Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2005, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Jóhannes Páll átti auðvelt með
að tjá sig og hreifmeð sér lýðinn
llktog mikilmenna erháttur.
Jóhannes þótti hins vegar
fullihaldssamur og ekki i takt
við timann.
„Ég þekki nú lítið til hans persónu-
lega en ég heffylgst með honum i
fréttum og þannig. Ég myndi segja
að hans helsti kostur hafi verið i
boðskap hans, það er frið-
ar-og jafnræðisboðskapur
hans og líka velferðarboð-
skapur hans. Þvi er hins
vegarekkiað neitaað
hann var íhaldssamur i boði trúar
sinnar en ég er kannski ekki maður
til að meta réttmæti þess."
Steingrímur Hermannsson, fyrrv. forsætis-
ráöherra
„Hann var áræðanlega yfirburða-
maður og hafði ótvíræða kosti og
lika mikla galla eins og slikir menn
hafa gjarnan. Hann vargreindur
og hafði mjög skarpa sýn á samtið
sína og heiminn, mikill trúmaður
og bænamaður. Hann átti auðvelt
með að tjá trú sína og skoðanirog
miðla hugsun sinni þannig að eftir
var tekið. Hann hreiffólk með sér
bæði almenning og aðra jafnvel_
þóað skoðanir hans væru
ekki i takt við timann eins
og sagt er. Það er erfitt að
segja til um galla hans en
heimurinn fór kannski fram
úr honum. Hann hélt fram þröng-
sýnniafstöðu sém að eftirmaður
hans og kaþólska kirkjan þurfa að
taka á eins og samskipti kaþólsku
kirkjunnar við umheiminn, menn-
inguna og aðrar kirkjur."
Karl Slgurbjörnsson blskup Islands
„Ég hitti páfann þegar hann kom
til Islands árið 1989 en ég var ihópi
þeirra íslensku presta sem tóku á
móti honum. Þegar við vorum á
leiðinni til Þingvallakirkju i messu
kom páfmn og spurði hvort hann
mætti koma með okkur I rútunni.
Það var alveg sjálfsagt enda alltaf
pláss fyrir páfa.Hann sagði hins
vegar ekki eitt orð á leið-
inni en ég held að hann
hafí alveg vitað hvað
hann var að gera þvl dag-
inn eftirkom það náttúru■
lega iblöðunum að páfmn hefði
farið í rútuna með lúthersku prest-
unum. Ég sá hann sem mann sem
gjarnan vildi vera I tengslum við
aðra og mann sem llka kunni að
haga sér varðandi fjölmiðla, hann
vissi hvað hannvarað gera."
ólafur Skúlason biskup
KarolJósefVojtyla fæddist 18.maí 192ÖÍ borg-
inni Wadovici í Póllandi. Karol var kjörinn páfí
16. október 1978 og settur i embætti 22. októ-
ber sama ár og hlaut þá nafniö Jóhannes Páll
páfi II. Jóhannes Páll páfí II rlkti sem páfí allt til
dauöadags 2. apríl 2005.
Númeraböðull
gripinn
Lögreglunni í Keflavík barst
tilkynning um að ungur piltur í
Njarðvíkum væri að gera sér að
leik að rífa skráningamúmer af
bifreið á miðvikudagskvöldið.
Þegar lögreglan kom á staðinn
var drengurinn hins vegar horf-
inn, en vitni af gjörningum gátu
gefiö greinagóða lýsingu á pilti
og hafði
lögreglan
uppi á
honum
og skrán-
ingar-
númerinu sem komið var til
eiganda bifreiðarinnar. Ekki er
vitað hvað pilti gekk til.
Landssímarán, Líkfundarmálið og hand-
rukkarar 1 Hæstarétti i april. Þetta eru
þrjú af eftirtektarverðum málum sem
dómararnir takast á við næsta mánuð-
inn. Auk þess verða til meðferðar mál
Kjartans Ólafssonar, sem slapp við refs-
Stórn málin li
ingu fyrir að berja sambýliskonu, mál
Gunnars Arnar Kristjánssonar sem var
sýknaður af lögbrotum sem endurskoð-
andi, mál lögregluforingjans Halls Hilm-
arssonar og fikniefnasmygl bræðranna
Davíðs Ben og Rúnars Ben Maitsland.
Kjartan Ólafsson Kemurí
Ijós h vort Hæstiréttur sleppir
honum lika við refsingu fyrir
að misþyrma eiginkonu.
Andri Már Gunnarsson
Unglambið á Hrauninu fer
J fyrir æðsta dómstólinn.
Landssímamenn Árni Þór,
Kristján Ra. og Ragnar Orri i
héraðsdómi. Fara fyrir
Hæstarétt Inæstu viku.
Hallur Hilmarsson
Dóplöggan fékkþung-
an dóm i héraðsdómi.
jón Árni Rúnarsson Sýknaður
afstórum fjárdrætti, spurning
hvað dómarar Hæstaréttar gera
Pipulagningamaður á barmi örvæntingar eftir hörmulegt vinnuslys í KB banka
Dómur féll í gær í máli pípulagninga-
mannsins Svavars Guðmundssonar gegn
KB banka. Svavar meiddist illa í vinnuslysi
árið 2002 þegar hann féli af vinnupalli í for-
dyri Kaupþings Búnaðarbanka við Austur-
stræti 5. Svavar varð 75% öryrki eftir slysið
en beið jafnframt andlegan skaða. Fjármál
hans fóru í rúst og hann sá engan tilgang í
lífinu.
„Á endanum gekk ég niður að sjó og ætl-
aði að enda þetta allt saman,“ segir Svavar.
„Vegna kuldans gekk ég hins vegar áfram
og fann mig skyndilega þar sem ég stóð fyr-
ir framan hús Geðhjálpar á horni Garða-
strætis og Túngötu."
Kraftaverk. Þangað fór Svavar og bjarg-
aðist. Síðar fann Svavar trúna í Kristkirkju
hjá séra Friðriki Schram og lifir nú í sátt við
guð og menn. Svavar tekur þátt í starfi safn-
aðarins og líkar vel.
Málið fyrir héraðsdómi tapaðist hins
vegar. Dómurinn taldi bankann ekki ábyrg-
an fyrir vinnupallinum heldur fyrrum
vinnuveitenda Svavars sem nú er gjald-
þrota. Svavar segist auðvitað ekki sáttur við
dóminn. „En svona er lífið," bætir hann við.
Vildi svipta sig lífi í kjölfar vinnuslyss