Freyr - 15.02.1946, Page 31
FRE YR
75
Tilkynning
frá Verðlagsnefnd
landbúnaðarafurða
Frá og með 1. marz Iðtfi, er verð á kartöfl-
um til framleiðenda ákveðið sem liér segir:
Urvalsflokkur kr. 1^.00 hver 100 kg:
I. flokkur — 129.00 — — —
II. flokkur — 113.00 — — —
Verð í heildsölu og smásölu er óbreytt.
Reykjavík, 28. febrúar 191^6.
VERÐLA GSNEFNDIN.
í sveit, sem svelti bústofninn en vildi eigi
að síður hafa fullan arð af honum. En
þetta er einmitt það sem ráðandi menn
Þjóðarinnar eru nú að gera, sumir — að
því er virðist — markvisst. Nú þegar er
fariS að mergsjúga framleiðsluna og fyrr
en varir getur það farið svo, að launastétt-
irnar komi að jötunni tómri. Eftirgjöfin
á kjötinu í fyrra var tilraun til þess að
koma vitinu fyrir launastéttirnar. Svarið
sýndi okkur hvers við megum vænta og
þokaði okkur saman. Eru nú síðustu forvöð
að stinga fótum við, sem áreiðanlega er
öllum fyrir beztu.
Það er ekki ólíklegt að þessir menn, bæði
launamennirnir og þeir nýríku vildu jafn-
vel fórna „Búnaðarráði“ ef þeir hefðu
tryggingu fyrir því, að Stéttarsambandið
ýrði óháð Búnaðarfélagi íslands — því þá
væru bændasamtökin tvenn og von um á-
rekstra þeirra á milli — og um leið opin
leið ýmsum flugu og æsingamönnum til
þess að sundra bændastéttinni.
Á gamlársdag 1945.
Þórarinn V. Magnússon
Steintúni.
Nýtt byggingarefni
Á ferðalagi mínu um Svíþjóð sumarið
1945, heimsótti ég stofnun þá er heitir:
Lantbrukets byggnadsförening, í Lundi.
Var mér þar, á meðal annars, sýnt nýtt
byggingarefni, sem ennþá er á tilrauna-
stigi, en líklegt er að ryðji sér til rúms
innan skamms.
Byggingarefni það, sem hér er um að
ræða, eru einangrunarplötur búnar til úr
hálmi. Uppfynding þessi er gerð af Niels
Ryberg forstjóra og T. W. Diegen óðals-
bónda, en Landssamband sænskra bænda
stendur fyrir framleiðslunni.
Plötur þessar kallast „Stramit“ og eru
fyrst og fremst ætlaðar til innréttingar
og einangrunar í íbúðarhúsum.
Fyrir 7 árum síðan byggðu Svíar tveggja
hæða íbúðarhús úr Stramit til reynslu.
Stendur húsið sem nýtt væri og hefir
staðizt óblíður og mislyndi veðráttufars-
ins eins vel og önnur hús.
Að sjálfsögðu er það múrhúðað utan.
Ætla mætti, að hús byggt úr hálmi væri
fremur flestum öðrum eldhætt. En þetta
er öðru nær. Tilraun hefir verið gerð til
þess að kveikja í því á þann hátt að beina
blástursloga á ákveðinn blett 5 cm. þykkr-
ar Stramit plötu, en ekki tókst að fá hana
til þess að brenna, heldur sviðnaði hún
lítið eitt. Hálfrar stundar eldun á þennan
hátt sveið holu tveggja cm. djúpa, en hin-