Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Síða 17
r
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER2004 77
Londonlambi er
komið niður 812 kr.
en kostaði áður 1.353
kr. Kílóið af frosnum
grísakótilettum kostar
649 kr. í stað 1.298 kr.
og kílóverð á grísa-
hamborgarhrygg er
nú 887 kr. í stað 1.479
kr. áður. Pakki af
Newmans Own
poppkorni kostar 99
kr. í stað 159 kr. áður.
• Útsala á hreinlæt-
istækjum stendur yfir í Harð-
viðarvali og kosta baðherberg-
isvakar frá 4.900 kr, 30% af-
sláttur er á sturtuklefum og
stutuhausasett kosta
nú 3.990 kr í stað
7.990 kr. Blönd-
unartæki
kosta frá
4.900 kr og
baðkör frá
68.000 kr. Hand-
klæðaofnar kosta frá
19.900 kr og salerni frá 19.900
kr.
• Á tilboðsdögum í verslunum
Krónunnar kostar pakkinn af Itali-
ana pastahreiðrum 89 kr. og pakki
af pastaskeljum er á 69 kr. Krukka
af Tilda sósum kostar 229 kr. og
» lítri af Trópi appelsínusafa
$ jÉ kostar 169 kr. Pakki af
, Kellogg’s Special K kost-
ar 429 kr., hálft kfló af
KEA skyri með ýmsum
braðtegundum kostar
179 kr. og pokar af frosnum
kartöfluskífum eða venjulegum
kartöflum frá Daneffost kosta 199
kr.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða: V birtist í blaðinu alla virka daga.
r
irEnþaðertilviljunogvenju'y“r
eru menn vf,Hrr»n,
;s
•sassssí^-
nícorette
mnalaior IQwg,
Fáðu flott
munnstykki
www.nicorette.is
^Lyf&heilsa
Jákvæðni
gegn öldrun
Þeir sem eru jákvæðnir gagnvart
h'finu eldast hægar en hinir segja
sérfræðingar við Háskólann í Texas.
Þetta er niðurstaða rannskóna
þeirra á rúmlega fimmtán hundruð
manns í sjö ár. Þeir mældu öldrun-
ina meðal annars með því að skoða
þyngdartap, gönguhraða og hand-
styrk og kom í ljós að öldrunin hjá
þeim sem voru jákvæðir og glaðir
var mikið hægari en hjá hinum. Sér-
fræðingarnir telja að jákvæðnin hafi
áhrif á efnaskipti líkamans og þar
með á heilsuna.
Ávaxtablllinn flytur ferska ávexti til fyrirtækja á höfuðborg-
arsvæðinu eftir pöntun
Orkuríkir skyndibitar í áskrift
Þegar við fórum af stað í vor vorum
við að þjónusta á annað hundrað fyr-
irtæki og nú eru viðskiptavinimir að
týnast til baka eftir sumarffíin," segir
Haukur Magnússon sem rekur þjón-
ustufyrirtækið Ávaxtabilinn ásamt
eiginkonu sinni. Mörg fyrirtæki bjóða
starfmönnum upp á ávextina, önnur
taka þátt í kostnaði og sumsstaðar
hafa starfsmenn einfaldlega slegið
saman í ávaxtakörfu. Á heimasíðu fyr-
irtækisins avaxtabillirm.is er að finna
upplýsingar um fýrirtækið, ávextina
og ýmsan fróðleik og þar er einnig
reiknivél þar sem hægt er að búa til
ávaxtakörfu. Til dæmis er hægt að
segja inn fjölda starfsmanna, afhend-
ingarfjölda á viku og hve marga ávexti
hver starfsmaður á að fá á hveijum
degi og panta áskrift. Ef í ljós kemur
að einhverjum ávöxtum er ofaukið í
körfunni eða einhver vill fá meira eða
minna af einhverjum ávexti er leikur
einn að breyta á reiknivélinni og
samstundis berast upplýsingamar
til Ávaxtabílsins og pöntuninni
er þegar breytt. „Við höfum
orðið vör við það að þessi
þjónusta spyrst út í fyrirtækj-
um. Ein deUd gerist áskrifandi
og síðan berst ávaxtailmurinn um
fyriríækið og fleiri vUja vera með.
Sumir viðskiptavina okkar velja
ávextina í körfumar sjálfir en aðrir
vUja að við gerum það. Við emm í
góðu sambandi við okkar byrgja og
fylgjumst vel með hvaða ávextir em í
toppstandi þannig að viðskiptavinur-
inn á aUtaf von á því besta á markaðn-
um,“ segir Haukur Magn-
ússon.
Ávaxtakarfa
Viö höfum oröið
vör við það að
þessi þjónusta
sþyrst út í fyrir-
tækjum. Ein deild
gerist áskrifandi
og slðan berst
ávaxtailmurinn
um fyrirtækið og
fleiri vilja vera
með.
Uppskrift
Agúrkur í pítu-
brauði
Margir kjósa að hafa léttan kvöldmat
fyrstu daga vikunnar. Hér á létt, holl og
góð uþþskrift handa öllum í fjölskyldunni.
