Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2004, Blaðsíða 7
DV Helgarblaö
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2004 7
Shriður á vinnslu Mvrarinnar
Bavaria meðframleiðandi
Reynir Lyngdal Mun fljótlega leggjc mikla verkefni að leikstýra kvikmynd byggir á Mýrinni. Þýska kvikmyndafyr Bavaria verður meðframleiðandi Sagr istíþað em rtækið íar.
„Nei, það er ekki búið að skipa í
hlutverk. Ég hef talað við einhverja
leikara og aðra ekki þannig að ekki
er tímabært að greina frá því,“ seg-
ir Reynir Lyngdal sem mun leik-
stýra kvikmynd sem er í burðar-
liðnum og byggir á bókinni Mýrin
eftir Arnald Indriðason.
Baltasar Kormákur staðfestir
það í samtali við DV að þýskt kvik-
myndafyrirtæki sem er eitt hið
stærsta og það elsta þar í landi,
Bavaria, muni koma að framleiðslu
myndarinnar. Er þá heldur betur
kominn skriður á vinnsluna og
senn líður að því að myndin fari í
tökur.
Nokkuð er liðið frá því fyrirtæk-
ið Sögn, í eigu Baltasars og Lilju
Pálmadóttur, tók ákvörðun um að
framleiða mynd sem byggir á þess-
ari frábæru glæpasögu Arnaldar.
Og víst er að margur miðaldra leik-
arinn bíður þess milli vonar og ótta
hvort ekki hlaupi á snærið hjá sér
því hlutverk löggunnar Erlendar
hlýtur að teljast með þeim bita-
stæðari. Um ár hefur farið í þróun-
arvinnu á handriti sem þeir Reynir
og Jón Atli Jónasson skrifuðu á sín-
um tíma sem og fjáröflun.
„Baltasar las handritið yfir og
Edward Weinman, sá hinn sami og
kom að handritsgerð Little Trip to
Heaven, leggur lokahönd á það.
Þetta er mikið strúktúrspursmál,
það að koma bókinni á hvíta tjald-
ið. Saga Arnaldar er sögð að veru-
legu leyti í hugsunum Erlendar
sem stöðugt er að pæla og sér
kannski fyrir sér nokkuð sem óorð-
ið er en gengur illa upp sjónrænt."
Mun Mýrin verða fyrsta mynd
Reynis í fullri lengd en við tekur
svo hryllingsmynd sem Pegasus
framleiðir og byggir á handriti
Reynis og Jóns Atla.
wm
Björk Jakobsdóttir Mjög mikilvægt er
fyrir frekari framgang verksins, sé til dæm■
is litið til Bandaríkjamarkaðar, að frum-
sýningin á Sellófan í Þýskalandi takist vel.
Sellófan í
Berlín
Sellófan, Leikrit Bjarkar Jakobs-
dóttur, fer um heiminn hratt og ör-
ugglega. Á þriðjudaginn verður
verkið frumsýnt i Örrebrú í Svíþjóð
en þangað kemst Björk ekki til að
vera viðstödd þvi hún hafði þegar
bókað sig til að vera viðstödd æf-
ingu á verkinu í Þýskalandi.„Það
er mjög mikilvægt að vel takist til í
Þýskalandi," segir Björk. Sellófan
verður frumsýnt 1. des i Leipsig og
þaðan fer verkið til Berlinar. Þetta
er svona að hætti Broadway-sýn-
inga. Keyra það aðeins utan miðj-
unnar áður en frumsýnt er þar.
Sellófan verður frumsýnt íSlóven-
iu en stóra markmiðið er vitaskuld
Bandaríkjamarkaður. Efverkið
nær þar i gegn má fara að tala um
Björk sem auðuga konu. Björk
sjálfsegir ekki tímabært að tjá sig
um hvernig gangi með að koma
því á bandarískt svið, hún hafi
lært i þessu ferli öllu, að óvarlegt
getur verið að tjá sig um ofáður
en allt er frágengið.„En það er i
lestri þar vestan hafs.“
Sellófan um heim allan Liggurvið að
fljótlegra sé að telja upp þau Evrópulönd
þar sem Sellófan hefur ekki verið tekið til
sýninga. Meðfylgjandi mynd er úr sýningu
verksins í Danmörku.