Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2005, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 30. MAÍ2005
Heilsan DV
í DV á mánudögum
Gamall ljósaskápur
Enginn staður líkamans sleppuj
Þetta er mynd af ljósaklefa,fyrirrennara
Ijósabekkjarins. Þessi klefi er úr oregon-eik
og var smíðaður árið 1937.Hann opnast eins
og skápur og þegar inn er komið blasir við
stóll sem Ijósaþeginn sest f. Síðan er skápn-
um lokað og kveikt á perunum sem er raðáð
um allan skápinn innanverðan.Takið eftir
Ijósaperu sem varpar hollum geislum á rass
Ijósaþegans í gegnum gat á stólnum. Enginn
staður Ifkamans sleppurfrá hollustu-
geislunum geðfelldu. Segja má að ýmislegt
hafi breyst í Ijósamálum veraldarinnar frá ár-
inum 1937 þvf nú Ifta Ijósabekkir út eins og
græja úr Star Wars-myndabálknum. Ljósa-
böð geta verið hættuleg ef þau eru stunduð
fóhófi.
Ljósaklefi
Skyldi þessi vera
I notkun I dag?
Táfýla
þurrkuð
út
Táfýla getur verið
hvimleið.Sumirþola
ekki táfýlu og táfyla
hefur orsakað
vandamál f mörg-
um samböndum,
Táfýla er afleiðing
sveppa- eða
bakteríusýkinga.
Hreinlæti er því grunnatriði ef vinna skal
bug á táfýlu. Bent hefur verið á að
miklvægt sé að þurrka tærnar vel og
vandlega eftir bað. Sveppurinn nærist
best (raka og þvf verður að„þurrka tá-
fýlun út". Hægt er að fá púður I apótek-
um til að bera á fæturnar. Púðrið dregur
f sig raka og hjálpar til við að útrýma
sveppnum.Til að varanlegur árangur
náist þarf að þvo fæturna daglega og
þurka vel á eftir.Gott er að leita ráða f
apótekum við kaup á efnum sem vinna
gegn táfýlu.
9 uóð ráð
9.
viðsvefnleysi
1. Mikilvægast er að fara á fætur á
sama tfma á hverjum morgni. Forðastu
að leggja þig á daginn og farðu (hátt-
inn á svipuðum tfma öll kvöld.
2. Farðu fram út ef þú getur ekki
sofnað og lestu t.d. góða bók, hlustaðu
á rólega tónlist. Farðu aftur (rúmið
þegar þig syfjar á ný.
3. Dagleg llkamleg áreynsla leiðirtil
dýpri svefns, en óreglulegar æfingar,
einkum seint á kvöldin, hafa engin eða
slæm áhrif á svefninn nóttina eftir.
4. Rólegheit að kveldi auðvelda þér að
sofna.Forðastu mikla líkamlega
áreynslu og æsing. Betra er að hafa
daufa lýsingu f kringum sig á kvöldin.
5. Kaffi truflar svefn og rétt er að neyta
þess f hófi og aldrei eftir kvöldmat.
Sama gildir um te og kók.
6. Forðast ber neyslu áfengra drykkja.
Alkóhól truflar svefn.
7. Létt máltfð fyrir svefninn hjálpar
mörgum að sofna,t.d.flóuð mjólk og
brauðsneið.
8. Heitt bað stuttu fyrir háttinn getur
auðveldað sumum að sofna.
9. Hafðu hæfilega svalt (svefnherberg-
inu. Sofðu við opinn glugga og hafðu
dimmt í herberginu meðan þú sefur.
Passaðu upp á að rúmið þitt sé þægi-
legt.Forðastu að horfa á sjónvarpið I
rúminu. Reyndu að draga úr hávaða
kringum þig.
Heimlld: Landlaeknir.is
Sjúkdómurinn
Lupus, eða rauðir
úlfar eins og hann
er oftast kallaður
hér á landi, er
sjálfsofnæmissjúk-
dómur. Sigríður
Gunnarsdóttir hef-
ur fengið að kenna
illa á rauðum úlfum
í gegnum tíðina og
segir sögu sína.
