Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2005, Blaðsíða 12
72 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2005
Fréttir DV
Leoncie segir
granna
skrökva
Söngkonan
geðþekka frá San-
dgerði, Leoncie,
segir það ekki rétt
að hún hafi ásamt
manni sínum
Viktori Albertssyni
samið húsreglur
fyrir stuttu á ólög-
legum húsfundi eins og ná-
granni hennar sagði í blað-
inu í gær. „Ég er með þing-
lýsingarvottorð frá sýslu-
manninum sem sýnir að
þetta rugl í Inga Þór Hall-
grímssyni [nágrannanum],
sem segir að ég hafi gert
þetta einhliða rétt áður en
hann flutti inn, er rangt,"
segir Leoncie sem segist
vera að veija framhlið
hússins sem tilheyri hennar
íbúð. „Þetta fólk lýgur þeg-
ar það segir annað," segir
Leoncie.
Rúmlega 20
til Brussel
Nú stefnir í að rúm-
lega tuttugu fulltrúar
sveitarfélaga fari í kynn-
ingarferð til höfuðstöðva
Evrópusambandsins í
Brussel. Að sögn önnu
Guðrúnar Bjömsdóttur
hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga er meðal
annars ætlun fslending-
anna að fá kynningu á
starfi Evrópusambands-
ins og því hvernig hags-
munagæsla sveitarfélag-
anna gagnvart samband-
inu er háttað. Arni Þór
Sigurðsson borgarfulltrúi
hefur verið í Bmssel frá
áramótum að kanna
hvort hagstætt sé fýrir
íslensk sveitarfélög að
hafa opna skrifstofu á
staðnum til framtíðar.
Landsmót
undirbúið
Vinna er hafin við íþrótta-
völlinn í Vík vegna unglinga-
landsmóts
UMFÍ sem
haldið verður í
Vik um verslun-
armannahelg-
ina. Þetta kem-
ur fram á vik.is. Þar segir
nánar að verið sé að skipta
um jarðveg undir hlaupa-
brautum og bflastæðum og
koma upp jarðvegsmönum
umhverfis völlinn. Segja
heimamenn völlinn sjálfan
þegar tekinn að grænka þó
enn sé vetur eins og sést af
meðfylgjandi ljósmynd af
heimasíðu hreppsins.
an úr Eyjum,"segir Jón Pét-
ursson, sálfræðingur í Vest-
mannaeyjum.„Vertíðin er bú-
inog
menn
Landsíminn
bara að blöa eftirnæstu törn.
Bráðum fara túristarnir að
láta sjá sig. Veðrið er umhleyp-
ingasamt eins og alltafá þess-
um árstíma en hefur verið
með betra móti. Það er farið
að styttast í vorið og golfvöll-
urinn er farinn að taka við sér.
Maður horfir spenntur til sum-
arsins. Þegar sólin skín inni á
milli fermann að klæja."
Árið 1996 skaðbrenndist sonur Bjarna Óskars Halldórssonar þegar hann datt í
hverinn Kraflanda. Á föstudaginn voru syninum dæmdar rúmar níu milljónir auk
vaxta í skaðabætur. íslenska ríkið, Orkubú Vestfjarða og Þörungaverksmiðjan
voru dæmd til að greiða bæturnar. Enginn virðist vilja bera ábyrgð á hvernum
sem hefur enn ekki verið girtur af. Bjarni segir son sinn hafa hlotið skaða sem
hann muni bera ævilangt.
Sonurinn skaöbrenndisl í
hver sem enginn
vill bera ábyrgö á
Sonur Bjarna Óskars Halldórssonar datt ofan í hverinn
Kraflanda árið 1996 og brenndist mikið. Honum voru dæmdar
rúmar níu milljónir í skaðabætur á föstudaginn. fslenska ríkinu
var gert að greiða bæturnar auk Orkubús Vestfjarða og Þörunga-
verksmiðjunnar en síðari tveir aðilarnir segjast ekki bera ábyrgð
á hvernum.
„Hann brenndist alveg frá rassi
niður á fótlegg vinstra megin og svo
á hendi. Hann var á spítala í 102
daga og fór í um þrjátíu svæfingar,"
segir Bjarni Óskar um son sinn sem
heldur upp á tólf ára afmæli sitt í
dag. „Hann mun bera andlegan
skaða alla ævi. Það fyrsta sem mað-
ur hugsar við svona aðstæður er að
barnið manns sé á lífi, svo vill mað-
ur alltaf meira og meira og hættir
aldrei."
