Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 17

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 17
FREYR 61 og varamanna í framkvæmdaráðið, þar sem allar ven.iulegar pólitískar línur þurrkuðust út eins og lausamjöll í sólbráð. í samþykktum og starfsskrá meirihlut- ans kom heldur ekkert fram, sem minnti á flokkspólitíska afstöðu. Hið sama verður þó ekki sagt um allar þær tillögur sem fram komu í þessu máli. í bréfi stjórnar B.S.S. sem S. S. gerðist einnig aðili að, eru birtar tillögur um starfsvið þessara bænda- •samtaka. Þar eru m. a. talin upp þessi verkefni: að berjast á móti þjóðnýtingu í búskap, að láta til sín taka tolla- og skatta- mál, að beita sér gegn of háum embættis- launum, að fá stórbættar samgöngur um sveitirnar, að hýsa og raflýsa sveitaheim- ilin o. s. frv. All ,getur þetta nú verið gott og blessað útaf fyrir sig. En ýmsir kunna að líta svo á, að á sum þessara verkefna slái nú ein- hverjum „pólitískum lit.“ Sannleikurinn er sá, að *öll þessi mál eru meira og minna „hápólitísk“ þannig að þeim verður ekki ráðið til lykta nema með löggjöf frá Alþingi, og tilheyra því fyrst og fremst stjórnmálabaráttunni. Það er sannast sagna engu líkara, eftir þess- um verkefnum að dæma, en að hér sé ver- ið að efna til pólitískrar flokksstofnunar, en ekki „ópólitískra stéttarsamtaka“. Það er auk þess vitað, að þótt bændur kunni að geta sameinast um mörg þessara mála, þá munu þeir þó hafa mismunandi skoð- anir á ýmsum þeirra í framkvæmdinni. Þó að þeir gætu hæglega átt samstöðu með öðrum bændum í flestum greinum venju- legra stéttarhagsmuna, er með öllu óvíst að þeir hefðu allir getað gengið í eða stað- ið að slíkum flokki. Ég er líka hræddur um það, að hin pólitísku „eyru“ sem þarna gægðust undan „gærunni" hefðu fljótlega orðið „dauðamein“ hinna ópólitísku hags- munasamtaka, ef sú stefna hefði orðið ofan á. Stjórnmálin eru ágæt á sínum stað, eða a. m. k. óhjákvæmileg nauðsyn í hverju þjóðfélagi. En þau eiga ekki heima í al- mennum „hagsmunasamtökum bænda“. Það er hverju orði sannara hjá Sigurjóni. Að lokum koma svo niðurlagsorð S. S.: „Frjáls og óháð munu hagsmunasamtök bænda — .sem og annarra stétta — reyn- ast sterkust í framtíðinni, og mestrar virð- ingar njóta hjá alþjóð.“ Ég þarf ekki að endurtaka það að hér erum við einnig al- gerlega sammála. En þessi orð: „frjáls og óháð bændasam- tök“ hafa nú um sinn verið allmjög notuð af þeim sem fylgja B.S.S. að málum í and- ófi þess gegn Búnaðarþingi, til þess að reyna að einkenna með þeim afstöðu B.S.S. Mér hefir ekki verið ljóst, hvort þar voru á ferðinni rökvillur eða blekkingar. Rök- villur manna sem örðugt eiga með að álykta rétt, eða blekkingar þeirra sem vita betur, en leggja stund á að villa öðrum •sýn. Ég hefi talið að Sigurjón Sigurðsson ætti í hvorugum flokknum heima, og kom því á óvart að hann skyldi taka upp þessi inn- antómu slagorð og gera .þau að sínum. Um þessi atriði er ekki og hefir aldrei ver- ið ágreiningur á milli þeirra, er deilt hafa um skipulagsatriði bændasamtakanna. En það er annað atriði í þessu máli, sem ekki er veigaminna og meirihlutinn hefir lagt megináherzlu á, að gera samtök þessi þeg- ar í upphafi svo úr garði, að átök bænd- anna geti orðið samvirk en hljóti ekki að verða sundruð. Bjarni Ásgeirsson.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.