Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2004, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2004
Helgarblað DV
Fréttaslcýring
Barátta Islands fyrir sæti í Oryggisráði Sameinuðu þjóðanna er nú komin á fullt skrið eftir
að Danir náðu sæti í ráðinu fyrir nokkrum dögum. „Héldum okkur til hlés meðan við biðum eftir Dönum,“
segir Hjálmar W. Hannesson fastafulltrúi íslands hjá SÞ. Keppum við Austurríki og Tyrkland um sæti.
Barátta íslands fyrir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna er
nú komin á fullt skrið eftir að Danir náðu sætLí ráðinu nú fyrir
nokkrum dögum. Hjálmar W. Hannesson fastafulltrúi íslands hjá
SÞ segir að þótt ákveðið hafi verið fyrir löngu að reyna að ná sæti
í Öryggisráðinu, eða árið 1998, beitir skrifstofa hans sér ekki að
ráði í málinu fyrr en nú. „Við vildum bíða eftir að Danir næðu
sínu sæti til að trufla ekki kosningabaráttu þeirra," segir Hjálmar.
ísland á kost á sæti í öryggisráð-
inu íyrir tímabilið 2009-10 en þá
losnar sæti fyrir þjóð af Vesturhveli
jarðar. Um er að ræða tvö sæti sem
losna og keppa þrjár þjóðir um það.
Hinar tvær eru Austurríki og Tyrk-
land. Hjálmar er hóflega bjartsýnn á
möguleika íslendinga. Samhliða
þessu hefur Hjálmar átt annríkt við
að koma á stjórnmálasambandi við
allar þjóðir sem tilheyra SÞ. Hann
segir að ekki séu bein tengsl á milli
þeirrar þróunar og löngun í öryggis-
ráðssætið. „Hvað stjórnmálasam-
böndin varðar erum við, eins og all-
ar aðrar þjóðir innan SÞ, að fylgja
svokallaðri New York áætlun. Hún
gengur út á að öll rfld innan SÞ séu í
stjórnmálasambandi hvert við ann-
að,‘‘ segir Hjálmar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ís-
lendingar hafa ætlað sér að ná sæti í
öryggisráðinu. Slflct var tekið til al-
varlegrar íhugunar árið 1987 en síð-
an ákveðið að gera það ekki.
í samstarfi við Norðurlöndin
f máli Hjálmars kemur fram að ís-
land hafi gert samkomulag við hin
Norðurlöndin varðandi kosningar í
öryggisráðið þannig að aðeins eitt
land frá þeim sé í framboði hveiju
sinni og aðstoða hin Norðurlöndin
viðkomandi land í að komast að.
„Við höfum algjöran stuðning hinna
Norðurlandanna í framboði okkar
og við styðjum þau á sama hátt. Þess
vegna héldum við okkur til hlés í bar-
áttunni meðan Danir voru í fram-
boði fyrir tímabilið 2005 til 2006,“
segir Hjálmar.
Jafnir möguleikar á við hina
Hvað varðar andstæðinga okkar í
baráttunni um sætið í Öryggisráð-
inu, Austurrfld og Tyrkland, segir
Hjálmar að hann meti stöðuna svo
að ísland eigi jafna möguleika á við
Öryggisráðið Ástæðan fyrir því að Island sækist eftir sæti í öryggisráðinu er hugmyndin um
að við ættum að láta frekar til okkar taka í alþjóðamálum.
HOMumvrinni
Hopnm: m
íoio monns
þau lönd. „Það sem er okkur í hag er
að Norðurlöndin hafa mjög jákvæða
ímynd innan Sameinuðu Þjóðanna
og það hjálpar okkur mikið," segir
Hjálmar. „Þetta á sérstaklega við
meðal vanþróuðu þjóðanna enda
eru Norðurlönd þeldd fyrir að veita
töluverðu fé til þróunarverkefna og
hjálparstarfs."
Látum til okkar taka
Ástæða þess að ísland sækist eftir
sæti í Öryggisráðinu er hugmyndin
um að við ættum að láta frekar til
okkar taka í alþjóðamálum. Hjálmar
nefnir einnig þá staðreynd að allar
þjóðir í Vesturlandahópnum hafi átt
sæti í ráðinu fyrir utan Island og Lúx-
emborg. Meira að segja Malta hefur
átt sæti í ráðinu. Önnur smárfld sem
ekki hafa átt sæti í ráðinu eru aðeins
fjögur talsins en það eru San Marínó,
Mónakó, Andorra og Lichtenstein.
„Það hlýtur að vera komið að okkur,"
segir Hjálmar.
20-30 milljónir
Hvað varðar fjárveitingar til þessa
verkefnis segir Gunnar Snorri Gunn-
arsson ráðuneytisstjóri utanrflds-
ráðuneytisins að í fjárlagafrumvarp-
inu á næsta ári verði peningar eyrna-
merktir til þess. Fyrir liggi að koma
þurfi upp einu stöðugildi á skrifstof-
unni í New York og einu stöðugildi
við ráðuneyúð hér heima. Auk þess
þurfl að breyta aðeins sjálffi skrif-
stofunni í New York. f byrjun er
reiknað með að kostnaðurinn liggi á
bilinu 20 til 30 milljóna króna.
