Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2005, Qupperneq 13
MÁNUDACUR 30. MAÍ2005 13
DV Fréttir
Sjúkleg
sóldýrkun
Úkraínski kaupsýslu-
maðurinn Dmitry Nikolev
tókst að láta handtaka sig á
dögunum fyrir að fara úr
jakkafötunum á fjölfarinni
gangstétt til að leggjast í
sólbað. Aðspurður sagði
hann lögreglunni að dagur-
inn hefði einfaldlega verið
of fallegur til þess að eyða
honum í vinnu. Umferðar-
öngþveiti myndaðist þegar
bflstjórar stöðvuðu bfla
sína til að berja þennan
furðufugl augum sem lá
með jakkafötin snyrtilega
brotin við hlið sér, alger-
lega meðvitundarlaus um
lífið í kringum sig.
Sellafield lak
í níu mánuði
Nú hefur komið í ljós að
kjarnorkuverið Sellafield í
Bretlandi lak í níu mánuði
án þess að nokkur vissi um
það. Ónýtt rör
gerði það að verk-
um að 83 þúsund
lítrar af geislavirk-
um vökva runnu
út frá verinu. Talið
er að lekinn hafi
byrjað í ágúst á
síðasta ári en hann upp-
götvaðist ekki fýrr en 19.
aprfl síðastliðinn. Breski
umhverfisráðherrann,
Elliott Morley, baðst í gær
afsökunar fýrir hönd
bresku stjórnarinnar og lof-
aði að bætt yrði úr upplýs-
ingaflæði og að eftirlit með
kjarnoruverinu yrði stór-
aukið.
Finna vantar
klósettpappír
Finna vantar sárlega
klósettpappír þessa dagana
því verkfall í pappírsverk-
smiðjum landsins síðustu
Qórar vikurnar hefur
valdið miklum skorti.
Pappírinn er uppseld-
ur í mörgum búð-
um og fólk hefur
gripið til þeirra
ráða að hamstra
pappírinn. Versl-
unareigandi sagði
við fréttamenn að í hvert
sinn sem nýjar birgðir af
klósettpappír kæmu í búð-
ina hans seldist hann strax
upp. Finnar sem fara nú til
útlanda koma klyfjaðir af
klósettpappír til baka.
Blindiraf
Viagra
Bandarísk yfirvöld rann-
saka nú hvort einhver
tengsl séu á milli
notkunar
kynörvandi lyfsins
Viagra og þess að -a
nokkrir notendur
lyfsins hafa orðið
blindir. Bandaríska Kn-, o'
lyflaeftirlitið hefur
fengið 43 mál inn á
sitt borð þar sem Vi-
agra er talið tengjast
skyndilegri og ólæknandi
blindu. Samkvæmt blaðinu
Washington Post hefur þó
ekki enn tekist að finna
nein tengsl þarna á milli en
að mögulegt sé að hún
tengist því að stór hluti
þeirra sem nota Viagra eru
með sykursýki eða
hjartasjúklingar.
Adolf Hitler var ekki við eina íjölina felldur:
Það hefur komið í ljós að Adolf
Hitler var frumkvöðull á kynlífs-
sviðinu. Hitler lét búa til kynlífs-
dúkkur fyrir hermenn sína til að
koma í veg fyrir kynsjúkdóma og fá
þá til að hætta að eltast við gleði-
konur. Talið er að Heinrich Himml-
er, yfirmaður SS-sveitanna, hafi
verið innsti koppur í búri við gerð
þessara dúkkna en aðgerðin gekk
undir nafninu „Aðgerð Borghild-
ur“.
Fyrsta dúkkan var búin til á
stofu í Dresden árið 1941 en að-
bandamanna á Dresden og því fóru
þýsku hermennirnir á mis við
dúkkurnar góðu.
gerðin sem var háleynileg snerist
um að búa til dúkku sem væri
nánast eins og lifandi kona.
Himmler og Hitler vissu sem
var að það væri ekki hægt
að fá hermennina til að
snúa sér að dúkkunum
fyrr en ákveðnum stöðl-
um væri náð. í leynilegu
•bréfi á milli læknis SS-
sveitanna, hins danska
Olen Hannussen, og
annars læknis kemur
fram að húðin á
dúkkunni verður að
vera eins og náttúruleg
húð, að lflcami
dúkkunnar verði að
vera hreyfanlegur lflct
og lflcami venjulegrar
konu og að kynfæri
dúkkunnar verði
að vera eins eðli-
leg og kostur er.
Öll aðgerðin
fór hins vegar út
um þúfur vegna
sprengjuárása
Adolf Hitler Vildi
ekki gleðikonur og lét
búa til kynllfsdúkkur
fyrirsína menn.
Hittu alla hina!
Barbra
Streisand
Dustin
Hoffman
Robert
DeNiro
¥ Kr
Misen''ovxs(iro''y'
Meet the Fockers
Fjölskylduharmleikurinn vofir
yfir karlhjúkkunni Greg Focker
(Stiller) þegar tengdafaðir hans
(De Niro), siðapostuli og fyrrve-
randi CIA-fulltrúi, vill hitta
óvenjulega foreldra hans
(Streisand og Hoffman).
Eins og í fyrri myndinni vaknar
spurningin: Hvers konarfólk
skírir son sinn Gaylord M.
Focker? Fjölskyldutengslin fara
heldur betur úr böndunum í
þessari frábæru gamanmynd.
BT Skeifan • BT Kringlan • BT Smáralind • BT Hafnarfjörður • BT Spönginni • BT Akureyri • BT Egilsstaðir • BT Selfoss • BT ísafjörður • www.bt.is • Simi 550 4444