Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2005, Síða 40
r
%
T1 f1 í t íJjj^ 0 í Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndarergætt. j-1 S1 Q _rJ QQ Q
SKAFTAHÚÐ24,105REYKJAVÍK [STOFNAÐ 1910] SÍMISSOSOOO 5 690710 111117
• Árshátíð 365 var
haldin með pompi
og prakt í Perlunni
að kvöldi laugar-
dags og tókst í alla
staði vel. Við það
tækifæri var sýnt
eins konar skaup
þar sem menn gerðu grín að
sjálfum sér en sögumaður var
JónÁrsællÞórðarson. Eitt atrið-
anna sem þótti takast hvað best
var þegar topparnir í fyrirtæk-
inu, Gunnar Smári EgÚsson, Páil
Magnússon og Hermann Her-
mannsson brugðu sér í líki
Strákanna á Stöð 2 og tóku sig
afar vel út. Þeir höfðu meðal
annars í flimtingum, að hætti
þeirra Audda, Sveppa og Péturs
Jóhanns umdeilda ráðningu á
Áma Þór Vigfússyni og töluðu
um að réttara væri að hann
afþlánaði innan 365 fremur en
annars staðar...
Auddi
við Ossur Tapaði veðmá
„Þetta var algerlega spontant og kom
fram í spjalli okkar Audda. Hann gaf út
þessa yfirlýsingu án þess að vera píndur til
þess," segir össur Skarphéðinsson formað-
ur Samfylkingarinnar. Eins og kunnugt má
vera stendur Össur nú í því sem nefndur
hefur verið blóðugur formannsslagur og
sækir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hart að
honum í framboði sínu til formanns. En
Össur hefur ráð undir rifi hverju.
Auðunn Blöndal, betur þekktur sem
sjónvarpsstjarnan og spaugarinn Auddi í
Strákunum á Stöð 2, hefiir lýst yfir opinber-
um stuðningi við össur á allsérstæðum for-
sendum. Þannig var að Auddi og Össur hitt-
ust sem fótboltabullur og álitsgjafar í sjón-
varpsþætti Skjás eins sem sýndi beint frá
leik Manchester United og Norwich. Auddi
er einarður stuðningsmaður United-liðsins
en Össur heldur hins vegar með Norwich.
Össur átti nokkuð undir högg að sækja í
sjónvarpssal því þeir sem þar fjölluðu um
þennan leik voru helst á því að þetta væri
nánast formsatriði fyrir stórveldið að leggja
Norwich. En það fór á annan veg.
Manchester United tapaði leiknum tvö-
núll. Svo öruggur var Auddi með sigur sinna
manna að hann nefndi við össur að færi á
aðra leið myndi hann lýsa yfir opinberum
stuðningi við Össur - og sú er nú staðan.
„Það er auðvitað kraftaverk að jafn
h'tið Hð og Norwich skuli hafa
komist upp í úrvalsdeild-
ina," segir Össur sem ekki
bilar í trúnni. „Það bjugg-
ust fáir við því að þeir
héngu uppi. Sú dýrð stend
ur varla lengi. Kanarífuglamir
eru því miður neðstir í deildinni! En þeir
gefast aldrei upp og ég mun aldrei gefast
upp á að styðja mína menn."
Aðspurður hvort þetta megi ekki heita
nýstárleg leið til að afla sér fylgismanna,
að veðja um eitt og annað með þetta und-
ir segir össtn: svo kannski ekki vera. Hins
vegar hefur Norwich aflað honum nokk-
urra stuðningsmanna því við Össur hafa
haft samband menn sem halda með lið-
inu og það hefur svo orðið til að opna
augu þeirra fýrir því að Össur sé ákjós-
anlegastur leiðtogi íslenskra jafnað-
armanna.
Auddí og Össur For-
maður Samfylkingarinn-
arhefurýmis ráð tilað
afia sér fyigismanna í
hinum blóðuga for-
mannsslag sem nú
stendur yfir. Og stuðn-
ingur Össurar við enska
liðið Norwich ætlar með-
al annars að reynast
honum vel íþeim efnum.
Egill í Brimborg svarar
„Ég er orðinn leiður á sköllótta
hausnum hans Egils grenjandi um
þessi mál. Hann á mikla hagsmuni og
er því ekki hlutlaus," skrifar einn
hinna illræmdu Málverja á málefn-
in.com. Málverjamir em að velta því
fyrir sér hvemig í ósköpunum standi
á því að verð bifreiða sé svo hátt sem
raun ber vitni þegar dollarinn er orð-
inn þetta lágur.
Egill Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Brimborgar ehf. sér sig knúinn
til svara og er þannig einn örfárra
sem hefur hætt sér undir nafiii á
spjallsvæði þar sem menn höggva á
báða bóga í skjóli nafnleyndar. „E.s.
varðandi hludeysi mitt þá kem ég
fram undir nafiii í viðtalinu og hér en
sama er ekki hægt að segja um ykkur
tvo sem hér skrifið. Því er ekki vitað
hvaða hagsmuni þið, vegas og amilst,
emð að verja. Mínir hagsmunir em
ljósir. Þeir sem lesa ykkar gagnrýni og
mín svör þurfa að hafa þetta í huga."
Málverjum
Egill Jóhannsson Hættirsérinn á málefn■
in.com en honum þykir ekki mikið til mái-
flutnings Málverja koma sem viija blanda
hárvexti framkvæmdastjórans saman viö
bollalegginar á háu verði bfla.
Jóhann Hauksson suður
Menn gera nú hvað þeir
geta til að lægja öldurnar
sem risu í „fréttastjóramál-
inu". Eina breytingin sem
hönd er á festandi er sú
að Jóhann Hauksson,
fýrrverandi dag-
skrárstjóri Rásar 2,
sagði starfi sínu
lausu. Enginn varð
til að fylgja fordæmi
hans. Jóhann hefur
Jóhann Hauksson Búsettur
á Akureyri sem dagskrárstjóri
Rásar 2 en flystnú suður.
verið í viðræðum við 365 - prent-
miðla og stendur til að hann taki til
starfa á Fréttablaðinu innan U'ðar.
Þar hittir hann fyrir fyrrverandi
fréttastjóra RÚV, Kára Jónas-
sn ritstjóra Fréttablaðsins.
Sem dagskrárstjóri Rásar 2
Jóhann Hauksson
búsettur á Akureyri
en flyst nú suður til
móts við nýjan
vinnustað.
ÍM.
Nýir bílar, árgerdir 2005, til afgreiðslu strax - Evrópu útfærslur - Afhendingarskoðaðir af Ræsi hf - 2 ára verksmiðjuábyrgð
Dodge Durango LTD 5,7 HEMI Jeep Grand Cherokee LTD 5,7 HEMI
7 manna leðurinnrétting, geisladislcamagasín, topplúga ofl K-pakki, DVD, nálæðarskynjarar, geislad.magasín, topplúga ofl
Verdkr. 4« 990 ■ O OO y " Verð kr. 5«450«000y"
Master ehf., Glæsibæ, Álfheimum 74, 104 Reykjavík, sími 540 2200, masterbill@masterbill.is, www.masterbill.is