„Við munum styrkja skrifstofuna í
New York og stöðugildið hér heima
þar sem utanrfldsráðuneytið mun
leggja aukna áherslu á málefni Sam-
einuðu þjóðanna meðan á baráttu
okkar fyrir sætinu stendur," segir
Gunnar Snorri.
Markvissara alþjóðastarf
Fram kemur í máli Gunnars
Snorra að þegar er búið að ganga frá
húsnæðismálunum í New York. Það
Hjálmar W. Hannesson „Við höfum al-
gjöran stuðning hinna Norðurlandanna I
framboöi okkar og viö styðjum þau á sama
hátt. Þess vegna héldum við okkur til hlés f
okkar baráttu meðan Danir voru i framboði
fyrir tímabiliö 2005 til 2006“
hefur tekist án teljandi aukakostnað-
ar þar sem fasteignaverð hefur lækk-
að í borginni. Því tókst að ná hag-
stæðum samningum við leigusala
þegar samið var um langtímaleigu
upp á nýtt. Fari svo að Island nái
kosningu í Öryggisráðið þarf enn að
bæta við fólki á skrifstofuna í New
York. „Við munum leita að duglegu
fólki sem er reiðubúið að leggja tölu-
verða vinnu á sig því það þarf að
koma sér upp þekkingu og tengsla-
neti í sambandi við þau mál sem
hæst ber í Öryggisráðinu hverju
sinni,“segir Gunnar Snorri. „Stærsti
kosturinn við framboð okkar í Ör-
yggisráðið er að starf okkar á al-
þjóðavettvangi verður markvissara."
Stjórnmálasamband við alla
Sem fyrr segir vinnur Hjálmar
einnig að því að koma á stjórnmála-
sambandi við öll aðildarrfld SÞ. Á
þessu ári einu hefur hann 35 sinnum
sest niður með fulltrúum annarra
þjóða og komið á stjórnmálasam-
Gunnar Snorri Gunnarsson „Stærsti kost-
urinn við framboð okkar I Öryggisráðið er að
starfokkará alþjóðavettvangi verður mark-
vissara
bandi fyrir íslands hönd. Hann segir
að baráttan fyrir Öryggisráðssæti og
þessi stjórnmálasambönd séu tvö
ólflc mál og „ekki endilega skyld.“
Það skemmir þó ekki fyrir að stofriað
sé til stjórnmálasambanda við fjölda
rflcja nú því hægt er að nota tækifær-
ið í leiðinni til að tala máli íslands
sem verðugs fulltrúa í Öryggisráðið.
„Þessi stjórnmálasambönd kosta
okkur ekld neitt fýrir utan undir-
skriftina því þeim fylgja engar skyld-
ur og ekki er verið að fjölga sendi-
herrum eða sendiráðum í tengslum
við þau,“ segir Hjálmar.
30 lönd eftir
Alls eru 191 lönd fullgildir með-
limir SÞ og segir Hjálmar að ísland sé
komið í stjórnmálasamband við öll
þeirra utan rúmlega 30. Hins vegar
sé búið að hafa samband skriflega
við þau sem eftir eru og unnið er að
því að klára dæmið. „Það má reikna
með að ef allt gengur að óskum verð-
um við komnir í stjórnmálasamband
við öll rfldn á næsta ári,“ segir Hjálm-
ar.
Sigurður Kári sótti allsherjarþing SÞ
Greinilegt að Hjálmar kann
mjög vel til verka
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sótti
allshetjarþing Sameinuðu þjóðanna
í síöasta mánuði og hann gefur
Hjálmari W. Hannessyni góða eink-
unn sem baráttumanni fyrir sæti í
öryggisráðlnu. „Það er greinilegt að
Hjálmar kann mjög vel til verka á
vettvangi SÞ. Maður sá það á því
hvaða stórmenni töluöu við hann á
þinginu og hvemig þeir nálguðust
hann,“ segir Sigurður Kári.
Sigurður fýigdist meðal annars
með kosningu Dana í öryggisráðið
og hann segir að samstaða Norður-
landanna á þessum vettvangi eigi
eftir aö skila íslandi langleiðina í
ráðið. „Þar fyrir utan hefur Hjálm-
ar verið að láta til sfii taka í ýmsum
fastanefhdum SÞ með umræöu um
ýmsa málaflokka," segir Sigurður.
Og Siguröur nefriir eiimig þann
fjölda af ríkjum, einkum smáríkjum,
sem ísland er komiö í stjómmála-
samband viö á undanfömu ári.
„Þetta tel ég að hjálpi okkur mikið
við að ná kosningu í öryggisráðið,"
segir Sigurður. „Það er augljóst aö
Hjálmar spilar vel úr þeim
spilum sem hann hefur
áhendi."
- -