Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Page 3
DV Fyrst og fremst
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 3
Háskoli ryþmískrar tónlistar
„Mig rámar í þetta," segir Vernharður
Linnet, jazzsérfræðingur þegar hann er
spurður um gömlu myndina sem tekin er á
eins árs afrnæli Rásar 2 árið 1984.
„Þetta var gríðarlega spennandi tími. Við
vorum þarna í góðum hópi að byggja upp
Rás 2 undir forstöðu Þorgeirs Ástvaldssonar.
Rásin var
svo fjöl-
breytt í tónlist-
arvali á þessum tíma og ég sakna þess mjög hvað
hún er orðin einsleit tónlistarlega nú. Þarna var aUskyns
tónlist spiluð í bland, rokk, djass, og popp. Ég var með al-
menna jazzþætti og svo var ég með jazzspjall á kvöldin þar
sem ég tók viðtöl við jazztónlistarmenn. Ég tók viðtöl við
marga af upphafsmönnum jazzins á íslandi, þetta eru upp-
tökur sem ennþá eru til og hafa gríðarlegt heimildargildi fyrir
Gamla myndin
jazzinn á íslandi," segir Vernharður. Að sögn
Vernharðar var mikið og gott mannval á Rás
2 á þessum árum. Mikið af sérhæfðufólki
með ýmsa þætti:
„Það lagðist af síðar vegna peningaleysis
og þá var mest um fastráðið fólk. Þorgeir var
að mörgu leiti alveg fr ábær stjórnandi. Hann
hafði mikinn metnað fyrir hönd stöðvarinn-
ar. Þessi útvarpsstöð var á sýnum tíma háskóli
rythmískrar tónlistar á íslandi. Nú er ég ástamt
Hreini Valdimarssyni að leggja lokahönd á óhemju
merkilega þætti um íslenska jazzsögu. Við erum búnir að
vera vinna í þessu verkefni síðastliðin 10 ár og erum búnir að
leggja gríðarlega vinnu í að koma þeim upptökum sem við
höfum komist yfir á útvarpshæft form. Elsta upptakan sem
fundist hefur er frá árinu 1943. Afraksturinn verður svo í út-
varpinu nú í október."
Spurning dagsins
Muntu sakna Davíðs sem forsætisráðherra?
Davíð er langbestur
„Ég mun sakna Davíðs alveg stór-
kostlega. Davíð hefurstaðið sig vel
og það er enginn vafi að hann er
langbesti leiðtogi sem við höfum
haft."
Kristófer Helgason veitinga-
maður
„Já, ég mun sakna hans. Davíð
hefur staðið sig
veiístarfí."
Kristján Krist-
jánsson,
forstjóri
Mountain
Taxi
„Já, ég held verði að taka undir
það. Það verður skrýtið að sjá á
bak Davíð
enda hefur
hann verið for-
sætisráðherra
svo lengi sem
ég man eftir
mér."
Ragna Sif
Þórarinsdóttir, nemi í
Verzlunarskóla íslands
„Nei, ekkert sér-
staklega. Mér
er alveg sama
þótthann sé
aðhætta."
Orri Rúnars-
son, nemi í
Verzlunar-
skóla íslands
„Já. Davíð er besti forsætisráð-
herra í sögu
landsins. Ég er
sannfærður
um að hann
mun standa
sig vel í utan-
ríkisráðuneyt-
iriú."
Ottó B. Arnar
Davíð Oddsson forsætisráðherra afhendir Halldóri Ásgrímssyni
lyklavöldin í forsætisráðuneytinu á morgun. Davíð Oddsson hefur
gegnt embætti forsætisráðherra manna lengst eða frá árinu
1991.
Snerting Mídasar
MANNKYNIÐ SKIPT-
IST í TVENNT;
ÞÁSEMTRÚA
EN HUGSA
EKK3 OG ÞÁ
SEM HUGSA
ENTRÚAEKKL
- ABU AL MAARRI, SÝR-
LENSKT SKÁLD Á 11. ÖLD
Samkvæmt
grfskum goð-
sögnum var
bóndadurgur,
Gordos að nafni,
eitt sinn á ferð
með kerru sína
þar sem nú heitir
Anatóh'a á suð-
vestanverðu Tyrk-
landi. Hann kom í
þorp eitt en þar
biðu íbúar spenntir
eftir að véfrétt ein
rættist. Gordos batt
kerru sfna við vé-
fréttahofið á aðaltorginu, settist að
og varð kóngur yfir landinu Frýgíu
en lét vaxandi þorpið heita Gordí-
mn. Altalað var um víðan völl að sá
sem gæti leyst hnútinn Gordosar við
hofið yrði höfðingi allrar Asíu. Gord-
os batt þennan hnút svona 800
árum fyrir okkar tímatal og í um 500
ár bólaði ekki á drottnara Asíu. Þá
átti þar leið um Alexander Fihppus-
son frá Makedóníu og hjó með
sverði sínu á hnútinn áður en hann
lagði undir sig heiminn. Síðan hafa
menn mátt eiga við Gordíons-hnúta
sína með mismiklum árangri.
Afkomendur Gordosar voru
miklir kóngar í Frýgíu en frægastur
þeirra var Mídas sá sem sá aumur á
Sílenosi satýr. Díonýsos var eitt sinn
á yfirreið um Indland með hirð sinni
en týndi þá satýr sínum, Sílenosi.
Frýgískir bændur
björguðu honum kóf-
drukknum heim í
höll Mídasar. Kóngur
tók satýrnum vel og
fyrir það var
Díonýsos svo þakk-
látur að hann bauð
Mídasi að óska sér
einhvers. Kóngur
vildi þá að allt sem
hann snerti yrði að
guhi og varð að ósk
sinni. Hann óð um
höllina og staðinn
og breytti öhu sem
hann snerti í guh.
En þegar að
kvöldmatnum kom runnu tvær
grímur á kónginn; aht sem hann
setti inn fyrir sínar varir varð að
grjóthörðu guhi. Hann var að hung-
urdauða kominn þegar hann bað
Díonýsos að fjarlægja þessa sína
beisku ósk hið fyrsta. Vínguðinn
sagði kóngi að stinga sér í ána Pact-
olus hið snarasta. Mídas gerði það
en síðan er gnægð guhsands í ánni.
Náttúruverndarsinninn
(n hundaeigandinn
Hildur Helga Sigurðardóttir fjölmiðlakona og
hundaeigandi og Ólafur Páll Sigurðarson kvik-
myndagerðarmaður og liðsmaður Náttúruvaktar-
innar eru systkin. Hitdur Helga stjórnar þessar vik-
urnar umræðuþættinum I vikulokin hjá RÚV afmik-
illi röggsemi og Ólafur Páll er tiður gestur við Kára-
hnjúka þar sem Náttúruvaktin mótmælir virkjana-
framkvæmdum oft og iðuiega. Þau eru börn Ólafar
Pálsdóttur myndhöggvara og Sigurðar Bjarnasonar
frá Vigur, fyrrum ritstjóra og alþingismanns.
Þrenn Grímu-verðlaun