6 stk.pítubrauð
6 msk. ólífuolla
þurrkuð kryddjurtablanda, t.d. ítölsk
eða grísk
1 stór agúrka eða 2 minni
2 stk. tómatar, vel þroskaðir
lOOgr.fetaostur
12 grænar ólífur, steinlausar
1 stk. vorlaukur eða 1/4 rauðlaukur
e.t.v. steinselja
Að lesa yfir sig er aðeins gömul alþýðuskýring á geðsjúkdómum segir Óttar
Guðmundsson geðlæknir
Ég varö fyrir pví óhappi að
veröa dóx í skóla og pað er sagt
að dóxar verði aldrei að manni
Stillið ofninn á grill. Pítubrauðin eru
pensluð með óllfuollu og svolitlu af
kryddjurtum stráð yfir, þau sett á rist og
siðan stungið i ofninn þar sem þau eru
þar til þau eru heit í gegn og farin að taka
örlitinn lit. Skerið agúrkuna á ská i langar,
þunnar sneiðar og skerið tómatana I
þunnar sneiðar líka. Setjiö fetaostinn i
skál, saxið olífurnar og laukinn smátt og
blandið saman við ásamt afgangnum af
ollunni og 1/4 tsk. afkryddblöndunni.
Opnið pitubrauðin og stingið nokkrum
agúrkusneiðum inn íhvert, setjið siöan 1
til 2 tómatsneiðar ofan á og kúfaða mar-
skéið affetaostinum. Skreytið siðan og
berið á borð t.d. með góðu salati.
Draumasmiðjan
fundin?
Svissneskir visindamenn teija sig hafa
fundið hvar í heilanum draumar verða til.
Þeir rannsökuðu heila rúmlega sjötugrar
konu sem hafði fengið heilablóðfall og
^leiddi sú rannsókn í Ijós að
- svæði aftarlega í heila
konunnar hafði orðið
fyrir skemmdum en
það svæði segja vís-
indammeirnirað
stjórni draumum
okkar. Við heilablóð-
fallið missti konan
meðal annars sjón.
Nokkrum dögum sfðar
hafði allt gengið til baka
nema draumarnir. Visindamennimir eru
bjartsýnir á að uppgötvunin verði lyfti-
stöng á sviði draumarannsókna og hvaða
hlutverki þeir þjóni.
„Nei það er ekkert til sem heitir
að lesa yfir sig og er það aðeins göm-
ul alþýðuskýring á geðsjúkdómum,"
segir Óttar Guðmundsson geðlækn-
ir á Geðdeild Landspítala en því hef-
ur lengi verið haldið fram að menn
hafi orðið geðveikir í langskóla-
námi. í fyrri viku lést ungur maður í
átökum við lögreglu en hann hafði í
nokkur ár átt við geðsjúkdóm að
stríða. Haft var eftir konu sem þekkti
vel til hans að hann hafi lesið yfir sig
og það væri ástæða veikinda hans.
Goðsögur og ógæfumenn
Óttar segir þetta vera gamla goð-
sögn sem hann hafi heyrt í óteljandi
útgáfum gegnum tíðina. „Þegar ég
var í menntaskóla var þekktur al-
kóhólisti á ráfi um bæinn og
var sagt að hann hefði lesið
yfir sig af latínu. Hann átti
að hafa verið mikið séní og
fyllt kolhnn af latneskum
sögnum og spakmælum.
Allt í einu var eins og út úr
flóði og hann varð upp úr
því ógæfumaður. í þessu
felst kannski sú von að
skýra megi ógæfu og geð-
veiki út fiá einhverju
öðru en hefðbundnum
skýringum læknisffæð-
innar. Þarna skín
kannski í goðsögnina um
Sölva Heigason sem átti að
vera öðrum landsmönnum
gáfaðri en lenti gæfusnauð-
ur á vergang um allt land
hæddur og kvalinn af lýðn-
Því hefur lengi verið haldið fram að menn hafi orðið
geðveikir (langskólanámi Óttar Guðmundsson segir að
það sé ekkert til sem heitir að lesa yfir sig.
um. En geðsjúkdómar leggjast á fólk
hvort sem það er ofurgáfað eða
minna gefið og þeir fara ekki í
manngreinarálit.
Lítill munur á körlum og
konum
„Einkenna geðsjúkdóma verður
oft ekki vart fyrr en í kringum tví-
tugt. Þá er lífið farið að gera þessar
venjulega kröfur til einstaklingsins
og þá verða alltaf einhverjir til að
kikna undan álaginu. Það er senni-
lega skýringin á áðurnefndri goð-
sögn; geðsjúkdómar skjóta oft upp
kollinum þegar námið fér að verða
erfiðara og gera meiri kröfur á ein-
stakl-inginn. En það er tilviljun og
venjulega eru menn þá orðnir of
næmir fyrir áföllum vegna andlegra
veikleika, persónuleikaraskana eða
alvarlegra geðsjúkdóma sem gerir
verkum að þeir stand-
ast ekki álagið og gefast upp. Þá er
sagt að þeir hafi lesið yfir sig. Skýr-
ingin kann einnig að vera sú að
menn hafi verið farnir að finna fýrir
einkennum og verið einrænir og
liðið illa. Það kann að vera ástæða
þess að þeir hafi lokað sig af og aðr-
ir staðið í þeirri meiningu að þeir
sætu við lestur. Óttar segir lítinn
mun á konum og körlum, bæði
kynin séu á svipuðum aldri þegar
flestra geðsjúkdóma verði vart.
Sjúkdómurinn sé undirliggjandi en
einkenna verði ekki vart fýrr en á
fullorðinsaldri.
En goðsögnin er skemmtileg
engu að síður og endurspeglast í
orðum Álfgríms í Brekkukotsannál
þegar hann segir ef ég man rétt: Ég
varð fyrir því óhappi að verða dúx í
skóla og það er sagt að dúxar verði
aldrei að manni.
t
II
*
%