„Þetta er erfiður sjúkdómur af því
að hann er mjög flókinn" segir Sig-
rfður Gunnarsdóttir en hún er ein af
þeim sem ekki hefur fengið 100%
svar og er með blandaða greiningu.
Sjúkdómurinn hefur verið mikill
áhrifavaldur í lífi Sigríðar, en hún
missti systur sína sökum þessa sjúk-
dóms árið 1956. Þá var Sigríður 10
ára og systir hennar ári eldri, en hún
hafði greinst með rauða úlfa tveimur
árum fyrr. Hún var með þeim fyrstu
sem greindust með rauða úlfa á ís-
lajidi og lagðist sjúkdómurinn á
nýrun. Móðir Sigríðar er einnig með
rauða úlfa og er þjáð af gigt í mjúk-
vefjunum sem og fleiri í fjölskyld-
unni.
Þetta er fjölskyldusjúkdómur í
hennar ætt, og Sigríður telur að þau
séu greinilega með þetta í genunum.
Þetta er sjálfsofnæmissjúkdómur og
einstaklingurinn myndar mótefni
gegn eigin frumum og ónæmiskerfið
er í rauninni ofvirkt. Þar sem rauðir
úlfar er bólgusjúkdómur getur hann
brotist út hvar sem er í líkamanum, í
heilann, nýrun, gollurshúsið, í melt-
ingarfæri og nánast hvar sem er. Það
er erfitt að greina hann og afdráttar-
laus greining er sjaldgæf.
Hamlandi sjúkdómur
„Auðvitað hefur þetta haft áhrif á
það sem maður tekur sér fyrir í lífinu
hvað viðkemur menntun og starfs-
frama, maður er ekki þrekmikill. Ég
hef aldrei unnið fulla vinnu", segir
Sigríður sem er menntaður kennari
en hún varð að hætta kennslu því
hún þoldi illa að standa langtímum
saman. Sigríður vann hjá Símanum í
25 ár og líkaði það vel en neyddist til
að hætta árið 2003. Hún á þrjú börn,
en konur sem þjást af þessum
sjúkdómi eiga mjög erfitt með að
ganga með börn, en konur eru í
miklum meirihluta. Það eru samt
nokkrir karlmenn í ætt Sigríðar sem
eru með rauða úlfa, en það er mun
sjaldgæfara.
Ólæknandi
Sjúkdómurinn er ekki læknan-
legur í þeim skilningi, en honum er
hægt að halda niðri og fólk deyr ekki
lengur af hans völdum. Sigríður hef-
ur verið slæm af slitgigt og þurft að
gangast undir þrjá hryggjarppskurði
vegna lélegs bandvefjar og brjósks.
„Ég fékk til dæmis alveg hræðilegan
bólgusjúkdóm í blöðru og var mjög
illa haldin í að minnsta kosti 10 ár“
segir Sigríður og þurfti að taka mjög
sterk verkjarlyf og vera mikið á spít-
ala „Það kemur manni aldrei neitt
lengur á óvart, maður bíður bara eft-
ir að það læknist af sjálfu sér. Maður
veit aldrei hvar sjúkdóminn ber nið-
ur næst og það er mjög erfitt. Það er
erfitt að skipuleggja eitthvað því
maður veit ekkert hvernig fer“, segir
Sigríður en hún bætir því við hún
hafi lært að lifa með þessu.
Akaverkanir
Sökum sjúkdómsins finnur
Sigríður sífellt til. Einnig er hún fær
aukaverkanir vegna lyfja, en hún
tekur bæði ónæmisbælandi lyf,
stera og verkjarlyf. Aukaverkanirnar
lýsa sér til dæmis með beinþynn-
ingu en Sigríður varð að velja og
hafna og kaus að lifa í dag og sjá svo
til hvaða afleiðingar lyfjatakan
myndi hafa í framtíðinni.
