Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2005, Page 37
DV JJByk MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 37
Áttunda plata Manchester-sveitarinnar New Order, Waiting For The Siren’s Call,
kom út fyrir nokkrum dögum. Trausti Júlíusson rifjar upp sögu sveitarinnar sem
er 25 ára um þessar mundir, en eins og kunnugt er breyttist hljómsveitin Joy
Division í New Order eftir aö söngvarinn Ian Curtis hengdi sig í maí 1980.
„í hvert sinn sem ég sem lag þá
hugsa ég: Hvemig förum við að
þessu?" segir Bemard Sumner gítar-
leikari og söngvari bresku hljóm-
sveitarinnar New Order í nýlegu við-
tali. „Ég meina, við erum búnir að
vera í Joy Division/New Order í meira
en 25 ár og við höfum ekki enn hug-
mynd um hvað við erum að gera. Það
er dagsatt. Við sitjum bara og spilum
eitthvað út í loftið þangað til galdur-
inn gerist."
New Order var að senda frá sér
sína áttundu plötu, Waiting For The
Siren’s Call, sem er þeirra fyrsta plata
síðan endurkomuplatan Get Ready
kom út fyrir tæpum fjórum árum.
Nýtt nafn, ný tónlist
New Order varð til þegar ferill
hljómsveitarinnar Joy Division end-
aði á snöggan og sviplegan hátt með
sjálfsrnorði söngvarans Ian Curtis.
Bassaleikarinn Peter Hook, gítarleik-
arinn Bemard Sumner og trommu-
leikarinn Stephen Morris stóðu þá
frammi fyrir því að ákveða hvort þeir
ættu að halda áffarn eða hætta. Þeir
völdu fyrri kostinn, en bjuggu til nýja
hljómsveit með nýju nafni og héldu á
nýjar tónlistarslóðir.
Tónlist Joy Division var bæði
drungaleg og hrífandi. Söngur og
textar Ians áttu mjög stóran þátt í því
að skapa þann sérstaka og sterka stíl
sem einkenndi hana. Hjá New Order
var yfirbragðið léttara og sveitin tók
tæknina í sína þjónustu í auknu
mæli, - rafrænir grunnar og synta-
sánd vom áberandi.
Velgengni og niðurtúr
New Order náði miklu meiri vin-
sældum heldur en Joy Division. Lag-
ið Blue Monday sló í gegn út um ail-
an heim árið 1983 og plötur sveitar-
innar fóm flestar á topp breska vin-
sældarlistans. Þegar danstónlistin
hóf innreið sína í Bretlandi árið 1987
þá varð New Order sjálfkrafa hluti af
þeirri hreyfingu.
Hljómsveitin var á meðal eigenda
Hacienda-klúbbsins í Manchester og
tónlistin hennar þróaðist lengra og
lengra í átt að teknóinu. Á fimmtu
New Order-plötunni, Technique,
sem var tekin upp á Ibiza var til
dæmis hreinræktuð danstónlist.
Eins og sjá má í kvikmyndinni 24
Hour Party People þá var saga New
Order mjög tengd sögu Factory-
plötufyrirtækisins. Þegar halla tók
undan fæti hjá Factory og Hacienda-
klúbbnum þá fór líka að halla undan
fæti hjá New Order. Meðlimir sveitar-
innar vom líka mjög duglegir í
djamminu og það tók sinn toll. Fyrstu
ár tíunda áratugarins vom stöðugur
niðurtúr hjá New Order og eftir að
hafa spilað á Reading-hátíðinni 29.
ágúst 1993 hætti hún störfum. Menn
vom búnir að fá nóg af tónleikaferð-
um, sukki og peningaóreiðu og miklu
meira en nóg hver af öðrum.
Tvö ár í vinnslu
Árið 1998 ákváðu meðlimir New
Order að koma saman aftur til að
spila á nokkrum tónleikum. Það gekk
nógu vel til þess að sveitin hélt áfram
og gaf út plötuna Get Ready árið
2001. Tónlistin á henni var afturhvarf
til einfaldari og rokkaðri hluta. Á
henni var gítarinn orðinn áberandi
aftur.
Nýja platan var unnin á tveimur
árum. Lögin á henni vom samin á
sveitabænum þar sem Stephen
Morris og Gillian Gilbert eiginkona
hans og fýrrverandi hljómborðsleik-
ari New Order búa í nágrenni
Manchester. Gítarinn er enn áber-
andi, en í sumum laganna em dans-
tónlistaráhrifin komin í forgrunninn
aftur. Platan var gerð með upptöku-
stjómnum Stephen Street, John
Leckie og Stuart Price (betur þekktur
sem Jacques Lu Cont). Gestasöng-
konumar Dawn Zee (úr Jersey Street)
og Ana Matronic (úr Scissor Sisters)
koma við sögu í nokkmm laganna.
Eru að nálgast fimmtugt
Waiting For The Siren’s Call ætti
að falla í kramið hjá New Order aðdá-
endum. Hún er í anda fyrri verka
sveitarinnar, en liljómar samt fersk
og sannar að gömlu pönkaramir
(sem em að nálgast fimmtugt) em
enn hressir. Þegar Peter Hook var
spurður að því í viðtali nýlega hvort
hann héldi að sveitin yrði starfandi
lengi enn þá vitnaði hann í gamla
Factory-stjórann Tony Wilson sem
kom einhvemtíman með þessa
kenningu: „Ástæðan fyrir því að New
Order heldur áfram er að hún hefur
ekki enn gert lélega plötu." Ef sú
kenning stenst þá hættir New Order
ekki íbráð...
loy
Divtson/New Order
1976 lan Curtis söngvari, Bernard
Sumner gftarlelkari, Peter Hook bassa-
leíkari og Steve Brotherdale trommu-
leikari stofna hljómsveitina Stiff
Kittens.
