Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2004, Side 47
DV HelgarblaO
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 2004 47
Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
Elísabet Jökulsdóttir fær fyrsta Steininn
Ritlistarhópur Kópavogs ákvað i tilefni aftiu ára
afmæli hópsins og yfirvofandi hálfrar aldar afmæli
Kópavogs á komandi vori að heiðra rithöfund með
nýjum bókmenntaverðlaunum, STEININUM. Verð-
launin verða héðan í frá veitt árlega.
verðlaunin bera nafn Steins Steinarrs, eins for-
göngumanna formbyltingar i Ijóðheimi þjóðarinnar
og eins ástsælasta skálds hennar. Steinn bjó að vísu
aldrei i Kópavoginum en ævikvöldi sinu eyddi hann
í sunnanverðri Öskjuhlíð og sá Kópavoginn risa.
Hópurinn var samdóma að heiðra Elisabetu Krist-
ínu Jökulsdóttur fyrir starfá akri Ijóðs og lista, en
einnig fyrir framgöngu hennar og trú á orðinu og
veitti Elisabet verðlaunagripnum viðtöku í gær við
hátíðlega athöfn i hinu glæsilega Gerðarsafni.
Það var Kristján Hreinsmögur sem afhenti Elísa-
betu verðlaunagripinn og verðlaunafé. Birgir Svan
Símonarson hélt stutta tölu skáldkonunni til heið-
urs og sagði meðal annars:„Elísabet Jökulsdóttir er
firnagóður höfundur, það er engum efa blandið að
hún hefur gott vald á tækni Ijóðs og sagna, að mál
hennar er kjarnyrt og gáfur hennar skarpar. Eitt af
höfundareinkennum Elísabetar er hin óbilgjarna
krafa um heiðarleika í verkum hennar. Elísabet er
ótrúlega einbeitt og einörð og oft tekst henni að
tala beint úr djúpi sálarinnar er hún fremur galdur
sinn."
Elísabet hefur um langa hrið unnið í textagerð af
ýmsu tagi: leikrit, smásögur, örsögur og Ijóð. Hún
hefur jafnan gefið bækur sinar út sjálfog staðið í
sölu þeirra. Þá er hún kunn afopinskárri afstöðu til
margar brýnna samfélagsmála.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur starfsemi sína um miðjan mánuðinn með „lítilli“ hátíð sem
verður helguð íslenskum kvikmyndagerðarmönnum sem starfa erlendis.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur fyrir dagskrá í
Regnboganum, Háskólabíói og Listasafni Reykjavíkur - Hafnar-
húsi, dagana 17. - 24. nóvember. Dagskráin verður helguð rödd
íslendinga í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Sýndar verða sextán
kvikmyndir, fyrirlestrar verða haldnir um einstök málefni, um-
ræður og málþing.
Meðal mynda á dagskránni er
nýjasta kvikmynd Vestur-íslendings-
ins Guy Maddins, The Saddest Music
in the World, með Isabellu Rosselini í
aðalhlutverki og úrval nýlegra mynda
eftir íslensk-kanadíska leikstjórann
Sturlu Gunnarsson: Such a Long Jo-
umey, Rare Birds og heimildarmynd-
in Gerrie and Louise.
Berlín og Bergur
Ný kvikmynd Maríu Sólrúnar Sig-
urðardóttur, Jargo, sem fjallar um tvo
unglingspilta í Berlín er einnig á dag-
skránni. María er h'tið þekkt hér á
landi en hefur starfað í Berlín um ára-
bil. Jargo hefur vakið athygli í Evrópu,
var tilnefnd til norsku Amanda verð-
launanna, og vann til tveggja verð-
launa á kvikmyndahátíðinni í Sara-
jevo.
Á hátíðinni verður frumsýnd glæ-
ný heimildarmynd um Guðberg
Bergsson rithöfund eftir Helgu Brekk-
an sem býr og starfar í Svíþjóð. Mynd-
in nefnist Rithöfundur með mynda-
vél en um er að ræða „óformlega ævi-
sögu" skáldsins, en þar er notast við
kvikmyndað efni sem Guðbergur tók
sjálfur upp á Super-8 kvikmynda-
tökuvél yflr þrjátíu ára tímabil.
Ný heimildarmynd eftir Ólaf
Sveinsson, sem vakti þjóðarathygii
fyrir mynd sína um Hlemm, Schraage
Zeit, verður frumsýnd á kvikmynda-
hátíðinni og fjallar um kima og hrær-
ingar í Berlín á m'unda áratugnum. Þá
er þýska kvikmyndin Baunir kl. hálf
sex, sem Hilmir Snær Guðnason leik-
ur í, á dagskránni.
Höfðaborg og Palestína
Undir stjömuhimni nefnist ný
heimildarmynd eftir Helga Felixson
og Titti Johnson en Helgi hefur starf-
að lengi við kvikmyndagerð í Svíþjóð.
Fylgst er með suður-afrískri stúlku,
Friedu, sem er var eitt sinn popp-
stjama en býr nú á götunni í FJöfða-
borg og glímir við hart götulífið.
Hin skarpa útttekt Sólveigar
Anspach á stóra málverkarfölsunar-
máflnu er á dagskránni og Alive in'
Limbo, mynd Hrafnhildar Gunnars-
dóttur, Tinu Naccache og Ericu Mar-
cus um vonir og drauma ungmenna í
flóttamannabúðum í Líbanon.
