Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 9

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 9
FRE YR 53 um varptímann og síðastliðið ár nam eftir- tekjan 120 kg. af óhreinsuðum dún. í byrjun 18 aldar voru 19 manns í heim- ili á Bessastöðum, eftir því sem segir í -Jarðabókinni. Af þeim hóp var fjölskylda Beyers 6 meðlimir en 13 manns hefir þá stundað búskap. Þó er það víst,að ráðsmað- ur og 7 vinnumenn hafa eigi stundað bú- skap eingöngu, heldur hefir sjósókn verið annað aðalstarf þessa hóps. Mannafli sá, sem nú er að búi er: 2 menn í fjósi, tveir að útiverkum af öðru tagi og tvær stúlkur, eða 6 manns samtals. Síðastliðið sumar voru að verki 5 karl- menn og 3 stúlkur. Það er ekki réttmætt að gera samanburö á mannafla þeim, sem nú vinnur að búi og hinum, er þar var fyrir 240 árum síðan, því að vitanlegt er, að tiltölulega lítill hluti starfskrafta hefir þá gengið til bússtarfa en mestur til sjósóknar. Samkvæmt áliti bústjórans er nú of mik- ið lið á búinu til þess að mikil eftirtekja geti fengist á hverja starfseiningu. Þarf nú að kosta kapps um að fylla fjósið, því að litlum eða engum starfskröftum þarf að bæta við þó að það verði gert. Þessi íhug- un bústjórans er hárrétt og þetta er sama sagan og gerizt víða hér á landi, að bú- stofninn er of lítill og hirðing hans of vinnufrek. Framvegis munu Bessastaðir verða höf- uðból landsins í orðsins fyllsta skilningi, meðan þar er heimili forseta hins íslenzka lýðveldis. Er það vel, ef svo verður unnið að búnaði þeim, sem þar er rekinn, að orðið geti til fyrirmyndar hvað snertir hirðing, reglu- semi og hagkvæmni alla í niðurröðun at- hafna. Snyrtimennska og hirðusemi í um- gengni prýðir hvert einasta sveitaheimili. Vér sem vinnum að málum landbúnaðarins óskum þess, að á þessu höfuðbóli lands vors megi slíkir hlutir verða öllum til fyr- irmyndar hér á landi. Þá munu Bessastaðir verða sannkallað höfuðból þessa lands, eigi aðeins sem heim- ili æðsta valdsmanns þjóðarinnar heldur og sem fyrirmynd annarra í menningar- brag og sveitaprýði. Finnsk-íslenzkur viðskiptasamningur. Fyrir áramótin var undirritaður við- skiptasamningur milli íslendinga og Finna fyrir árið 1946. Vörur þær, sem Finnar eiga að fá frá íslandi, eru: Fiskur, síld, lýsi og ull. Það, sem við getum búizt við að fá í staðinn, er: Pappír og pappírsvörur, eldspýtur og sport- vörur. Umfang viðskiptanna verður meðal annars háð verðlagi og vörugæðum. Sökum fátæktar og gjaldeyrisvandræða Finna óska þeir eftir gjaldfresti á nokkr- um hluta þeirra nauðsynja, sem þeir þarfnast. ★ Kaupgjald og vellíðan. Laun og kaupkröfur eru atriði, sem oft eru höfð að umræðuefni. Kaupið þarf að vera hæfilega hátt til þess að einstakling- arnir geti lifað sómasamlega, en hve hátt? — um það greinir. Nýlega var verkamannakaup hækkað að mun í Finnlandi, svo að nú getur finnski verkamaðurinn innunnið sér 100—150 þús- und mörk á ári. Sænskir og danskir verkamenn hafa kaup, sem nemur 4—5 þúsund krónum á ári. Þrátt fyrir þennan mismun lifa dansk- ir og sænskir verkamenn við mun betri kjör en þeir finnsku.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.