Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2005, Qupperneq 18
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005
Sport DV
.«Ö^"Vernl9er 1»*
Farið að gera eitt-
hvað, iðjuieysingar!
Jose Mourinho fer ekki fögrum
orðum um þá fyrrverandi þjálfara sem
hafa snúið sér að vinnu sem pistla-
höfundar eða sjónvarpslýsendur.
„Þegar ég sagðist vilja vinna titilinn á
heimavelli, sem þýðir að við verðum
að vera búnir að tryggja okkur hann
fyrir svo síöustu leiki tímabilsins, þá
varð íjandinn laus. Fyrirsagnir sem
innihéldu „hrokafullur" voru enda-
lausar og gagnrýni margra í knatt-
spyrnuheiminum vörðu í marga daga.
Verstir eru þjálfarar sem hafa verið
reknir sem standa í slíku. Það er besta
starfíheimiaðverarekinnþjálfari því
þá virðist maöur geta gagnrýnt aðra
og sinnt öllum sínum þörfum. Mín
skilaboð til þeirra eru: Farið að gera
eitthvað iðjuleysingar!" sagði Mour-
inho harðorður.
Drogba skorar Sóknarmaðurinn frá
Fílabeinsströndinni bjargaði Chelsea
frá vandræðalegu tapigegn Birming-
ham og á þessari mynd sést hann setja
boltann i bláhornið.
jJ-Y •’v
ZLi'úá
URVALSDEILD
ENGLAND
Blackburn-Southampton 3-0
1- 0 Morten Gamst Pedersen (11.),
2- 0 Andreas Jacobsen, sjálfsmark
(48.), 3-0 Steven Reid (55.).
Bolton-Fulham 3-1
1-0 Jay Jay Okocha, vítí (13.), 2-0
Kevin Nolan (33.), 2-1 luis Boa
Morte (47.), 3-1 Stelios Gianna-
kopoulus (54.).
Chelsea-Birmingham 1-1
0-1 Walter Pandiani (65.), 1-1
Didier Drogba (82.).
Man. City-Liverpool 1-0
1-0 Kiki Musampa (89.).
Middlesbrough-Arsenal 0-1
0-1 Robert Pires (73.).
Portsmouth-Charlton 4-2
1-0 Aiyegbení Yakubu (3.), 2-0
Steve Stone (20.), 2-1Jonathan
Fortune (22.), 2-2 Danny Murphy
(45.), 3-2 Diomanzy (83.), 4-2
Lomana Tresor Lua Lua (90.).
Norwich-Man. Utd. 2-0
1 -0 Dean Ashton (55.), 2-0 Leon
McKenzie (66.).
Aston Villa-WBA
1 -0 Darius Vassel (27.), 1-1 Paul
Robinson (90.).
Everton-Crystai Palace
1-0 Mikel Arteta (7.), 2-0Tim Cahill
(47.), 3-0 Tim Cahill (54.), 4-0 James
Vaughan (87.).
Tottenham-Newcastle
1-0 Jermaine Defoe (42.).
Staðan
Chelsea 32 25 6 1 62-12 81
Arsenal 32 21 7 4 73-33 70
Man Utd 32 1910 3 48-19 67
Everton 32 16 6 10 39-33 54
Liverpool 32 15 5 12 44-32 50
Bolton 32 14 7 11 41-36 49
Tottenham32 13 7 12 39-35 46
M'Boro 32 12 9 11 45-43 45
Charlton 32 12 8 12 39-48 44
A. Villa 32 11 9 12 38-40 42
Chelsea þarf aðeins sex stig úr síðustu sex leikjum sínum til að
tryggja sér fyrsta meistaratitil félagsins í hálfa öld. Arsenal heldur
fast í annað sætið, en Manchester United á í miklum erfiðleikum.
Fergnson ekki
reiðari í sjö ár
Arsenal vann mikilvægan sigur á Middlesbrough um helgina og
stendur vel að vígi í baráttunni um annað sætið í deildinni sem
gefur sjálfkrafa sæti í Meistaradeildinni að ári, því Manchester
United steinlá fyrir botnliði Norwich, 2-0 og Alex Ferguson neit-
aði að tala við fjölmiðla eftir tapið. Chelsea-hraðlestin hægði
ferðina þegar liðið náði aðeins jafntefli gegn frísku liði Birming-
ham.
M'Boro 32 12 9 11 45-43 45
Charlton 32 12 8 12 39-48 44
A.Villa 32 11 9 12 38-40 42
Man.City 32 101012 38-36 40
Newcast. 31 9 1111 41-49 38
Birmingh. 32 9 1013 35-39 37
Blackburn 32 8 1212 28-37 36
Portsm. 32 9 7 16 37-51 34
Fulham 31 9 6 16 37-51 33
WBA 32 5 1314 31-52 28
S'mpton 32 5 1215 34-51 27
C. Palace 32 6 8 18 33-54 26
Norwich 32 4 11 17 32-63 23
Markahæstir:
Thierry Henry, Arsenal 25
Andrew Johnson, Crystal Palace 18
Jermain Defoe. Tottenham 13
Jimmy Floyd Hasselb., M'boro 11
Robert Pires, Arsenal 11
Aiyegbeni Yakubu, Portsmouth 11
Eiður Guðjohnsen, Chelsea 10
Fredrik Ljungberg, Arsenal 10
Robbie Keane, Spurs 10
Robert Earnshaw, WBA 10
Didier Drogba, Chelsea 10
Andy Cole, Fulham 10
Frank Lampard, Cheisea 9
Robbie Fowler, Man. City 9
PeterCrouch, Soton 9
Wayne Rooney, Man. Utd. 9
Milan Baros, Liverpool 9
Tim Cahill, Everton 9
Alex Ferguson, stjóri Man.Utd.,
var svo reiður eftir tapið niður-
lægjandi gegn Norwich að hann
treysti sér ekki til að ræða við
fjölmiðla að leik loknum. Á meðal
þeirra sem urðu að horfa á eftir
viðtali við skotann síunga var Man.
