Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 21.MAÍ2005
Menning DV
Oddný Eir Ævarsdóttir Forfallinn safn-
ari ýmissa hluta og áhugamanneskja um
brúðuleikhús og katakombur, aödáandi
Chaplins, Derrida, Milans Kundera og
Hönnuh Arendt. DV-mynd Teitur
Fimm sýni úr
lífi safnara
Um þessar mundir standa yfír
safnaradagar í Gerðubergi. Vin-
sældir sýninga á einkasöfnum úr
fórum almennings vakti mikla at-
hygli í fyrra en i ár er úrvalið fjöl-
breyttara. I tengslum við sýnlng-
una eru ýmsar uppákomur:
Oddný Eir Ævarsdóttir, heimspek-
ingur og mannfræðingur mun
fíytja fyrirlestur á morgun i Gerðu-
bergi kl. 15 sem hún nefnir Þrá,
innhvörf, endurnýjun, losti og
dauði: Fimm sýni úr lífi safnara. I
fyrirlestri sínum leitast Oddný að
greina söfnun i Ijósi listsköpunar.
Hún rannsakar mun á þrá til að
lifa i safnheimi og þrá til að búa til
listheim. Hún telur að þær eigi það
sameiginlegt að lýsa lostatengsl-
um við heiminn, sem sífellt þarfað
endurnýja. Takistþað ekki verði
þráin að þráhyggju og leiði til
innri dauða. Þessar liku þrár verða
þvi ekki lagðar að jöfnu.
Oddný sendi frá sér safn hugleið-
inga í fyrra sem kenndar voru við
kryppuna. Hún hefur í vor staðið
fyrir sýningum í New York ásamt
bróður sínum Ugga, en þau reka
handtöskufyrirtækið Apaflösu.
Hefur það staðið fyrir sýninga-
haldi í New York, Guðrún móðir
þeirra reið á vaðið en önnur var
Hrafnhildur Arnardóttir. I vændum
eru sýningar Roni Horn, Margrétar
H. Blöndal, Katrínar Sigurðardótt-
ur, Unu Dóru Copley og Huldu
Stefánsdóttur.
Sýningarsalur þeirra Ævarsbarna,
Dandruffs Place, er tilhúsa við
500 Driggs Avenue, Apt. 404 i
Brooklyn.
Um aktívitet Apaflösu má lesa á:
www.apaflasa.org.
Godzilla
Klukkan 16
að loknum
fyrirlestri
Oddnýjar
verður
gestum
boðiðíbíó
en sýnd
verður
myndin
Godzilla, Mothra, King
Ghidorah: Giant monsters all out
attack (2001). Leikstjóri er Shusu-
ke Kaneko. Hið fræga japanska
skrimsli átti 50 ára afmæli á sið-
asta ári en á sýningunni Stefnu-
mót við safnara II má sjá brot úr
safni Ómars Arnar Haukssonar
sem safnar japönskum smáfígúr-
um og risaófreskjum.
Spunninn norrænn djass
Á sunnudagskvöld hljómar nor-
rænn djass í Norræna húsinu. Þá
heldur djasssveitin Nordic Kollektív
tónleika í Norræna húsinu og hefj-
ast þeir kl. 20. Tónleikamir eru hlutí
af tónleikaferð þeirra félaga um
Skandinavíu og Holland.
Tónlistarmennimir sem skipa
Nordic Kollektív eru allir þekktir
fyrir tónlist sína á alþjóðlegum
grundvelii og leika jöfhum höndum
með eigin hljómsveitum og tónlist-
armönnum víða um heim. Þeir hafa
m.a. leikið með Trygve Seim, Ron
Mclure, Chick Corea, Bobby Hug-
hes, Jimmy Knepper, Raoul
Björkenheim og mörgum öðrum.
Þá eru þeir ekki minna þekktír hver
í sínu heimalandi en þar hafa þeir
skapað sér gott rygtí með staifi á
ólíkum vettvangi. Þannig er alla-
vega með
okkar
mann í
bandinu,
Kjartan
Valdimars-
son pí-
anista sem
hefur
marga nótuna slegið við ýmis tæki-
færi.
Meðlimir hópsins eru Esa Pietilá
sem leikur á saxófón, KjartanValde-
marsson á píanó, Markku Ounask-
ari á trommur, Mathias Eicke á
trompet og Uffe Krokfors á bassa.
