Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 32

Freyr - 15.02.1946, Blaðsíða 32
76 FRE YR Hús úr pressuðum hálmi, byggð 1945 í Virum í Danmörku. um megin á plötunni fannst enginn hiti, er leitt hefði í gegn. Sýnir það framúr- skarandi einangrunareiginleika þessa byggingarefnis. Talið er, að einangrunar- eiginleiki 5 cm. þykkrar plötu sé eins og í 47 cm. þykkum múrsteinsvegg. Stramitplöturnar eru gerðar 'úr rúg- eða hveitihálmi, sem pressaður er saman í sérstakri vél með miklum þrýstingi við 120 stiga hita. Um leið og pressað er, er límdur pappír á báðar hliðar platanna. Plöturnar eru, eins og þegar er nefnt, 5 cm. þykkar. Breiddin er 120 cm. og lengdin breytileg, mest allt að 7 metrum. Auk Svía eru Danir nú að gangast fyr- ir framleiðslu einangrunarefnis úr hálmi, með þessari aðferð, og hafa Danir keypt einkaleyfi á aðferðinni til framleiðslu þar í landi. G. Landbúnaður í Canada. Landbúnaðurinn í Canada hefir haft ágætis skilyrði á stríðsárunum. Árið 1939 nam sala landbúnaðarafurða 700 millj. dollara, en árið 1944 1800 milj. Að vísu hefir reksturskostnaðurinn hækkað dálítið, en hverfandi þó, ef borinn er saman við aukningu söluverðsins. Öllum er það fullljóst, að framleiðsla til sölu á erlendum markaði hlýtur að minnka að miklum mun, þegar létt verður hinni ströngu skömmtun, sem nú er á ýmsum vörum í landinu. Síðastliðið sumar var kornuppskeran ekki góð og menn telja engar líkur til aukinnar framleiðslu landbúnaðarafurða þetta ár. Framvegis mun hveiti, flesk og ostur, verða helztu útflutningsvörurnar. Búist er við, að útflutningur frá Canada til Englands fyrstu árin muni verða allt að 5 sinnum meiri en innflutningurinn þaðan. Hvernig gjaldeyr- ismismun þeim, sem þannig skapast, verð- ur ráðstafað, er ennþá óákveðið.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.