Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2004, Qupperneq 25
DV Fókus
ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 25
4»
LeighTimes
„Þrýstna blondínan"
Leoncie boðar komu
sína í blaðaviðtölum.
Zeta-Jones
fórnarlamb
mannræningja
Leikkonan Catherine Zeta-
Jones slapp með skrekkinn eftir
að hafa orðið fórnarlamb
mexíkanskra mannræningja.
Mannræningjarnir réðust að
limmósíu leikkonunn-
ar Mexíkó. „Þeir
voru vel vopn-
aðir og lögregl-
an varð að elta
þá í fjórar
klukkustundir.
Catherine var
afar brugðið en
ánægð að lög-
reglunni hafi tekist
að yfirbuga þá.“ Zeta-Jones og
Antonio Banderas eru að vinna
að ffamhaldi Zorro myndarinn-
ar í Mexíkó en þar verða mann-
rán æ algengari. Leikkonan
hefur ekki átt sjö dagana sæla
upp á síðkastið. Hún hefur
þurft að eiga við geðsjúkan að-
dáanda eiginmanns síns sem
hótaði meðal annars að skera
hana í bita og kasta fyrir
hundana.
Þijáríslenskar
íToronto
Kvikmyndahátíðin í
Toronto hófst í
síðustuviku
tPí'' og stendur
v m til 18. þ.m.
Þetta er
Leoncie Storma-
samri sambúö henn-
ar með Sandgerðing-
um og öðrum íslend-
ingum lýkurbrátt.
I Friðrik Þór Friðriks
I son kvikmynda-
I 9®rðarmaður Með
I leikurum úr Niceland
I ° , v'kmyndahátíð i
lekklandi
stærstakvik- 1—_
myndahátíð í
heimi og mikilvæg fyrir sölu á
myndum til Bandarfkjanna. Að
þessu sinni verða þijár íslensk-
ar myndir sýndar á hátíðinni;
kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar „Niceland" er á einni
af aðaldagskrám hátíðarinnar,
heimildamynd Róberts Dou-
glas „Mjóddin" er sýnt á dag-
skrá „Reel to Reel“ og stutt-
eoncie kveðup
mynd Peters Hutton „Skaga-
fjörður" er sýnd með frammúr-
stefnumyndum en hún verður
einnig opnunarhátíð Nordisk
Panorama sem
sett verður í
Reykjavík f
næstuviku.
Róbert Douglas
kvikmyndagerðar-
maður Heimilda-
mynd hans„Mjódd-
in"ádagskrá Reel
i to Reel
„Þegar ég fer ætla ég að losa
mig við fasteignir og verða frjáls,"
segir Leoncie Martin, indversk-ís-
lenska söngkonan sem undirbýr
brottflutning sinn frá íslandi
vegna þess sem hún nefnir kyn-
þáttafordóma.
„Ég er komin með nóg af ras-
ismanum á íslandi. Ég er frábær og
ég veit það. Þegar ég fer frá íslandi
ætla ég að gleyma öllu um landið og
rasismann sem ég hef upplifað hér,“
segir hún.
Staðurinn sem Leoncie hefur í
huga er Leigh-on-Sea í Bretlandi.
„Ég skrifaði lag um þennan stað í
draumum mínum, stað sem heitir
sama nafhi og ég. Jafnvel mamma
og pabbi voru í sjokki þegar þau
fréttu að sá staður væri til."
Birt var viðtal við Leoncié í blað-
inu Leigh Times 7. september síð-
astliðinn, þar sem Leoncie er sögð
þrýstin blondína frá íslandi. Jafn-
framt er tekið þar fram að hún sé
afar ólík Björk. „Ég vil frekar vera
borin saman við Celine Dion, heldur
en Björk. Ég vil ekki vera borin sam-
an við loftbelg."
Leoncie býr nú í Sandgerði en
hún hefur lent í nokkrum útistöðum
við bæjarbúana. Hún segist bíða
þess í ofvæni að selja hús sitt. Komu
sína hefur hún boðað til Leigh-on-
Sea f október eða nóvember. Þar
leitar hún sér að litlu húsi með rós-
um kringum dyrnar og garð þar sem
hún og Viktor, eiginmaður hennar
og lífvörður, geta ræktað grænmeti
og kryddjurtir.
- Ætlarðu að koma aftur til ís-
lands?
„Af hverju ætti ég að koma aftur?"
svarar Leoncie, sem ætlar að gleyma
íslandi sem fyrst.
