Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2004, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2004
Helgarblað DV
'S'/ltJ/'llbfUUtKfUt
Kanebo-púðrið
„Það er mér ómiss-
andi jafnt hvunndags
sem og þegar eitthvað
mikið eða minna stend-
ur til.“
Maskarinn
trausti
„Maskarinn minn
er lfá Estée Lauder heitir
MagnaScopic Maximum Volume
Mascara. Hann er þykkur, traustur og
gerir augnhárin þéttari. Hann er ekki
vatnsheldur en helst mjög
vel á augnhárunum
og klessist
ekki.“
heiti Wedge. Og ef maður á líka
svona MAC-pensil þarf maður
ekki að kunna að setja á sig
augnskugga, maður makar
honum bara á með pensli-
num og lítur
glæsilega út!“
Roðinn
og hreyst-
inn
„Kinnaliturinn
er líka frá MAC.
Hann gefur
hraustíegt og
gott útlit og útivistar
roða í kinnamar."
Skugganum makað á augn-
lokin
„Ljósbrúni
augnskugginn
minn er frá MAC,'
ég held að liturinn
Glansandi fín
„Þegar eitthvað stendur til set ég
gjarnan þetta
MAC-brons-
púður á
andlit,
bringu
handleggi.
Það gefur
fallegan gljáa og svolítinn lit.“
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er einn af þremur umsjónar-
mönnum unglingaþáttarins Óp á Rúv en hún er líka nemi í sjúkra-
þjálfun við Háskóla íslands og danskennari. Hún segist ekki vera
sérstaklega klár hvað snyrtivörur varðar. „En Elín Reynisdóttir
sminka er mér oft innan handar. Pabbi ól mig einn upp og við
ræddum snyrtivörur ekki sérstaklega, en áhugi minn á þeim hef-
ur komið svona með aldrinum. Og nú á ég barasta þokkalegustu
snyrtibuddu og get hjálpað mér sjáif. Daglega nota ég púður á
andlitið, maskara og stundum gloss, ef ég er að fara eitthvað fínt
bæti ég kannski bronspúðri, augnskugga og kinnalit við. Fyrir
upptökur og útsendingar á Ópinu tekur Elín sminka okkur í gegn
en þar sem þátturinn er hugsaður fyrir ungt fólk viljum við Þóra
Tómasdóttir ekki láta mála okkur of mikið, frekar virka bara eðli-
legar. En félaga okkar, Kristjáni I. Gunnarssyni, er meinilla við
þetta, hann vill helst ekki setjast í sminkstólinn en auðvitað verð-
ur maður að gera það vegna Ijósanna og hitans í stúdíóinu."
Þaö verður heldur betur stór dagur á morgun hjá hópi 70 ís-
lendinga sem taka þátt í New York-maraþonhlaupinu. Undir-
búningur hefur staðið yfir í þrjá mánuði og mikil stemning
er í mannskapnum. Matthildur Hermannsdóttir skipuleggur
ferðina og býst við að allir klári hlaupið.
hópsins saman kominn í fyrrakvöld, dag-
inn fyrir brottför. Það var hvíldardagur
hjá flestum og þvimættu einungis þeir
allra hörðustu til að hlaupa og einhverjir
skelltu sér ísund.
\ m0i - 'ám W?-'- Vf
fj vfteSkK ■ Á r J|1 Hluti New York-fara Hérsést hluti
„Það er mjög erfitt að komast inn
í hlaupið, einungis einn af hverju sex
kemst inn og það er því nokkuð gott
að svo margir íslendingar fái að vera
með að þessu sinni," segir Matthild-
ur Hermannsdóttir sem fer fyrir
hópi 70 íslendinga sem hlaupa í
New York-maraþoninu á morgun.
Alls taka 36 þúsund manns þátt í
hlaupinu, svo íslendingar geta verið
stoltir yfir því hversu marga fulltrúa
við eigum í ár. Matthildur segir það
öruggt að aldrei áður hafi svo marg-
ir íslendingar hlaupið í New York-
maraþoninu.
„Ég þykist reyndar geta fullyrt að
það hafi ekki svo margir íslendingar
farið áður saman út til iðkunar al-
menningsíþrótta," segir Matthildur
kokhraust.
