Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 21.MAÍ2005
DV Fréttir
Gróutungur komust í feitt í gærmorgun og töldu Hemma Gunn jafnvel hafa dottiö í það þegar hann tal-
aði heim frá Taílandi i íslandi í bítið. Á vinnustöðum og á netinu var ekki um annað rætt en meinta
þvöglumælgi hans í símanum. Á sömu stundu sat Hemmi sjálfur í rólegheitum austur í Taílandi, drakk
kaffi og lék á alls oddi og spjallaði við kunningja. Þeir segja að honum hafi aldrei liðið betur og staðið
sig eins og hetja síðustu þrjár vikur í edrúmennskunni.
„Hann var bláedrú nokkrum
klukkustundum eftir samtalið við
Ingu Huld og Heimi. Ég var að
enda við að tala við Brynjölf son
minn sem sat með Hemma, í há-
deginu sama dag,“ segir Jósteinn
Kristjánsson veitingamaður og
vísar þar í annan son hans sem
býr í Taílandi.
Þjóðin stóð á öndinni í gær og
illar tungur munu hafa titrað í
kjaftaganginum um hvort Hemmi
Gunn hafi dottið í það í fríi í
Taílandi. Fullur eða edrú var um-
ræðuefni manna og sitt sýndist
hverjum. Sumir töldu ekki
nollurn vafa leika á meintri
drykkju Hemma. Hann hafi nán-
ast drafað en aðrir tengdu aðeins
breytta rödd hans við sambandið.
Enn aðrir heyrðu ekki annað en
allt væri í því fína og Hemmi væri
bara eins og hann ætti að sér.
Á hverjum föstudegi kemur
hann í þáttinn ef hann er heima
en hringir ella. Skömmu eftir
þáttinn fóru umræðurnar af stað
á barnaland.is og DV hefur heim-
ildir fyrir því að á fjölda vinnu-
staða í bænum hafi einmitt þetta
verið umræðuefnið í morgunkaff-
inu. Á meðan sat Hemmi hress og
kátur sem aldrei fyrr og drakk
kaffi. Jósteinn segist hafa heyrt
þessar umræður fljótlega eftir
þáttinn og því hafi hann hringt.
„Minni fjölskyldu er annt um
Hemma og ég viðurkenni að mér
hefur verið hugsað til hans þessa
síðustu daga. Bæði Brynjólftir og
Kristján sonur minn sem búa
þarna syðra hafa margoft hitt
Hemma síðan hann kom og þeir
hafa einmitt verið að tala um hve
mikill munur væri að umgangast
Hemma nú. Hann er bæði léttur,
kátur og það er augljóst að hon-
um líður betur nú en nokkru sinni
fyrr. Hann hefur sagt stráknum að
hann finni ekki fyrir óþægindum
að umgangast vín og er sæll og
glaður með að finna ekki fyrir
löngun í þetta," segir Jósteinn
sem segir að Hemmi komi að lík-
indum heim um mánaðamótin en
hann hefur þegar verið í þrjár vik-
ur og staðið sig frábærlega.
Hemmi Gunn Bláedrú og finn að
r vinar
sögn Jósteins Kristjánssonar vinar
I hans. Brynjólfur, sonur Jósteins, full-
yrti að Hemma hefði aldrei liðið bet-
ur en einmitt núna og að kjaftasögui
sem fóru á kreiklgær væru ekkiá
STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gitarinn@gitarinn.is
www.gitarinn.is
TILBQÐ NR. 1
MAPEX TROMMUSETT MEÐ ÖLLU
RÉTTVERÐ 79.900
TILBOÐSVERÐ KR. 59.900
Skítamórall Komnir á fullt skrið,
nýplata kemur út eftir mánuö og
°eir voru að klára nýtt myndband
þarsem hænur eru allt I öllu.
TILBQÐ NR. 2
ÞJÓÐLAGAGÍTAR KR. 14.900
P0KI, ÓL, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR
„Það er rétt, við þurftum að
kaupa nokkrar hænur til að geta
gert þetta myndband," segir
Jóhann Bachmann trommuleik-
ari Skítamórals sem tók upp nýtt
myndband við lagið Má ég sjá á
fimmtudaginn. „Við vomm búnir
að reyna að fá hænur lánaðar hjá
hinum og þessum aðilum úti í bæ
en ekkert gekk. Við enduðum
þess vegna á því að kaupa ein-
hver tíu stykki," segir Hanni.
Bændur em víst ekki mikið fyrir
að lána fiðurféð þar sem þær
hætta nánast alveg að verpa eftir
að hafa tekið þátt í svona uppá-
komum en Skítamóral munaði
ekkert um að kaupa eins og tíu
stykki.
„Við fengum þær mjög ódýrt.
Þær kostuðu ekki nema 400 kall
stykkið og svo leyfðum við kon-
unni sem sá um þær á meðan við
vomm að taka
upp bara að eiga ' '2
þær," segir
Hanni en í
myndbandinu
keppa hæn-
umar i kapp- fitt: '
lilaupi sín a
inilli. „Þetta er pÍP*
svonaeinskon-
ar „chicken run“ ’*’•
en svo keypti ég hvít , ..
jakkaföt á okkur strák-
ana og svo vomm við með rauð
bindi, svona í stíl við hænurnar,"
segir Hanni sem verður í eldlín-
unni í kvöld á Gauknum ásamt
hinum pilmnum í Skítamóral.
„Lagið er nýfarið í spilun á út-
varpsstöðvunum og
- myndbandið verður
svo frumsýnt á næstu
dögum," segir Hanni
og bæúr við að
ólíklegt sé að þeir
V, / verði í hænubúningun-
Wzt um á Gauknum í kvöld en
útilokar ekki að það verði
* gert síðar.
„Við skulum sjá til á Þjóð-
hátíð," segir hann að lokum.
TILBOÐ NR. 3
KLASSISKUR GÍTAR KR. 10.900
P0KI, STILLITÆKI 0G GÍTARNEGLUR
TILBOÐ NR. 4
RAGMAGNSGÍTARTILBOÐ KR. 22.900
RAFMAGNSG. MAGNARI, P0KI, ÓL, SNÚRA, NEGLUR
0G STILLITÆKI
TILBOÐ NR.5
BASSATILBOÐ KR. 42.900
BASSI, MAGNARI, POKI, ÓL, SNÚRA, STILLITÆKI,
NEGLUR 0G STANDUR
GITARINN EHF.