Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR 21.MAI2005
Fréttir DV
Alcan rekur
fimm
Trúnaðarráð starfs-
manna álvers ISAL/Alcan í
Straumsvík hefur samþykkt
ályktun þar sem uppsögn-
um fimm starfsmanna er
mótmælt harðlega. í álykt-
uninni kemur fram að um
sé að ræða tilefnislausar
uppsagnir starfsmanna
með langan og farsælan
starfsferil. Sá sem lengst
hafði unnið hjá ISAL hafði
verið þar í 30 ár. Það er sér-
staklega gagnrýnt í ályktun-
inni að starfsmönnunum
hafi verið vísað fyrirvara-
laust af vinnustað og engar
ástæður gefnar þótt eftir
þeim hafi verið leitað.
Kennaraverk-
fall bætir árs-
reikning
Ársreikningar Garða-
bæjar fyrir árið 2004 voru
samþykktir í bæjarstjórn
nýverið. Fram kom að
veltufé af rekstri hefði verið
um 460 milljónir króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir 349 milljónum. í bók-
un minnihluta bæjarstjórn-
ar var bættri rekstrarniður-
stöðu fagnað og bent á að
sjö vikna kennaraverkfall
vægi þarna þungt. Bæjar-
stjóri bókaði að ársreikn-
ingurinn endurspeglaði
sterka stöðu sjóðsins og
einnig að framkvæmdir á
vegum bæjarins hefðu ver-
ið innan fjárhagsáætlana.
Óskiljanlegur
ósigur í söng-
keppni
Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, galt af-
hroð í söngkeppni gegn
Björgólfi Jóhannssyni, for-
stjóra Síldarverksmiðjunn-
ar hf., í þættinum íslandi í
bítið á fimmtudagsmorgun.
Gísli söng lagið Fertugs-
brag, sem er írskt lag en
Gísli samdi sjálfur textann.
Enda þótt Akurnesingum
hafi þótt bæjarstjórinn
sýna betri takta en forstjór-
inn, kusu þó aðeins 26%
áhorfenda Gísla. Gísli þykir
lagviss mjög en ekki virtist
það duga I þetta skiptið.
Rauðarárstíg 20 á fimmta tímanum í gær vegna bruna í
risíbúð. Mikinn reyk lagði upp úr þaki hússins og um
nærliggjandi götur. Mikill fjöldi fólks safnaðist saman
og fylgdist með slökkvistörfum.
„Við vorum á leiðinni út Jóhannsson, deildarstjóri hjá
þegar við heyrðum smelli og
dynki uppi á lofti. Konan mín
bað mig um að athuga þetta
því enginn átti að vera þarna
því eigandinn notar þetta bara
sem geymslu. Það var eins og
verið væri að kasta stólum til
og frá," segir Rafn Bjarnason
íbúi á Rauðarárstíg 20. Stuttu
síðar bankaði slökkviliðið
uppá hjá þeim og bað þau um
að yfirgefa húsið tafarlaust þar
sem kviknað væri í.
Fékk sjokk
„Ég fékk algjört sjokk og
hljóp bara í næsta galla og út,“
segir eiginkona Rafns, Svan-
hildur Jónsdóttir. Rafn og
Svanhildur, sem búa beint fyr-
ir neðan risíbúðina þar sem
eldurinn kom upp, komu heim
á fimmtudag eftir þriggja vikna
dvöl á Spáni og ljóst er að þau
þurfa að fara aftur af heimili
sínu. Þau voru ekki viss um
hvar þau myndu eyða nóttinni
en þau eiga góða vini og
vandamenn sem þau geta leit-
að til. „Ég er bara fegnust því
að þetta gerðist ekki að nóttu
til, því þá er ekkert víst að mað-
ur hefði vaknað," segir Svan-
hildur. Þegar blaðamaður
ræddi við hjónin var ekki enn
orðið ljóst hvort, og þá hve,
miklar skemmdir hefðu orðið á
íbúð þeirra.
Aðstæður erfiðar
Tilkynning um eld I risíbúð-
inni kom frá vegfarendum kl.
