Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Fimmtug fór
í heljarstökk
Aðfararnótt laugardags-
ins barst lögreglunni í
Reykjavík tilkynning um
aðila á skemmtistað sem
hafði misst meðvitund. í
ljós kom að þarna var um
að ræða fimmtuga konu
sem hafði farið heljarstökk
á dansgólfinu en við það
rekist á borð og fengið
skurð á enni. Hún var flutt
á slysadeild í sjúkrabifreið.
Meiðsli konunnar eru ekki
talin alvarleg,
Hallgrímur G. Jónsson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Vélstjóra, hætti sökum ald-
urs 1. júlí siðastliðinn. Hans bíða inni á bankabók 162 milljónir króna í lífeyri frá
bankanum.
Dýrt að vera
óspenntur
Fimmtugur maður á Ak-
ureyri á að greiða 15 þús-
und krónur fyrir að nota
ekki öryggisbelti. Maðurinn
var fyrst ákærður fyrir að
hafa ekið án beltis en lög-
reglumennirnir tveir sem
stöðvuðu bílinn báru að
hann hefði verið í farþega-
sæti. Þrátt fyrir misræmið
taldi Freyr Ófeigsson dóm-
ari sekt mannsins sannaða
með framburði lögreglu-
mannanna. í dómnum
segir að fyrri refsingar sem
maðurinn hafi sætt séu
ekki látnar hafa áhrif á refs-
inguna nú þar sem brotið
sé „frekar smávægilegt.
Blindir ræðar-
ar á heimleið
Tveir blindir kajakræð-
arar og tveir sjáandi félagar
þeirra hafa nú verið sóttir á
vélabáti þar sem þeir hafa
róið við Grænlandstrendur
undanfarnar vikur. Leið-
angurinn sem staðið hefúr
frá lokum júlímánaðar varð
nokkuð styttri en upphaf-
lega var vonast til þar sem
aðstæður voru gríðarlega
erfiðar. Leiðangursmenn-
irnir hafa tekist á við ýmis
skakkaföll og á köflum
þurft að vinna þrekvirki til
að halda för sinni áffarn.
Hallgrímur Jönsson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Vélstjóra, lét
af störfum 1. júlí síðastliðinn. Samkvæmt starfssamningi hans
fær hann 162 milljónir króna í ellilífeyri frá bankanum.
Milljónimar 162 em til reiðu
inni á þar til gerðum reikningi og
hefúr Hallgrímur aðgang að þeim.
„Það er ekki nokkur skapaður
hlutur óeðlilegur við þetta. Þetta er
allt saman endurskoðað í bak og
fyrir og reiknað út af stærðfræð-
ingum. Þetta er í tengslum við
samninga sem óteljandi aðilar eru
með, alþingismenn, ríkisstjórn og
fleiri," segir Hallgrímur, sem telur
að ekki beri að upplýsa um slíka
samninga. „Þetta er nú svona
trúnaðarmál," segirhann, spurður
um samninginn.
Hallgrímur starfaði hjá Spari-
sjóði Vélstjóra og var sparisjóðs-
stjóri í 39 ár. Hann segir fullkom-
lega eðlilegt að hann, á banka-
stjórakjörum, búi að slíkri upphæð
í eliilífeyri:
„Þetta er mjög eðlilegt. Þeir sem
hafa verið að vinna í 42 ár og eru
með ákveðin lífeyrisréttindi eru
búnir að safna til að lifa mann-
sæmandi lffi eftir starfslok. Ungt
fólk sem er að spara í dag verður
með nákvæmlega sömu stöðu eftir
einhver ár,“ segir Hallgrímur.
Auk þess að hafa 162 milljónir í
lífeyri frá Sparisjóðnum hefur
HaÚgrímur 23,5 milljónir í Sam-
einaða Lífeyrissjóðnum. Þar að
auki undirritaði Hallgrímur starfs-
lokasamning við stjórn Sparisjóðs-
ins. Samkvæmt heimildum DV fel-
ur samningurinn í sér full laun
fram að 65 ára aldri. Hallgrímur
var með rúma milljón á mánuði.
Hann vill hins vegar ekki staðfesta
hvernig samningnum er háttað.
Jón Þorsteinn Jónsson, núver-
andi stjórnarformaður Sparisjóðs-
ins, segir ekkert óeðlilegt við 162
milljóna ellilífeyrinn.