Tónlistin sem Nordic Kollektív þyk-
ir hafa sterkan, norrænan blæ og
byggir á verkum allra meðlima
sveitarinnar og sameiginlegum
spuna.
í næstu viku hefst Reykjavik Shorts & Docs-hátíðin sem verður að þessu sinni
haldin í Tjarnarbíói við Tjarnargötu. Það er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin
en þar gefst kostur á að sjá úrval stutt- og heimildamynda, bæði frá íslandi, Norð-
urlöndunum og víðar að.
Gamla íshúsið við Tjörnina
hefur margt reynt eins og hitt
ishúsið andspænis því sem
| seinna hýsti Glaumbæ. Þessi
gömlu íshús setja sinn svip á
umhverfi tjarnarinnar og haf,
yfir sér sígildan stíl og þokka.
fíeykjavik Slwrls & fím
vil Ijíim
Það var heldur dauft yfir hátíða-
haldi í borginni þegar ráðist var í að
halda hátíðina í fyrsta sinn. Kvik-
myndahátíðin í Reykjavík var komin í
þrot og dreifingaraðilar efndu ein-
ungis stopult til sýninga á myndum
sem féllu utan við almenna efiiisval
kvikmyndahúsanna.
Upphafið má rekja til samtaka
fiamleiðenda heimildamynda sem
hafa á sfnum vegum samtök á nor-
rænum grundvelli. Filmkontakt Nord
rekur dreifingarskrifstofu í Kaup-
mannahöfn sem heldur úti kynning-
arstarfi á kvikmyndahátíðum og
gagnabanka um norrænar stutt- og
heimildamyndir. Stofnunin er einn
þeirra aðila sem halda úti fimm-
borgahátíðinni, Nordisk Panorama,
sem hér var haldin í haust við gríðar-
góðar undirtektir. Hún fer á milli
landa og til að tryggja kynningu á
þeim heimildamyndum sem helstar
þykja ár hvert er útbúinn pakki sem
fer í dreifingu á hinum Norður-
löndunum.
Ný heimkynni -Tjarnarbíó
Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í
Norræna húsinu en hefiír síðan átt
skjól í Regnboganum eða Háskóla-
bíói. Þar til í ár. Hvorugt húsanna
treysti sér til að hýsa hátíðina og var
forrystumönnum hennar tilkynnt
það með litlum fyrirvara. Var þá grip-
ið til þess ráðs að fá Tjamarbíó lánað
hjá menntamálanefnd Reykjavíkur
en Sjálfstæðu leikhúsin hafa haft hús-
ið til nota um árabil.
Tjamarbíó var á árunum frá 1948
til 1960 eitt stærsta kvikmyndahús
bæjarins. Það var reist sem íshús á
þeim tíma þegar ís var sóttur á Tjöm-
ina til að ísa fisk og var þekkt sem
Norðdalsíshús. Við stríðslokin keypti
Háskólinn húsið og tók til við að reka
þar kvikmyndahús sem var forveri
Háskólabíós. Var húsið þá innréttað
og tók 350 gesti í sæti. Fyrsta myndin
sem þar var frumsýnd var Hamlet
með Lawrence Olivier í aðalhlutverki
og var það fyrsta myndin sem var
textuð hér á landi eftir tíma þöglu
myndanna. Hana sá 40 þúsund gestir
sem var sögulegt hámark á þeim
tíma.
Fjalakötturinn
Þegar Háskólabíó var risið 1961
var húsið selt Reykjavíkurborg. Um
tíma stóð til að rífa það og nálæg hús.
Átti að rísa þar æskulýðshöll. Fallið
var frá þeim áætlunum en Æskulýðs-
ráð hafði húsið til umráða um langt
skeið. Þar störfuðu frjálsir leikhópar
og er Gríma þeirra þekktust. Af og til
var það notað til kvikmyndasýninga,
einkum íslenskra framleiðenda. Þar
settist síðan Kvikmyndaklúbbur
framhaldsskólanna að undir stjóm
Friðriks Þórs og breyttíst á áttunda
áratugnum í Fjalaköttinn.
Aftur kvikmyndahús
Húsið var síðan leigt til Háskólans
og þegar borgin tók við því vom gerð-
ar á því gagngerar endurbætur. Það
tekur nú 250 áhorfendur í sæti. Tak-
mörkuð nýting sjálfstæðu leik-
hópanna á húsinu síðustu misseri eft-
ir og að þeir fara ffekar með sýningar
sínar í Borgarleikhús, Austurbæjar-
bíó, Gamla Bíó og Loftkastalann vek-
ur þá spumingu hvort hússins bíði
enn nýtt hlutverk og þá sem kvik-
myndahúss.
