Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004
Fókus DV
Guðbergur með fyrirlestur
um stöðu menningar
Guðbergur Bergsson rithöf-
undur heldur í dag fyrirlestur í
Norræna húsinu um menningu.
Er fyrirlesturinn haldinn í boði
Stofnunar Sigurðar Nordal og
hefst kl. 17 í dag. Guðbergur er
ekki óvanur fyrirlestrahaldi. Jafri-
framt því að vera afkastamikill
þýðandi, standa í lokafrágangi
nýrrar skáldsögu sem væntanleg
er núna fyrir jólin, skrifar hann
pistla að staðaldri í Fréttablaðið
sem hafa vakið mikla athygli
undanfarið.
Fyrirlestra hefur hann tíðum
haldið. Síðast fyrirlestur um
Kenjar Goya í Listasafninu á Ak-
ureyri. Guðbergur sagðist þar
áður hafa flutt fyrirlestur á Spáni
um gestrisni og siðfræði. Hann
grípur því víða niður.
Efhi fýrirlestrar Guðbergs í
dag minnir á frægan fyrirlestur
Gests Pálssonar seint á nítjándu
öld þar sem skáldið greindi sam-
tíma sinn af miskunnarleysi og
gagnrýni svo vel að löngum hef-
ur verið til vitnað. Ekki sagðist
Guðbergm þræða slóð Gests.
Lesendur hans vita að tíðinda er
Spacey fel-
ur skallann
Leikarinn Kevin Spacey
hneykslaði meðleikara sína við
tökur á myndinni Beyond The
Sea þegar hann dró upp sprey-
brúsa og fór að
spreyja á haus-
inn á sér til að
fela skallann.
Bróðir leik-
arans, sem
starfar sem
Rod Stqwart
eftirherma,
segist vera orð-
inn hundleiður á
Kevin og kallar hann „fáránlegan
lygahlaup". Hann segist ætla að
gefa út bók þar sem hann ætíar
að uppljóstra öllum leyndarmál-
um bróður síns. „Hann hefur
helgað líf sitt lyginni og er allt
annar en hann þykist vera. Mér
finnst hann afar sorglegur."
Britney gæsuð um
næstu helgi
Poppprinsessan Britney Spears
ætíar að halda glæsilegt
gæsapartý um næstu helgi.
Söngkonan er búin að
bjóða átta bestu vinkonum
sínum og hefur keypt inn
nóg af áfengi svo þær þurf!
ekki að yfirgefa villuna. Á
sama tíma ætíar Kevin
Federline að skemmta
sér með vinum
sfnum í Las Veg-
as. „Britney hef-
ur látið hann fá
mikinn pening
því hún viU að
hvorugt þeirra
muni gleyma
þessari helgi."
Britney ætlar ekki að
eyðileggja djammið
með því að fara á
skemmtistaði. Þess
í stað ætíar hún að
bjóða vinkonum
sínum í bíó, í
snyrtingu og á
nektardansstað
heima hjá sér.
Fyrirlestraröð Mannfræðingafélags íslands hefst í kvöld í Reykjavíkurakademí-
unni. ValdimarTr. Hafstein þjóðfræðingur ríður á vaðið og Qallar um menningar-
arf, margbreytileika og alþjóðapólitík.
Menningararfur veröur
sagan í neytendaumhúDum
„Ég ætla velta fyrir mér upp-
gangi þessa hugtaks og orðræðu
allrar í kringum menningararf á
síðustu 20 árum," segir Valdi-
mar Tr. Hafstein þjóðfræðingur.
„Með þessu orði, „menningar-
arfur", er m.a. verið að yfirfæra
sjónarhorn minjasafna yfir á
daglegt líf. UNESCO hefur t.d.
nýlega samþykkt sáttmála um
óáþreifanlegan menningararf
en hann snýst um verndun ólík-
ustu fyrirbæra eins og markaðs-
torgs í Marakech, hér yrðu þá
fyrir hlutir eins og vefnaður,
glíma og rímur. En um leið og
horft er á hlutina sem menning-
ararf verður ákveðin eðlisbreyt-
ing á þeim, samband manna við
þá breytist um leið og menn
álíta að þeir séu að viðhalda
menningararfi. Skilningur
manna á hlutnum breytist og
þeir skoða hann í öðru sam-
hengi en áður.“
Menningararfur og tákn-
mynd
Valdimar telur að þegar hlut-
um, tjáningu og atferli sé stillt
upp sem menningararfi verði
þetta að eigin táknmyndum.