Plástur á sárin
Sonur Bjarna var fluttur með
þyrlu Landhelgisgæslunnar í bæinn
og dvaldi á gjörgæsludeild í ein-
hvern tíma. „Þetta hefur eðlilega
haft heilmikil áhrif á hans eðlilega
þroska en hann hefur þó dafnað
ágætlega," segir Bjarni. Syni Bjarna
voru dæmdar rúmar níu milljónir
auk vaxta í skaðabætur. „Eins og
kemur fram í dómnum hefur þetta
skert tekjuhæfi hans að einhverju
leyti og þetta eru auðvitað talsverðir
peningar. En í reyndinni er þetta að-
eins smá plástur á það sem hann
hefur þurft að þola.“
Gáleysi foreldra
Þegar þriggja ára sonur Bjama
féll í sjóðandi hverinn var hann með
eflefu ára bróður sínum. f dómnum
er talað um gáleysi foreldra með því
að senda strákana eina út á svæði
Þörungaverksmiðjan Segist ekki bera
neina ábyrgð á hvernum Kraflanda.
sem byði upp á slíka hættu. „Það var
helsta aðferð verjanda að leggja slík
rök fram og við áttum alveg eins von
á því. En í reyndinni held ég að börn
myndu þroskast seint ef þau fengju
ekki að fara út,“ segir Bjami sem
vissi ekki af umræddum hver þó
hann væri ýmsu kunnugur á svæð-
inu.
Ekki afgirt svæði
Engar merkingar vom á svæðinu
sem vömðu við hættunni. Slysið
varð árið 1996 en þó hefur hvernum
enn ekki verið lokað. „Þetta er
spurningin um hver á hvað. Það
hafa verið settar einhverjar tuskur
þarna til þess að þétta vatnssöfnun
en í hvaða tilgangi það er veit ég
ekki," segir Bjarni.
Bjarni Óskar Halldórs
son Segir son sinni hafa
hlotið skaða sem hann
muni bera ævilangt.
„Við erum með
nokkrar borholur á
svæðinu en höfum
ekki talið okkur
bera ábyrgð á þess
um tiltekna hver."
Enginn vill bera ábyrgð
Kristján Haraldsson hjá Orku-
búi Vestfjarða segir dóminn
hafa komið sér á óvart.
„Við erum með nokkr-
ar borholur á svæð-
inu en höfum ekki
talið okkur bera
ábyrgð á þessum
tiltekna hver,"
segir Kristján.
Halldór Ó.
Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri Þör-
ungaverk-
smiðjunnar,
tekur 1 sama
streng. „Við
berum ekki
ábyrgð á
þessum
hver. Þetta
er háhita-
svæði en
ekki bara
einhver
einn hver.
Mér fannst
dómurinn
ekki alveg
skoða það
nógu vel.
Við eigum
eftir að fara
yfir dóminn
og það verður
kannski eitt-
hvert framhald
á þessu máli,“
segir Halldór að
lokum.
breki@dv.is
Móðir úrkula vonar um hjálp fyrir dóttur sína
Systir Kalla Bjarna send aftur á götuna
Sveinbjörg Karlsdóttir, móðir
Idolstjörnunnar Kalla Bjarna, sagði
frá því í síðustu viku að úrræði væru
í sjónmáli fyrir dóttur hennar,
Fjólu, sem á við alvarlegan fíkni-
efnavanda að stríða. Sveinbjörg
hafði leitað á náðir stjórnvalda og
var það Margrét Frímannsdóttir
þingmaður sem gekk í málið,
„Núna er allt að gerast," sagði
Sveinbjörg í samtalinu 1 síðustu
viku. Þegar blaðamaður hafði sam-
band til að athuga með framgang
mála var komið annað hljóð í
strokkinn.
„Þetta er allt komið í stóran
hnút. Læknirinn skoðaði hana og
svo var henni bara sleppt, hann
sagði ekki ástæðu til að vista hana,“
segir Sveinbjörg sem þurfti að
benda lögreglu á hvar Fjóla héldi til
til að hægt væri að koma henni
nauðugri undir læknishendur. Nið-
urstaða læknisins kom henni í opna
skjöldu þar sem augljóslega er
ástæða til að hún fái viðeigandi
meðferð.
Fjóla var greind með geðklofa
fyrir nokkrum árum en læknirinn
sem skoðaði hana sá ekki að það
væri ennþá vandamál. „Hins vegar
sagði hann að hún þyrfti ef til vill á
langtímameðferð að halda en það
er bara ekki í boði fyrir svona sjúk-
linga. Ég veit ekkert hvar Fjóla er
núna, hún kemur allavega ekki til
mín. Bæði er ég húsnæðislaus og
svo vill hún ekki vera hjá mér því ég
krefst þess að hún sé reglusöm.
Hún er núna ekkert nema skinn og
bein því hún borðar ekki, neytir
einskis nema fíkniefna," segir
Sveinbjörg. Hún segist stundum
vera dofin fyrir þessu öllu saman en
ef hún er ein og hefur ráðrúm til að
hugsa fer hún að velta sér upp úr
því hvar Fjóla sé og hvernig þetta
muni enda. „Málið er bara í bið-
stöðu núna. Ætli það verði ekki í
biðstöðu þar til ég þarf að jarða
hana."
Sveinbjörg með mynd af Fjólu Vonin
glæddist Isíöustu viku þegar hjálp virtist
handan við hornið.