16.36, aðeins nokkrum mínút-
um áður en Rafn og Svanhildur
urðu vör við lætin. Mikinn reyk
lagði upp úr þaki hússins og
eldtungur sáust teygja sig út
um þakglugga. Allt tiltækt lið
slökkviliðsins var kaUað á stað-
inn og þurfti að kalla út auka-
mannskap til að manna
slökkvistöðvarnar. Jón Friðrik
slökkviliðinu, sagði að ekki
væri óttast um að fólk væri fast
inni í húsinu, en þó væru
reykkafarar að leita af sér allan
grun. „Aðstæður fyrir reykkaf-
ara voru mjög slæmar í upp-
hafi, mikill reykur og hiti. Eftir
að við náðum að opna þak-
gluggana varð þetta þolan-
legra," sagði Jón Friðrik. íbúðir
við hliðina voru tæmdar til að
gæta fyllsta öryggis, en slökkvi-
liðið taldi fólk þó ekki í hættu
og sagðist hafa tök á eldinum.
Eldsupptök eru ókunn.
„Ég er bara fegn-
ust að þetta gerð-
ist ekki að nóttu til
því þá er ekkert
víst að maður
hefði vaknað“
Eigandinn vissi ekki um
brunann
Eigandi risíbúðarinnar,
Ágúst Heiðar Sigurðsson, hafði
ekki heyrt af brunanum þegar
blaðamaður DV náði í hann
klukkan 18.00, tæpum einum
og hálfum tíma
eftir að slökkvilið
kom á staðinn.
Hann var mjög
hissa á að lögregl-
an hefði ekki enn
verið búin að láta
hann vita. Hann
staðfesti að eng-
inn hefði verið í
íbúðinni, hún
væri eingöngu
notuð sem
geymsla. Ljóst er
að þetta er mikil áfall fyrir
Ágúst þar sem öll hans búslóð
var geymd í risinu.
johann@dv.is
Rannsakað hvort þrjár stúlkur séu fórnarlömb mansals
Lögreglan með sólarhringsvakt yfir kínverskum stúlkum
Kínversku stúlkurnar þrjár sem
komu hingað til lands í byrjun vik-
unnar eru í stöðugri gæslu lögreglu á
gistiheimili í Keflavík. Meintur
fylgdarmaður gistir fangageymslur á
Skólavörðustígnum meðan fimmta
aðilanum, ungum manni, er haldið
aðskildum ffá stúlkunum þremur á
gistiheimilinu.
,Ætli þeim líði ekki bara vel
hérna,“ segir Svala Sveinsdóttir, eig-
andi B&B Guesthouse í Keflavlk.
Hún segist lífið skipta sér af gestun-
um sem eru í stöðugri gæslu lögregl-
unnar. „Því minna sem maður veit,
því betra,“ segir hún.
Jóhann Benediktsson, sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli, segir málið í
rannsókn en nú sé unnið „undir" yf-
irborðinu. „Meðan rannsóknin er í
gangi erum við með vakt yfir stúlk-
unum á gistiheimilinu. Stráknum
sem var með þeim er haldið í öðrum
enda gistiheimilisins, aðskildum frá
hinum, vegna rannsóknarhags-
rnuna."
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug-
„Þaö liggur alltafmikiö á/segir Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grenivík.„Maö-
urætlar alltafaö gera meira en maöur kemstyfir. Erí140 prósent vinnu og þarflíka
að sinna fjölskyldu og áhugamálum. Til dæmis um helgina ætlar saumaklúbburinn
sem égeriá Snæfellsnes. Svo liggur á aö geta opnaö sundlauging hér á Grenivík.
Þaö er verk númer eitt. Erum aö byggja búningsklefa.Ætluðum að vera búin að
opna en það tókst ekki. Opnum vonandiekkisíöar en lO.júii."
B&B Guesthouse
Lögreglumaöur gætir
Klnverja I Keflavlk.
velli komst á snoðir um málið þegar
hópurinn millilenti hér með ólögleg
vegabréf. Kínversku stúlkurnar segj-
ast í dag vera undir átján ára aldri en
ekki er útilokað að það sé leið þeirra
til að forðast ákæru vegna skjalafals.
DV hefur heimildir fyrir því að rann-
sókn lögreglunnar beinist einnig að
þeim þætti málsins.
simon@dv.is