Ný gamansöm kvikmynd Gunnars
Brilljant!
Það var hálfur salur á Ustinni að deyja i
fyrrakvöld. Synd, áhorfendur Kristjáns Ingi-
marssonar og Paolo Nanl voru ekki sviknir.
Sýning þeirra varyndisleg, hræðilega fynd-
in og frábær i alla staði. Restin afþjóðinni
missti því afdásamlegri óheftri og stund-
um stjórnlausri gleðistund / Þjóöleikhúsinu.
Sýningin var áhrifamikil áminning umað
spaug er ekkert djók, gamansemi með
slappstikk og trúðslátum er ekki fyrir byrj-
endur. Hér voru öll viðbrögð og svipbrigði
nákvæmnisverk, en virtust öll nýsprottinn.
Sýningin varstillt við hljóðrás, en ekkert
sagt nema já á stöku stað og atburðrás öll
fínlegt klukkuverk þarsem allt var stillt i
eina órjúfanlega heild. Manni varö
ósjálfrátt hugsað til gamansemi á Islensk-
um sviðum sem er oftast laus i rásinni,
groddaleg og stjórnlitil. Tveir leikarar fara
með skopatriöi um hermennsku, klæöa sig
úr búningum, fá sér að borða, undirbúa
dansatriði og flytja það, það slettist uppá
vinskapinn, annar fær bréfog er tilkynnt
hannhafi tvo slæma bletti í iunga, þriðja
atriðið er flutt, ennúer gamanið úr leikn-
um, þegar fyrsta atriðið er flutt öðru sinni
leysist það upp, gamaniö er úti. Einfalt var
það en samt fullt afhlýju, sprelli, átökum
og alvöru.
Þá er bara að hitta á óskastund og þeir
félagar komi aftur með þessa sýningu eða
aðrar sem þeir standa að, saman eða sitt I
hvoru lagi. Veri þeir ávallt velkomnir og
komi þeir aftur skaltu, lesandi góður, ekki
missa afþeim fyrir nokkurn mun.
Páll Baldvin Baldvinsson
Bjöms Guðmundssonar verður sýnd
og lýsir hún „listrænni" siðblindu
Frikka Frikk og kvikmyndagerðar-
mannsins dularfulla sem eltir hann á
röndum.
Þá verða sýndar tvær nýjar mynd-
ir frá Balkanskaganum, Mila from
Mars frá Búlgaríu og Beneath Her
Window frá Slóvemu, heimildar-
myndin Control Room og danska
bamamyndin Auga Óðins, þar sem
María Mac Dalland tvinnar saman
tónlist, myndlist, dansi og sagnalist.
Stjórnherbergið
Efnt verður til pallborðsumræðna
um heimildarmyndina Control Room
sem hefur vakið athygli að undan-
fömu en hún tekur á fjölmiðlaum-
fjöllun um íraksstríðið, og varpar ljósi
á ólíkar áherslur vestrænna, einkum
bandarískra, fjölmiðla og arabísku
fréttastöðvarinnar A1 Jazeera. Þátttak-
endur í umræðum um myndina
verða blaðamennimir Karl Blöndal,
Brynhildur Ólafsdóttir, Sigríður Víðis
Jónsdóttir sem heimsóttí Al-Jazeera
fréttastofúna í Katar, Jóhanna Krist-
jónsdóttir, Davíð Logi Sigurðsson og
Hjálmar Sveinsson sem stýrir jafn-
framt umræðum. Dagskrá helguð
bömum og kvikmyndum verður í
Listasafni Reykjavflörr og opið mál-
þing um kvikmyndahátíðir, kvik-
myndamenningu, og rödd íslands í
hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík er að hefja sitt fyrsta starfs-
ár, og nýtur til þess stuðnings rflcis,'
borgar og fleiri styrktaraðila. Fyrsta
stóra hátíðardagskráin verður haldin
snemma hausts árið 2005, en með
dagskránni í nóvember 2004 verður
leitast við að kynna framtíðarmark-
mið hátíðarinnar og skapa umræðu
um kvikmyndamenningu og íslenska
kvikmyndagerð í víðu samhengi.
Söngleikur eítir Keith Strchan, Leshe Stewart og Jeremy Paul, byggður á sögu H.C. Andersen
Sýning á laugardag kl. 14.00
og sunnudag kl. 13.00
í íslensku Óperunni.
Miðapantanir
í síma: 511 4200
Tilboð þessa helgi
Þeir sem að kaupa fjóra
miða eða fleiri fá að gjöf
bókina um litlu stúlkuna
með eldspýturnar.
Takmarkaður sýningafjöldi
m ----------------- w
DomusUox
„Kjörin fjölskyldusýning“
Jónas Sen gagnrýnandi hjá MorgunblaÍinu
,úkðalhlutverkið er í höndum
Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur
og óhætt er að segja að hún vinnur
hug og hjarta manns frá fyrstu
mínútu. Stúlkan syngur eins og
engill og er ófeimin við að gefa
af sér. Það er sjaldgæft að sjá og
heyra svona unga og óreynda
leikkonu leika og syngja af jafn
mikilli tilfinningu."
Valgeir Skagfjörð hjá Iréttabláðinu
ISLENSKA OPERAN