Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Side 13
r
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 21. MAÍ2004 13
Lögregla hælir
ökumönnum
Lögreglan á Selfossi hælir
ökumönnum í umdæmi
hennar fyrir fyrirmynd-
arakstur í gærdag. Að hennar
sögn var einungis búið að
stöðva fimm ökumenn fyrir
of hraðan akstur rétt fyrir sex
í gærdag þrátt fyrir mikið eft-
irlit á vegum úti. Á hinn bóg-
inn var öryggisbeltanotkun
innanbæjar ábótavant. Lög-
reglan er með átak alla helg-
ina þar sem sérstök áhersla
er lögð á eftirlit með aksturs-
hraða, bilbeltanotkun,
ölvunarakstri og símanotkun
við akstur.
Töldu hveiti
vera kókaín
Miðaldra kona í Brasihu
hefur höfðað mál á hendur
þarlendum lögregluyfirvöld-
um fyrir að telja hveitipoka
sem hún hélt á innihalda
kókaín. Var konunni haldið í
tvo sólarhringa áður en
lögreglan áttaði sig á
mistökunum. Talsmað-
ur lögreglunnar sagði
málið byggjast á mis-
skilningi því konan
hafði það eitt til saka
unnið að halda á inn-
kaupapokum og í þessu
tilviki hafði innsæi lögreglu-
þjónsins brugðist illilega.
Einnig bætti talsmaðurinn
við að honum fyndist ekki
skrítið að konan hefði í
hyggju að leggja ffam kæm.
Plasma-sjónvarpstæki seldust upp í BT. Hefði ísland unnið Eurovision-keppnina er
ljóst að stórtap hefði orðið og hafði neyðarfundur verið skipulagður á morgun í
fyrirtækinu ef til sigurs hefði komið. Fyrirtæki þurftu einnig að breyta auglýsing-
um í ljósi úrslita.
Auglýsingar teknar niður Berg- V
þór Morthens, yfirmaður sjónvarps- \
deiidar Expert, hélt úti veðbanka um 1
QengilslandslEurovision.lslandféll 1
útáðurentilaðalkeppninnarkom. 1
Álver í Helguvík
Á 574. fundi bæjarráðs Reykja-
nesbæjar sem'haldinn var á
fimmtudag, var lagt fram sam-
komulag bæjarins við Norðurál og
Hitaveitu Suðurnesja að kannaður
verði grundvöllur fyrir rekstri álvers
í Helguvík. Á síðustu misserum hafa
komið fram margar hugmyndir um
framtíðarstarfsemi í Helguvfk, sem
er rétt fyrir utan byggð í bænum.
Meðal annars hafa komið fram
uppástungur um birgðastöð fyrir
eldsneyti fyrir Flugleiðir þar. I
Helguvík er ein dýpsta höfrí lands-
ins og þar hefur verið starfrækt
loðnuverksmiðja í nokkur ár. Verið
er að koma af stað stálpípuverk-
smiðju á staðnum.
farþegar
Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fækkaði um
tæp 9% í apríl miðað við
sama tfma í fyrra, úr rúmlega
130 þúsund farþegum árið
2004 í tæpa 119 þúsund far-
þega nú. Fækkun farþega til
og frá íslandi nemur rúmum
7% milli ára og farþegum
sem millilenda hér á landi
fækkaði um rúm 16%. Helsta
ástæða fækkunar farþega nú
í apríl miðað við í apríl í fyrra
er talin sú að páskamir voru
fyrr í ár heldur en í fyrra, þ.e.
í mars í stað apríl árið 2004.
Alls hefur farþegum um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
fjölgað um rúmlega 9% það
sem af er árinu miðað við
sama tíma árið 2004, eða úr
rúmlega 382 þúsund farþeg-
um í rúma 418 þúsund far-
þega.
Handverksfólk
sameinast
Um helgina verður haldin
árleg handverkssýning í
íþróttahúsinu við
Sunnubraut í Reykja-
nesbæ. „Síðusm þrjú
árin hefúr hand-
verksfólk af Reykja-
nesi sameinast
handverksfólki ann-
ars staðar að af land-
inu við að sýna og jafhframt
selja verk sín bæjarbúum og
gestum til ánægju," segir
Valgerður Guðmundsdóttir
menningarfulltrúi bæjarins.
