Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004
Sport DV
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu fer á skrið í dag. Að venju munu þrjátíu og tvö lið gera atlögu að
titlinum og þar má sjá nokkrar skemmtilegar viðureignir strax í fyrstu umferð.
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fer í gang í dag en þar
munu þrjátíu og tvö lið heyja harða baráttu um að komast
upp úr riðlakeppninni. í fyrstu umferð gefur að líta nokkrar
skemmtilegar viðureignir sem erfitt verður að spá fyrir um
hvernig muni fara. Þar ber einna hæst viðureign Arsenal og
PSV Eindhoven.
Það efast ekki nokkur maður
um styrk Arsenal heimafyrir en
þar hafa lærisveinar knattspyrnu-
stjórans Arsene Wenger farið
hamförum. Liðinu hefur aldrei
tekist að komast gegnum fjórð-
ungsúrslitin í Meistaradeildinni
en Patrick Vieira er sannfærður
um að sitt lið sé loks búið að ná því
sjálfstrausti sem til þarf og verði
tilbúið í slaginn gegn PSV Eind-
hoven í kvöld. „Þráin og gæðin
eru til staðar hjá okkur. Við erum
alveg nógu góðir. Nú þurfum bara
að sýna hversu mikið við viljum
ná upprunalegu markmiði" sagði
Vieira.
Arsenal hækkar met sitt með
hverjum sigrinum en liðið hefur
nú leikið 45 deildarleiki án taps og
fátt sem virðist getað stöðvað
siglingu þess. Vieira segir það
ekki skipta sína menn neinu máli.
„Þó að byrjunin sé góð þá er lang-
ur vegur framundan. Það er mikil-
vægur leikur framundan og við
erum fullir sjálfstrausts varðandi
spilamennsku okkar en við verð-
um að byrja vel heima. Stemning-
in meðal leikmanna liðsins er
góð,“ sagði Vieira.
Ekki er ljóst hvernig uppstill-
ing liðsins verður en þó er vitað
að Sol Campbell verður ekki með
vegna hæl-meiðsla og mun
Arsene Wenger gera einhverjar
breytingar sökum þess.
Nær Leverkusen að hefna
sín?
Þýska liðið Bayer Leverkusen
er staðráðið í að hefna ófaranna
síðan í úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar 2002 þegar liðið beið
lægri hlut fyrir Real Madrid, 2-1.
Nokkuð slen hefur einkennt leik
Leverkusen-liðsins undanfarið en
liðið tapaði fyrir FSV Mainze á
síðustu helgi, 2-0. Þá sást langar
leiðir að leikmenn Leverkusen
voru með hugann við allt annað en
leikinn. „Þeir voru greinilega
farnir að hugsa um leikinn gegn
Real Madrid og það var einmitt
það sem ég kveið fyrir“ sagði
Klaus Augenthaler, þjálfari
Bayern Leverkusen.
Fátt sem stöðvar Chelsea?
Lið Chelsea er á hörkusiglingu
um þessar mundir og er í öðru
sæti ensku deildarinnar með fjóra
sigra og eitt jafntefli. Chelsea-
menn munu gera sér ferð til
Frakklands og leika við Paris St.
Germain á útivelli. Stefnan er tek-
in á að byrja sterkt í riðlakeppn-
inni en leikmenn PSG eru þó ein-
beittir fyrir leikinn. „Bæði lið eru
á mikilli siglingu en eiga samt eft-
ir að ná fullum styrk. Við viljum
sjá árangur gegn Chelsea-liðinu"
sagði Vahid, þjálfari hinna
frönsku PSG.
Manchestermenn slappir
Manchester United hefur ekki
riðið feitum hesti það sem af er
tímabils í ensku deildinni og hefur
aðeins uppskorið einn sigur úr
fyrstu fimm leikjum haustsins.
United vermir tíunda sæti deild-
arinnar og þarf augljóslega að
rífa sig upp á afturendanum. Liðið
á erfitt verkefni fyrir höndum og
mætir Olympique Lyon á útivelli.
Lyon er taplaust í frönsku deild-
inni og fer fullt sjálfstrausts í
viðureignina við Manchester.
„Það að við erum taplausir er
gríðarlega mikilvægur hlekkur í
sjálfstrausti okkar í leiknum gegn
Manchester United" sagði Jean-
Michel Aulas, forstjóri Olymp-
ique Lyon.
Móttaka fyrir Larsson?
Búast má við mikilli stemn-
ingu á Parkheadleikvanginum í
Glasgow þegar fyrrum leikmað-
ur Celtic, Svíinn Henrik Larsson,
mætir með Barcelona í heim-
sókn. Verður þetta í fyrsta sinn
sem Larsson leikur í annarri
treyju á leikvanginum en Martin
O’NeiIl, knattspyrnustjóri skoska
liðsins, var ekki í vafa um að Sví-
inn fengi hlýjar móttökur frá sín-
um gömlu stuðningsmönnum.
„Hann gerði góða hluti fyrir fé-
lagið og fólk mun rísa úr sætum
og klappa fyrir kappanum" sagði
O’Neill. „Ég vil þó ekki að hann
fái klapp í hvert sinn sem hann
fær boltann".
Aðrar viðureignir
Valencia fær Anderlecht í
heimsókn, Werder Bremen gerir
sér ferð til Milan og mætir Inter.
Ajax tekur á móti Juventus og
Porto, sem varð Evrópumeistari
Meistaraliða í fyrra þegar liðið
vann Monaco, tekur á móti CSKA
Moskvu.
Þá mætir AC Milan Shakhtar
Donetsk en Milan á 6 Evrópubik-
ara í pokahorninu. Þá mætir
Maccabi Tel Aviv þýska liðinu
Bayern Munchen á heimavelli.
sXe@dvJs
„Þráin og gæðin eru til staðar hjá okkur. Við
erum alveg nógu góðir. Nú þurfum bara að
sýna hversu mikið við viljum ná upprunalegu
markmiði"