Stuðningur
Samtök áhugafólks um, Lúpus
SÁL, voru stofnuð árið 1994 af hópi
kvenna og eru samtökin áhugahóp-
ur innan gigtarfélags íslands. Kjarni
hópsins hittist reglulega og þær hafa
haft fræðslufundi. Sigríður segir þær
þó verða latari að hittast með tíman-
um en voru duglegri fyrst. „Stofnun
SÁL var sértstaklega gagnleg áður en
netið kom til því sjúkdómurinn er
svo erfiður fyrir andlegu hliðina.
Maður fær svo skrýtna sjúkdóma og
köst að maður heldur að maður sé
ruglaður", segir Sigríður og bætir við
að gott sé að deila reynslunni. „Að
hafa fengið þennan sjúkdóm er ekki
bara tap. Ég hef kynnst mörgu prýð-
isfólki og maður öðlast vissan
þroska. Þetta er alls ekki bara nei-
kvætt." segir Sigríður að lokum
ragga@dv.is
„Stofnun SAL varsért-
staklega gagnleg áður
en netið kom til því
sjúkdómurinn er svo
erfiður fyrir andlegu
hliðina. Maður fær svo
skrýtna sjúkdóma og
köst að maður heldur
að maður sé rug/aður"
y Sigríður Gunnarsdóttir
f Hefur lengigllmt við rauða
j? úlfa, rétt eins og fleiri úr henn-
-
arfjölskyldu. DV-myndHeiða
""V J J j —
Góð heilsa er eins og
hamar með skafti
Birkiaska
Umboðs- og sölua
Birkiaska ehf.
sími: 551 923
Ö
BETUSAN
Heilsa snýst ekki aðeins um
líkamann heldur einnig um hið
andlega. Rannsókir sýna að góð lík-
amleg heilsa fer saman við góða
andlega heilsu og öfugt. Það er eins
og birtingarmynd heilsuleysis komi
fram á tvennan hátt. T.d. líður okkur
oft illa andlega þegar eitthvað amar
að líkama okkar. Við verðum pirruð
og skapill. Veikindin virka á
líkamlegu og andlegu hliðina. And-
leg vellíðan byggist á mörgum þátt-
um, vinnu, fjölskyldu, sjálfsmynd
o.s.frv. Líkamleg vellíðan snýst
einnig um marga þætti, t.d. hreyf-
ingu, mataræði og hreinlæti. Ef við
erum undir andlegu álagi getur það
haft líkamleg áhrif. Við getum t.d.
fengið vöðvabólgu, magasár, hjart-
sláttartruflanur og fleira. Veikindin
geta kalla fram þunglyndi og þá
erum við komin í vítahring sem ein-
kennist af lélegri andlegri og líkam-
legri heilsu. Við verðum að sigrast á
þessum vítahring. Ef við
ímyndum okkur að
heÚsa okkar sé
hamar, þ.e. lík-
amlega
heilsan sé j
hamars-
hausinn og
andlega
heilsan sé
skaftið, þá
erum við
ekki heilbrigð
nema
hlutir séu í lagi. .
Eitt og sér er skaft-
ið gagnslaust og
hamarshausinn
sömuleiðis
Geðrækt gaf út geðorðin 10 tll að
minna okkur á að halda andlegri vellfð-
Geðorðin 10
an.
Geðorðin 10 eru þessi.
J .Hugsaðu jákvætt, þaðer létt-
ara.
2-Hlúðu að þvl sem þérþykir
vænt um.
3.Haltu áfram að læra svo
lengi sem þú lifir.
é.Lærðu af mistökum þlnum.
S.Hreyfðu þig daglega, það
léttir lundina.
ö.Flæktu ekki lifþitt að óþörfu.
7.Reyndu að skilja og hvetja aðra I
kringum þig.
8.Gefstu ekki upp, velgengni I llfinu er
langhlaup.
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þlna.
10. Settu þér markmið og láttu drauma
þlna rætast.