Leoncie yfirgefur landið með
nokkru þjósti. Hún á að baki
stormasaman feril á landinu sem
hófst með strippi en reis hæst í ný-
legum smellum eins og Ást á pöbbn-
um.
jontrausti@dv.is
Farþegar undirbúi sig fyrir vellu
Menn eins og Spielberg þurfa að
taka nokkur feilspor á ferlinum til
þess að virðast ekki ósigranlegir og
hans nýjasta mynd lætur hann hrasa
hressilega. Ég hef persónulega ekki
haft mikið gaman af myndunum frá
honum síðustu ár, gerilsneyddar af
öllu því sem gæti hreyft við fólki,
fjölskylduvænar með eindæmum og
leiðinlegar upp til hópa. Hann hefur
eiginlega ekki gert almennilega góða
mynd síðan Schindler’s List og Sav-
ing Private Ryan, sem mér finnst nú
ekki geðveik en hann sýndi að hann
gat sýnt okkur hryllilega atburði ef
hann reyndi. Því miður hefur hann
ekki fundið það í sér að gera það aft-
ur.
Sagan er lauslega byggð á reynslu
Merhan Nasseri sem er búinn að
vera strandaglópur á Charles De
Gaul flugvellinum í 17 ár og virðist
ekkert vera á því að fara þaðan.
Tom Hanks leikur, á afskaplega
ósannfærandi hátt, Viktor Navorski,
ferðamann frá Krakozhiu, sem kem-
ur til New York rétt eftir að valda-
ránstilraun hefur verið gerð í hans
landi og allt farið til fjandans. Hann
verður því strandaglópur á flugvell-
inum og getur hvergi farið því að
heimaland hans er ekki lengur til.
í stað þess að reyna að gera allt til
þess að losna úr prísundinni virðist
hann sættast við örlög sín og býr sér
til heimili á flugvellinum og kynnist
starfsmönnum þar á bæ, þar á með-
al lauslætisdrósinni og flugfreyjunni
Amilíu sem er með eindæmum
óaðlaðandi persóna og flugstöðvar-
stjóranum Frank (Tucci) sem af ein-
hverri ástæðu er mjög pirraður yfir
því að Viktor skuli vera þarna. Það er
svolítið fyndið að sjá hvað þessi
mynd gerir lítið úr öryggismálum
flugvalla í Bandaríkjunum, sérstak-
lega í ljósi þess hvernig ástandið er í
dag. Viktor getur gengið óáreittur
inn á lokuð svæði á hvaða tíma sem
er og gert eiginlega hvað sem hann
vill.
Einnig er aldrei tekist á við það
hvað fólk fer í gegnum þegar það er
fangelsað svona á takmörkuðu
svæði í langan tíma, Viktor virðist
bara vera alsæll með gistinguna og
bara á einum stað finnst honum
hann þurfa að hringja heim til fjöl-
skyldu sinnar. Manni finnst eins og
það vanti heilmikið inn í söguna til
þess að gera persónurnar dýpri og
merkilegri en það virðist allt hafa
verið klippt úr til þess að gera meiri
gaman drama úr henni.
Handritið er frekar illa skrifað,
grunnar persónur og flestar óaðlað-
andi og óspennandi og svo fellur
hún í hryllilega væmni undir lokin
eins og Spielberg er einum lagið.
Tom Hanks er algerlega rangur
maður í þetta aðalhlutverk því að
hann er orðin svo mikil stjarna að
maður kaupir hann ekki sem Austur
Evrópu-búa. Hann túlkar hann sem
afskaplega heimskan mann bara af
því að hann kann ekki ensku en svo
The Terminal
Sýnd i Sambíóunum og Há-
skólabíói. Leikstjóri: Steven /f
Spielberg Aðalhlutverk:
Tom Hanks, Catherine Zeta l
Jones, Stanley Tucci,
Diego Luna
★ ★
Ómar fór í bíó
breytist hann í einhverja ofurmann-
eskju sem lætur ekkert stöðva sig og
getur allt.
Það er eitthvað við Catherine
Zeta Jones sem mér finnst afskap-
lega óaðlaðandi í hverju sem hún
tekur fyrir og hún nær ekki að breyta
minni skoðun í þetta skiptið. Sá eini
sem sýnir einhverja takta er Stanley
Tucci sem ljáir sinni persónu smá
húmor og líf.
Tæknilega séð er þessi mynd nán-
ast óaðfinnanleg, kvikmyndatakan
falleg og sviðsmyndin er stórkostleg
og ég trúði því varla að ekkert að
myndinni var tekið inn í alvöru flug-
velli. En ótrúverðug saga og persónur
gera þessa mynd að auðgleymanlegri
vellu með h'tið innihald.
Ómar öm Hauksson
*
■c
%