„Eiginlega verða þeir ímyndin
af sjáífum sér. Oft eru þetta úr-
eltir hlutir og tengjast annars
konar samfélögum en við búum
í nú en öðlast framlengingu á
tilveru sinni sem menningararf-
ur. En svo er í þessu þversögn
því það að eiga menningararf er
merki um að vera nútímalegur.
í Afríku vernda menn nú og
rækta sinn menningararf en
það er tæki til að koma þjóðum
þar til nútímans. Hér segjum við
að nánast hvað sem er sé menn-
ingararfur í þeim tilgangi að
beina athygli manna og fjár-
munum að því; sundiðkun er
mikilvægur menningararfur,
skáklist víkinganna, Árnes-
hreppur, íslenski fjárhundur-
inn, draugatrúin og svo mætti
lengi telja. Þetta er hinn mikla
menningararfsvæðing síðust
áratuga en hún er auðvitað svar
þjóða, héraða og sveita við
hnattvæðingunni um leið og
hún er hluti af henni," segir
Valdimar.
Hlutir í útrýmingarhættu
„Með þessu er líka verið að
hlutgera menninguna og fortíð-
ina,“ heldur Valdimar áfram.
„Að mínu mati helst það svo í
hendur við hlutgervingu fram-
tíðarinnar í nýjustu neysluvör-
unum. Þannig má segja að
menningararfurinn verði sagan
í neytendaumbúðum og þegar
við notum þetta orð er komið að
elleftu stundu, fyribrigðin eru í
útrýmingarhættu hvort sem
þau eru það eða ekki. Hætta
steðjar alltaf að menningararf-
inum eins og öðrum forgengi-
legum hlutum. Um þetta og ým-
islegt fleira ætla ég að fjalla í
kvöld," segir Valdimar Tr. Haf-
stein þjóðfræðingur. Hann er að
ljúka doktorsprófi vestur f
Bandaríkjunum, þar sem hann
Qallar um nýjasta UNESCO sátt-
málan um óáþreifanlegan
menningararf, tilurð hans og al-
þjóðapólitíkina umhverfis
hann. Þjóðir Asíu og Afríku
stóðu fyrir samþykkt hans og
segja má að hann sé ttí höfuðs
eða hliðar við heimsminjasátt-
málan, vestrænan og Evrópu-
miðaðan, samkvæmt honum
eru fleiri heimsminjar í Frakk-
landi og á Ítalíu en í Afríku allri.
Fyrirlestur Valdimars hefst kl.
20 í kvöld í húsakynnum
Reykjavíkurakademíunnar og er
upphafið að fyrirlestraröð
mannfræðinga: Menning:
menningarleg færni, menning-
arlegir árekstrar.
Robbie Williams er kominn með leið á að
vera talinn samkynhneigður og þorir ekki að
taka hlutverk homma í söngleik
Ég er ekki hommi
Söngvarinn Robbie Wiltíams er
orðinn svo leiður á að vera talinn
samkynhneigður að hann neitaði
milljóna króna hlutverki í söngleik
á Broadway því persónan sem
hann átti að leika er samkyn-
hneigð. Robbie var beðinn um að
taka að sér aðal hlutverkið í The
Boy From Oz en söngvarinn telur
að hlutverkið ýti aðeins undir sög-
urnar um samkynhneigð hans.
„Robbie vill ólmur slá f gegn í
Bandarfkjunum en harrn krefst
þess að hans fyrsta hlutverk verði
karlmannlegra." Félagi hans úr
tónlistinni segir Robbie oft hafa
reynt við sig.“ Við vorum búnir að
dópa allt kvöldið og vorum svo
sjúskaðir að við fengum ekki að
koma inn á hótelið. Því ákváðum
ValdimarTr.Haf-
stein þjóðfrseð'-
legar „Menningar-
arfsvxðingin breytir
I ólíkustu hlutum for-
tíðarinnar i menn-
I ingararf"
við að fara heim ttí mín og gistum
saman í rúmi. Þegar ég vaknaði
um morguninn var Robbie ofan á
mér að reyna að koma mér til.
Hann sagði mér að hann væri í
miklum vafa með kynhneigðina.
Ég sagðist ekki hafa áhuga og
hann fór af mér.“
Robbie segist hafa áhuga
á söngleikjum en sé
hræddur um að festast í
hlutverki hommans.
A.
jJSf fe-
•*r
«5
Robbie Williams
Fyrrum félagi söngv-
arans segist hafa
vaknað við að
Robbie hafi legið
ofan á honum.