Að þessu sinni verður meira
lagt í handverkið sjálft og
meðal annars verður sýnt
hvemig handverk em unnin
og haldin sýnikennsla í út-
skurði, leirmómn, silkimálun
og útsaumi.
Amide framleiðir meðal annars þunglyndislyf
Gleði eftir kaup á lyfjafyrirtæki
Divya C. Patel, forstjóri banda-
ríska lydjafyrirtækisins Amide, og
Róbert Wessman, forstjóri Actavis,
brostu breitt eftir að kaup Actavis á
Amide urðu að veruleika í gær.
Amide framleiðir meðal annars
lyf við þunglyndi, kvíða og verkjum.
Lyfjafyrirtækið starfar við að létta
lund fólks, og Divya og Róbert vom
sannarlega léttir í lund í gær. „Þessi
kaupsamningur er mikilvægt skref í
þeirri stefnu félagsins að verða í
hópi leiðandi samheitalyfjafyrir-
tækja í heiminum," sagði Róbert
Wessman.
Actavis keypti Amide á 33 millj-
arða króna. Það samsvarar um það
bil samanlögðum kostnaði við
Iiéðinsfjarðargöng, Hvalfjarðar-
göng, Vestfjarðagöng og fyrirhuguð
Vestmannaeyjagöng samkvæmt ný-
legum verðhugmyndum.
,
Divya Patel og Róbert
Wessman Patelframleiði
lyf við kvíða, stressi og þur,
lyndi. Varalsællmeðsölur
gær líkt og Róbert Wessmc
forstjóri Actavis.
Léttir í vprslunum
yfir tapi Islands
Landsmenn tóku gylliboðum BT vel og seldust plasma-sjón-
varpstækin upp. BT hafði lofað endurgreiðslu ef fsland ynni
Eurovision og var fyrirhugaður neyðarfundur ef svo færi.
„Við skulum segja að við séum
mjög sáttir með ffamgang mála í
Eurovision," segir Bjarni Kristinsson,
framkvæmdastjóri BT, sem óttaðist
hið versta ef ísland kæmist áfram.
Fyrirtækið var brautryðjandi
varðandi veðmál fýrir Eurovision
þegar Selma tók þátt árið 1999. Áætla
má að forsvarsmenn fyrirtækjanna
hafi verið stressaðir þegar úrslit voru
tilkynnt árið 1999, þegar ísland lenti
í öðru sæti „Ég get lofað þér því að
þáverandi ffamkvæmdastjóri nagaði
sig heldur betur í handarbökin," seg-
ir Bjarni.
Neyðarfundur skipulagður
Öll plasma-sjónvarpstæki fyrir-
tækisins seldust eins og áður segir
upp. Hefði ísland unnið er ljóst að
stórtap hefði orðið enda kosta sjón-
varpstækin frá sex tugum þúsunda
og allt upp í fjögur hundruð þúsund.
„Þetta er náttúrulega ákveðin áhætta
sem felst í þessu, við gerðum ráð fyr-
ir að líkur á sigri íslands væru einn á
móti tólf. Við skipulögðum neyðar-
fund á sunnudaginn sem hefði farið í
að ræða úrræði," segir Bjarni og vill
þó meina að fyrirtækið hefði ekki far-
ið á hausinn ef ísland hefði lent í
fyrsta sæti.
Breyttar auglýsingar
Þrátt fyrir fjölda auglýsinga í
tengslum við ffamgang íslands í
Eurovision hefur lítil afturköllun
orðið á auglýsingum. Helst hafa aft-
urkallanir bundist við þau fyrirtæki
sem lögðu í markaðsherferð með
Hefði ísland unnið er
Ijóst að stórtap hefði
orðið enda kosta
sjónvarpstækin frá
sex tugum þúsunda
og allt upp í fjögur
hundruð þúsund.
veðmál í farteskinu, líkt og raftækja-
búðimar gerðu. Þeim hefur þurft að
breyta og kostar það umtalsverðar
fjárhæðir. „Það getur vel verið að
fyrirtæki sendi inn breyttar auglýs-
ingar en lítið hefur verið um að þau
hætti alfarið við." segir Gylfi Þór Þor-
steinsson, sölustjóri auglýsinga-
deildar Morgunblaðsins. Vitað er að
BT þurfti að afpanta auglýsingar hjá
RTJV og Stöð 2. „Ég er búinn að vera
að afbóka auglýsingar í allan dag,"
segir Bjami hjá BT, sem þó var létt
yfir tapi íslands.