabókahöfundur og
verkfræðingur, það sé svo gerólíkt.
En það að iðka skriftir og
vera verkffæðingur í öim-
um uppi á hálendi íslands
er kannski önnur saga.
„Það gengur augljóslega
ekki nógu vel. Engin bók
frá mér í ár. Það er svo
mikið að gera. Kannski á
næsta ári.“
Aðspurð frekar um hvort
það sé alveg ömggt að hún
skrifi ekki lflca undir nafninu
Stella Blómkvist hló Yrsa og sagði:
„Ég veit ekki hvernig í ósköpun-
um ég ætti að hafa tíma til þess. Ég
hef ekki hugmynd um hver það er
sem skrifar þessar bækur, ekki einu
sinni velt því fyrir mér... ég hef ekki
einu sinni lesið þessar bækur. Ég
verð greinilega að fara að gera það.
Það er ljóst. Ef ég færi mig yfir í að
skrifa fyrir fullorðna mun það verða
undir mínu nafni," segir Yrsa og er
ekki frá því að þegar og ef það verð-
ur muni hún byggja á þeirri reynslu
sinni sem hún hefur öðlast við
Kárahnjúka. „Þetta er svo skrýtið
samfélag hér og margt ótrúlegt sem
gerist."