Kvikmyndahátíðin Reykjavík
Shorts & Docs hefst á miðvikudag og
stendur ffam á sunnudag. Vefúr
hennar er shortsdocs.info. Þá verða
sýningar lika í Hellusundi í kvik-
myndahúsi Vilhjálms Knudsen.
Tónlistarhátíð íTíbrá
Þeir félagar Kristinn Sigmunds-
son og Jónas Ingimimdarson buðu
upp á nýja efnisskrá sem þeir munu
brátt flytja á tónleikaferð um Norð-
urlönd.
Fyrir hlé fluttu þeir nokkur af
gömlu fslensku sönglögunum.
Meðal þeirra var Kveld eftír Bjama
Böðvarsson, eitthvert besta lag á ís-
landi. En það var ekld sérlega vel
sungið. Það hljómaði of rútínulega.
Lög Sigfúsar Einarssonar voru
hins vegar lífi gædd. Og viti menn!
Var ekki leið-
inlegasta
lag íj
heimi,
Sprett-
ur eftir
Svein-
bjöm
I yndni |,eirra félaga og
dellumarkari flæddi yfír
alla bakka og þaö var
engu lika en þarna væru
Litli og Stóri að sprella.
DV mynd GVA
Sveinbjömsson, bara þannig flutt
að það var ekki aðeins þolanlegt
heldur beinlínis athyglisvert.
Bikarinn eftír Eyþór Stefánsson
var of tilfinningalega fylltur í flutn-
ingum en tvö lög eftir Jón Leifs vom
einstaklega vel flutt.
Fjögur lög eftír Schubert komu
all vel ÚL Kvöldlokkan fræga var
skilmerklega sungin en
skortí alla töfra. Hið
sama er að segja um
Bréfadúfuna.
Þeim félögum
tókst aftur á mótí að
gæða lífi lögin
Aufenthalt og hiö
fræga Der Wanderer
við ljóð eftír
Schmidt frá
Lýbekku.
Eftir
hlé
Hátíðartónleikar Krist-
ins Sigmundssonar og
Jónasar Ingimundar-
heyrðust sönglög frá okkar tíð. Og
þau vom flest miklu betri en gömlu
íslensku lögin fyrir hlé. Ekki síst hið
frábæra lag Ég er brott frá þér
bemska eftír Gtmnar Reyni Sveins-
son og hið magnþragna Lauffall eft-
ir Hjálmar H. Ragnarsson.
011 vom íslensku lögin prýðilega
sungin og leikin og var ekki laust viö
að heyranlegt væri hvað flytjendun-
um fyndist þau vera flottari músik
en gamla jukldð. Tvær ópemaríur
komu svo loks eins og skrattinn úr
sauðaleggnum á efnisskránni.
Eitt fór verulega í hinar traustu
taugar gagnrýnandans. Það var
þessi eilífi nómalestur Krístins. Get-
ur söngvari sem kann utanað heilu
óperuhlutverkin á útíendum mál-
um ekki sungið þessa íslensku smá-
muni utanbókar líka?
Þegar aukalögin byxjuðu breytt-
ist kvöldið í fyrsta flokks kabarett.
Fyndni þeirra félaga og dellumark-
arí flæddi yfir alla bakka og það var
engu líka en þama væm Litli og
Stóri að sprella. Ætli þeir ærslist lfka
sonar.
Efnisskrá: íslensk sönglög og
aríur eftir Beethoven og Wagner.
Salurinn 13.maí.
Tónlist
svona á tónleikunum á Norður-
löndunum? Er þetta ekki bara eitt-
hvað nervösitet?
Að lokum er ekki hægt annað en
lofa og prísa þennan einstæða Sal í
Kópavogi og 'þá starfsemi sem þar
fer fram. Salurum er eins og lifandi
manneskja. Hljómburðurinn er
hvergi alveg eins þar sem setíð er og
hann breytist eftír tónleikum. Hann
er alltaf nýr og ferskur. Húsandinn
er líka einstaklega vinalegur og hlý-
legur en samt menningarlegur með
afbrígðum.
Menning er ekki eitthvað sem er
voða ffnt og virðulegt. Menning er
það sem er einstaklega blátt áfram
og satt.
SiguiömÞói GuÖjónsson