29. mai 1977 Fyrstu tónleikarnir í El-
earic Circus (Manchester. Nafninu
hefur verið breytt (Warsaw eftir einu
laganna á plötu David Bowie, Low.
Ágúst 1977 Steve hættir og Stephen
Morris tekur við á trommunum.
Desember 1977 Nafninu breytt í Joy
Division (eftir deild (fangabúðum nas-
ista) til þess að forðast rugling við
Lundúna-pönkhljómsveitina Warsaw
Pact.
Jún( 1978 Fyrsta plata sveitarinnar,EP-
platan An Ideal For A Living, kemur út.
Maí 1979 Hljómsveitin og umboðs-
maðurinn Rob Gretton hafna tilboði
frá WEA-stórfyrirtækinu og gera samn-
ing við óháðu útgáfuna Factory
Records.
Júlí 1979 Fyrri plata Joy Division,
Unknown Pleasures, kemur út.
Október 1979 Fyrsta tónleikaferðin
sem upphitun fyrir Buzzcocks.
April 1980 Smáskffan Love Will Tear
Us Apart kemur út en vekur litla at-
hygli.
18. maí 198 lan Curtis hengir sig.
26. júlf 1980 Love WillTear Us Apart
kemst (13. sæti breska listans.
29. júlf 1980 New Order spila sfna
fyrstu tónleika á Beach-klúbbnum (
Manchester.
Ágúst 1980 Seinni plata Joy Division,
Closer, kemur út. i
Október 1980 Gillian Gilbert kærasta
Stephen Morris gengur (hljómsveitina
sem hljómborðsleikari. Hún var áður (
kvennapönkhljómsveitinni Inadequ-
ates.
Mars 1981 Fyrsta smáskífa New Order,
Ceremony, kemur út
Desember 1981 Fyrsta stóra platan
Movement kemur út.
April 1983 12 tomman Blue Monday
kemur út
Maí 1983 Power,Corruption & Lies
kemur út.
Ma( 1985 Low-Life kemur út.
Október 1986 Brotherhood kemur út.
Febrúar 1989Technique kemur út.
Maf 1993 Republic kemur út.
1993 New Order hættir.
1998 Hljómsveitin heldur fund og
ákveður að byrja aftur.
2001 Get Ready kemur út.
2001 Gillian Gilbert hættir til þess að
einbeita sér að veikri dóttur hennar og
Stephens. (hennar stað kemur Phil
Cunningham,áöur (Marion.
28. mars 2005 Waiting For The Siren's
Call kemur út.
25 ár liðin frá dauða Ian Curtis
Bíómynd í vinnslu
Hljómsveitin Joy Division naut
ekki mikilla vinsælda á meðan hún
starfaði, en áhrifin sem hún hefur
haft á þær kynslóðir rokktónlistar-
manna sem komu í kjölfar hennar
eru ótvíræð og augljós á hljómsveit-
um eins og Interpol enn í dag. Fer-
ill Joy Division var stuttur. Þegar
Ian Curtis hengdi sig 18. maí 1980
var sveitin bara búin að starfa í þrjú
ár og senda frá sér eina stóra plötu,
meistaraverkið Unknown Plea-
sures.
Ian Kevin Curtis fæddist 15. júh'
1956. Hann ólst upp í Macclesfield í
útjaðri Manchester. Hann hafði
fljótt mikinn áhuga á tónlist. Hann
dáði Iggy Pop, Velvet Under-
ground, Roxy Music og David
Bowie og þegar pönkið hóf innreið
sína ákvað hann eins og svo margir
aðrir að stofna hijómsveit.
Að kvöldi 17. maí 1980 var Ian
einn heima. Hann horfði á kvik-
myndina Stroszek eftir Werner
Herzog, þambaði kaffi og
lan Curtis Var heillaður af dauðanum.
keðjureykti. Hann fékk sér líka viskí
og setti plötuna The Idiot með Iggy
Pop á fóninn. Þegar það var farið að
líða á morgun þess 18. skrifaði
hann eiginkonu sinni, Deboruh,
langt bréf og hengdi sig svo.
Deborah skrifaði bók um sam-
band þeirra og sögu Joy Division.
Hún heitir Touching From A
Distance og kom út árið 1995. í
henni kemur m.a. fram að Ian
hafði lengi verið heillaður af dauð-
anum. Utgáfa Davids Bowie af
Jacques Brel-laginu My Death
hafði mikil áhrif á hann og dauð-
inn var viðfangsefrii í hans eigin
textum, til dæmis New Dawn
Fades og Dead Souls. í bókinni
kemur líka fram að hjónaband
þeirra var í molum á þessum tíma
vegna sambands Ians við Annik
nokkra Honoré. Textinn í frægasta
lagi Joy Division, Love Will Tear Us
Apart, fjallar um það.
í janúar síðastliðnum var til-
kynnt að vinna væri hafin við kvik-
mynd um sögu Ians Curtis. Hún
verður byggð á bók Deboruh Curt-
is. Anton Cobjin hefur verið ráðinn
leikstjóri, en gamli Factory-stjórinn
Tony Wilson og Deborah eru með-
frainleiðendur. Dóttir Ians, Natalie,
sem var eins árs þegar hann hengdi
sig vinnur líka við heimildaöflun
fyrir myndina sem verður frum-
sýnd 2006 eða 2007.