„Svona semja bankarnir. Alveg
sama hvað maðurinn heitir eða
hvar hann vinnur,'1 segir Jón sem
telur starfslokasamning Hallgríms
smáan í sniðum. „Starfslokasamn-
ingurinn er brotabrot af því sem
menn hafa séð hjá mönnum sem
hafa verið að hætta," segir stjóm-
arformaðurinn.
Hallgrímur kveðst sáttur við
starfslok sín:
„Mér finnst stjórnin gera vel við
mig og allt það, og ég er út af fyrir
sig mjög ánægður með allt í
tengslum við starfslok mín. Ég
held að þetta sé engin ofrausn, en
þetta em auðvitað mjög góð kjör."
jontrausti@dv.is
„Þetta er nú svona
trúnaðarmál
SS5SSK3Ö*
S°™ "Lnnarra bankastjóra. Hann v,ll
Hannes í rektorinn!
Svarthöfði hlakkar til þegar Páll
Skúlason hættir sem háskólarektor
næsta vor. Svarthöfði verður að segja
það eins og er: honum hefur alltaf
leiðst Páll þessi og allar hans pæling-
ar. Páll hefur bersýnilega ímyndað sér
að rétta leiðin til að stýra Háskóla ís-
lands í nútímasamfélagi væri að vera
nógu íhugull á svipinn, gáfulegur til
augnanna og þar á ofan með skegg.
En miðað við nútíma stjórnunarhætti
eins og þeir tíðkast í landi Davíðs, þá
finnst Svarthöfða það þunnur þrett-
ándi. Það hefur vantað alveg fjörið
kringum Pál, allan hasarinn, og fyrir
nú utan það að Páll hefur alls ekki ver-
'4 Svarthöfði
ið nógu duglegur við að leiða til önd-
vegis í háskólanum réttar skoðanir.
Svarthöfði hefur pælarann Pál
meira að segja grunaðan um að vera
kannski þeirrar skoðunar að
ekki séu til „réttar" skoðanir. Allir
hlutir eigi sér tvær eða fleiri hlið-
ar og hver þeirra hafi sér til ágæt-
is nokkuð og svoleiðis kjaftæði.
Þetta gengur náttúrlega ekki.
Auðvitað em til „réttar" skoðanir.
Og það vlll svo til að einmitt inn-
an háskólans er að minnsta kosti
Hvernig hefur þú það'
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður: „Ég hefþað mjög fínt, þakka þér fyrir. Ég
sit við tölvuna heima og er að ganga frá helstu upplýsingum sem þurfa að koma
fram á umslagi nýju Brimklóarplötunnar sem kemur út í október".
einn maður sem hefur allar réttu
skoðanimar á öllum. Svarthöfði á að
sjálfsögðu við Hannes Hólmstein
Gissurarson prófessor. Það er nátt-
úrulega dæmigert að einmitt sá mað-
ur hefur verið lagður í einelti af félög-
_ um sínum innan háskól-
ans og mátt sæta
isvívirðileg-
um árás-
|um, akkúrat fyrir
Iþessar réttu skoð-
anir sínar. Það er
enn einn ljóður-
f“inn á ráði Páls
Skúlasonar að
hann hefur leyft
peðum eins og Helgu
Kress að vaða uppi og
ekki bara út-
breiða rangar
Iskoðanir á öllu
fmögulegu
Iheldur líka ráð-
ast á handhafa réttu skoðanarma.
(Fyrir nú utan að Helga Kress hefur
neytt heila kynslóð ungmenna við há-
skólann til að lesa Juliu Kristevu sem
ætti náttúrlega að vera refsivert í sjálfú
sér.)
En nú er sem sagt tækifæri fyrir há-
skólann að reka af sér slyðruorðið.
Eða réttara sagt fyrir aðra að reka af
háskólanum þetta slyðruorð, því
Svarthöfði hefur enga trú á að hann
muni gera það sjálfur. Nú þegar Páll
hættir þurfa Bjöm dómsmálaráðherra
og Þorgerður Katrín menntamálaráð-
herra að taka saman höndum, breyta
lögum um að háskólamenn kjósi sjálf-
ir rektor (þau lög em líka hvort sem er
„böm síns tíma") og skipa svo Hannes
Hólmstein beint í stöðuna.
Þá mun renna upp betri tíð í vís-
indasamfélagi háskólans og að
minnsta kosti þurfum við ekki að þola
lengur háskólarektor með skegg.
Svarthöfði