Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 25
69
FREYR
Fyrsta samvinnuþvotta-
húaið í Svíþjóð. —
Að útliti er það í engu
frábrugðið íbúðarhúsi.
Sænsku húsmæðurnar lofa fyrirkomulag
Þetta mjög og fullyrða, að enginn, sem einu
sinni hefir kynnzt samvinnuþvottahúsi,
Seti hugsað sér að þvo annars staðar.
..Þvotturinn var fyrr slitvinna og versta
verk heimilisins, en nú er hann leikur
einn.“ Þetta eru ummæli sænskra hús-
mæðra.
Forgöngu þessara mála hefir Egnahems-
styrelsen og Kooperativa Förbundet
(Sjálfseignabændafélagið og Samband
samvinnufélaganna), en vélasjóður ríkis-
ms hefir veitt háar fjárupphæðir til þess-
ara fyrirtækja, bæði sem lán og styrk.
Samvinnuþvottahús í Danmörku.
Samvinnuþvottahúsa-hreyfingunni
s*nsku, hefir verið tekið tveim höndum í
Oanmörku, en hernám landsins og þær
aðstæður, sem hafa skapast í sambandi
við Það, ollu kyrrstöðu í mörgu og má hik-
laust fullyrða, að þau áhrif ein hafi verið
þvi valdandi, að hugmyndin sænska er
fyrst nú að verða að veruleika hjá Dönum.
Fyrsta þvottahúsið er nú í smíðum í
Askov. 150 fjölskyldur hafa sameinast um
verkefnið og safnað hlutafé, er nemur 40
þúsund krónum. Samband kaupfélaganna
dönsku, sem á ýmsa lund hefir undirbúið
málefni danskra samvinnuþvottahúsa, hef-
ir veitt 50 þúsund króna lán til fyrirtæk-
isins vaxtalaust í 10 ár.
Erfiðast var að fá vélar, en nú eru þær
fengnar og kosta 70 þúsund krónur, en
samtals kostar húsið fullgert með öllum
útbúnaði um 150 þúsund krónur.
Viðvíkjandi starfrækslu þvottahússins er
það að segja, að það verður rekið algerlega
á samvinnugrundvelli. Af hlutafé má ekki
greiða hærri vexti en í hæsta lagi 2% yfir
innlánsvexti bankanna.
Borgun fyrir þvott er fyrirfram ákveðin
kr. 12 á fullorðinn og kr. 6 á barn á ári, sem
stofngjald. Þar að auki sl%al greiða ákveðið
gjald á hvert kg. af taui, sem þvegið er.
Með núverandi verðlagi er búist við, að
það verði um 60 aura á kg.
Svo er til ætlast, að þvottahúsið hafi
vagn, sem sækir og flytur fatnaðinn. Gert
er ráð fyrir að húsið geti afgreitt þvott