Utd. sjónvarpsstöðin, sem fengið
hefur viðtöl frá Ferguson eftir hvern
einasta leik frá því hún fór fyrst í
loftið fyrir sjö árum. Ferguson
neitaði þannig sjónvarpsmönnum
eigin félags um viðtal.
Þrátt fyrir að stjórna leiknum
og tjalda öllu í sókninni náði
United ekki að yfirstíga vörn
Norwich. Dean Ashton og
Leon McKenzie skoruðu
mörk heima-
manna og
Nigel
Gobbidí, gobbidí, gobbidf
Robert Pires tók Ashley Cole á
háhest eftir að hafa skorað
eina markið gegn Middles-
brough um helgina.
Worthington var kátur með sína
menn í leikslok.
„Við fórum í þennan leik með
það fyrir augum að sigra, eins og
við förum inn í alla aðra leiki. Ég var
búinn að væla um það alla vikuna
að mínir menn spiluðu fastar og
þeir gerðu það í dag og uppistaðan
var glæsilegur og sannfærandi sig-
ur,‘‘ sagði Worthington.
Kollegi hans hjá
Manchester
United, Sir Alex
Ferguson, var
skiljanlega ekki
jafn ánægður
með úrslitin og
neitaði að tala
við blaðamenn
eftir leikinn og
mætti ekki á blaða-
mannafund, enda
hefði sjálfsagt verið fátt
um svör hjá honum
_ t miðað við
fc'Æ* fy frammistöðu
sinna manna.
Chelsea
annars
hugar
Liðsmenn
Chelsea buðu
ekki upp á merki-
lega knattspyrnu
þegar þeir tóku á
móti Birmingham á
heimavelli sínum og
virkuðu daufir eftir
s átökin í Meistaradeild-
inni í vikunni. Eftir afar
bragðdaufan fyrri hálf-
leik hresstust heimamenn
eilítið, með nýkosinn
leikmann mánaðarins,
Joe Cole, sem sinn
besta mann. Læri-
sveinar Steve
Bruce áttu þó
svar við öllum
brögðum
„Ég var bú-
inn að væla um
það alla vikuna að
mínirmenn spiluðu
fastar og þeir gerðu
það i dag."
Chelsea og sló þögn á áhorfend-
ur á Stamford Bridge þegar Walt-
er Pandiani kom þeim yfir í síðari
hálfleiknum. Chelsea náði að af-
stýra fyrsta tapi sínu á heima-
velli í deildinni, þegar Didier
Drogba jafnaði leikinn átta
mínútum fyrir leikslok og þar
við sat.
Jose Mourinho var ekki
ánægður með sína menn í
leikslok og kenndi álagi um
ófarirnar. „Mínir menn léku
ekki vel í dag og virkuðu þreytt-
ir, enda eru þeir ekki vélmenni, þeir
þurfa sína hvíld,“ sagði Mourinho.
„Strákarnir mínir börðust vel og þó
við hefðum þegið að taka öll stigin
getur ekkert lið kvartað yfir því að
ná jafntefli á þessum velli," sagði
Steve Bruce, knattspyrnustjóri
Birmingham.
Arsenal heppnir
Arsenal hélt sínu striki um helg-
ina þegar liðið gerði góða ferð til
Middlesbrough og stal sigrinum,
1-0. Það var Frakkinn Robert Pires
sem skoraði sigurmarkið í síðari
hálfleik og vildi Steve McClaren,
knattspyrnustjóri Middlesbrough,
meina að meistararnir hefðu verið
heppnir að vinna leikinn.
„Mínir menn gerðu nákvæmlega
það sem ég lagði upp með og léku
frábærlega. Þess vegna er ég enn
ekki búinn að skilja hvernig við fór-
um að því að tapa þessum leik. Þetta
var algjört heppnismark hjá þeim,“
sagði stjórinn vonsvikinn. Arsene
Wenger var honum ekki sammála,
en tók sér þó tíma til að hrósa
mótherjum sínum; „Middlesbrough
lék skipulagða og góða knattspyrnu í
dag, en að mínu mati áttum við skil-
ið að vinna frekar því við stjómuð-
um leiknum," sagði sá franski.
baldur@dv.is
Liverpool
annars hugar
Leikmenn Liverpool voru
aðeins skugglnn af því sem þeir
vom í leiknum gegn Juventus í
Meistaradeildinni á miðviku-
daginn og töpuðu um helgina
gegn Man.City. Það var Kiki
Musampa sem skoraði sigurmark
City, sem hefúr leikið mun betur
eftir að Stuart Pearce tók við
stjómartaumunum. Everton jók
forystu sína í 4. sætinu með
stórsigri á Crystal Palace í gær og
nú er Bolton aðeins stigi frá
Liverpool. Fram undan er því
hörð barátta um síðasta sætið
sem gefúr sætið í Meistara-
deildinni.
„Ég veit ekki af hverju við
erum svona óstöðugir. F.inn
daginn erum við betri en allir en
annan erum við á við neðri
deildar lið. Ég skil það 6100,“
sagði Rafael Benitez eftir leilrinn