Á aldrinum 21-64 ára
Stór hluti þessa 70 manna hóps
hleypur reglulega saman í Grafar-
vogi en öðrum var smalað saman af
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Matthild-
ur segist telja að um 90% þeirra
væru með mjög góðan grunn fyrir
hlaup af þessari stærðargráðu.
„Við erum svo búin að vera í æf-
ingaprógrammi síðustu þrjá mán-
uði. Við höfum verið að hlaupa þetta
frá 50 kílómetrum og sumir allt að
100 kílómetra á viku. Æfingar hafa
verið fimm til sex daga í viku. Á
sunnudaginn fáum við svo loks að
uppskera erfiðið," segir Matthildur
hress í bragði.
Eru þetta allt reyndir maraþon-
hlauparar með þér eða eru margir
að hlaupa ífyrsta skiptið?
„Þetta er mjög fjölbreyttur hópur,
ég held að það séu eitthvað um 30
hlauparar að fara sitt fyrsta mara-
þonhlaup. Þetta fólk er lrka á mjög
mismunandi aldri, allt firá 21 árs og
upp í 64 ára,“ segir Matthildur sem
sjálf er 52 ára. Aldursskiptingin í
hópnum virðist styðja það
fullkomlega að maraþon sé flokkað
sem almenningsíþrótt. „Það eru
mjög margir í kringum mig sem
segjast ekki hafa farið að njóta þess
að hlaupa fyrr en um fertugt," segir
Matthildur enn fremur.
Tvær milljónir áhorfenda
Matthildur hefur áður hlaupið
maraþonhlaupið í London og segir
Matthildur Hermannsdóttir
Skipuleggur ferð 70 Islendinga I
New York-maraþonið á morgun.
Matthildur er 52 ára og hefur
áður hlaupið maraþon I London.
það að mörgu leyti svipað hlaup.
„Það er jafn erfitt að komast í hlaup-
ið í London. Þetta eru bæði óskap-
lega skemmtileg hlaup, stemnings-
hlaup segja þeir sem til þekkja."
Hvað áttu við með stemnings-
hlaupi?
„Það er út af fjölda áhorfenda.
Það er sagt að það séu um tvær millj-
ónir áhorfenda á braut í New York-
maraþoninu. Við íslendingar, sem
fylgjumst með Reykjavíkurmara-
þoninu, erum kannski að sjá 3-400
áhqrfendur svo þetta er
svolítið öðruvísi."
Er þetta erfitt
hlaup?
„Já, þetta er
frekar erfitt
hlaup. Það er til
dæmis hlaupið
yfir brýr og fleira.
Það eru auðvitað
margir sem fara í
þetta hlaup til að
keppa, ef ekki við
aðra, þá við sjálfa
sig en það er
enginn
að
bæta sig í New York-maraþoninu.“
Eiga allir íslendingarnar eftir að
klára hlaupið?
„Ég er alveg sannfærð um það að
ef það kemur ekki eitthvað fýrir þá
klára allir. Fólk fer auðvitað á mis-
munandi tíma. Sumir hlaupa þetta á
undir þremur tímum en aðrir taka
sér meiri tíma og eru yfir fimm
klukkutíma."
Nóg af dauðum tíma eftir
helgi
Hvað fær fólk til að gera þetta,
hlaupa í fleiri klukkutíma og það
jafn veloftíviku?
„Þetta er bara svo ofboðslega
gaman, að hlaupa í góðra vina
hópi. Ég og vinkonur mínar
hittumst til dæmis alltaf á laug-
ardagsmorgnum og eyðum allt
frá einum og upp í þrjá klukku-
tíma í saumaklúbbi og að
hlaupa."
Þið eruð húin að æfa á fullu í
þrjá mánuði og hlaupið svo á
morgun. Verður ekki
spennufall þegar
þið komið heim?
„Já, ég er viss
um að við kom-
um til með að
nóg af
dauðum tíma
þegar við
komum aftur
heim. Maður
veit ábyggi-
lega ekki
hvað mað-
ur á af sér
að gera,
ætíi við
verðum þá
ekki bara
að finna
eitthvað
annað
hlaup."
hdm@dv.is