Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Latir
nemendur
Nemendur í Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar virðast
ekki taka námið nægilega
alvarlega. í fundargerð
skólaráðs kemur fram að
skólasókn nemenda á önn-
inni sé ekki nægilega góð.
„Nemendur hafa trassað að
staðfesta veikindi og fá því
fjarvistir. Við blasir að all-
mörgum nemendum verð-
ur vísað úr skóla vegna
slakrar skólasóknar," segir í
fundargerðinni. Þar segir
einnig að samningar verði
ekki endurnýjaðir við tals-
verðan hóp nemenda.
Loqi kominn
á Stöð 2
Logi Bergmann Eiðsson
las í gærkvöldi fréttir Stöðv-
ar 2 í fyrsta skipti. Fyrr í
vikunni var Logi ráðinn af
Ríkissjónvarpinu til 365 -
ljósvakamiðla. Logi er með-
al vönustu sjónvarpsfrétta-
manna landsins og hefur
lesið fréttir um árabil við
góðan orðstír. Brynhiidur
Ólafsdóttir var við hlið
hans í myndveri í gær og
hóf fréttirnar á því að segja
áhorfendum að þetta væru
ekki fréttir Ríkissjónvarps-
ins heldur Stöðvar 2.
Ekkert partí
fyrir flesta
Af íjórum sem báðu
Reykjavíkurborg um að
halda móttökur fékk aðeins
einn jákvæðar undirtektir á
síðasta fundi forsætis-
nefndar borgarinnar. Það
var erindi um móttöku
vegna norrænnar prjóna-
ráðstefnu sem haldin var á
fimmtudag sem þeir Alfreð
Þorsteinsson, Árni Þór Sig-
urðsson og Stefán Jón Haf-
stein vildu styðja. Á sama
fundi þeirra var samþykkt
að styrkja bókmenntahátíð
í Guðrúnarhúsi um 100
þúsund krónur.
Jón Gerald Sullenberger er ekki á flæðiskeri staddur þótt hann hafi ekki efni á að láta
þýða fyrir sig skjöl af ensku yfir á íslensku. Hann býr í Coral Gables, einu úthverfa
Miami, þar sem flestir eru hvítir og ríkir og þar átti Richard Nixon heima þegar hann
var og hét.
Draumur siglingamanns-
ins Á fáum stöðum er betra
að eiga snekkju eniCoral
Gables og geta ibúár
ijafnvel siglt bátum sín
um alla leið upp að
útidyratröpp- si
um húsa ÁÉ
sinna. .........M
Panadís Sullenbergers
W w & |§ santiago Street Þarna býrJán Gerald Sullenberger ásamt I
eiginkonu smm i emhverju eftirsóttasta úthverfi Miami.
í Flórída
Jón Gerald Sullenberger er ekki á flæðiskeri
staddur þótt hann hafi ekki efni á að láta þýða
fyrir sig skjöl. Sullenberger býr í einhverju
glæsilegasta úthverfi Miami á Flórída, Coral
Gables, sem aldrei er kallað annað en The City
Beautiful.
Þama keyptu Jón Gerald og Jó-
hanna eiginkona hans sér hús í fyrra
á 215 þúsund dollara. Samkvæmt
gögnum ítá fasteignamatinu í Flórída
skuldar Jón Gerald 157 þúsund doll-
ara í húsinu. Mismuninn á hann.
Coral Gables hefur lengi verið eft-
irsóttur staður fyrir þá sem einhvers
mega sín og má geta þess að Richard
Nixon átti þar hús eftir að forsetatíð
hans lauk. Hverfið er byggt á kóralrifi
og geta íbúar margir siglt bátum sín-
um cilveg upp að útidyratröppum. Þó
ekki Jón Gerald sem er vanur sigl-
ingamaður og sérftæðingur í snekkj-
um eins og frægt er.
225 fermetrar
Hús Jóns Geralds stendur við
Santiago Street númer 823 en um er
að ræða fallega villu í evrópskum stíl;
byggð 1926. Hús í stíl við þau sem sjá
má í gömlum kvikmyndum með
Humphrey Bogart og Cary Grant.
Þrjú sveftiherbergi, þijú baðherbergi
og alls 225 fermetrar. Þetta er þriðja
húsið sem Jón Gerald og Jóhanna
eigiiikona hans kaupa sér í Flónda.
Fyrst keyþtu þaú 1999, svo aftur 2003
og nú síðast þettaí fyrra.
Krítarkort í stöðumæla
Meðalaldur íbúa í Coral Gables er
um fertugt. Meðaltekjur þeirra erii
um tíu milljónir á ári og rúmlega 95
prósent þeirra eru hvít. Veðráttan er
góð og ekki síðra hitt að íbúar geta
borgað í stöðumæla með farsímum.
Coral Gables var með fyrstu borgum í
Bandaríkjunum til að taka upp það
kerfi og hefur verið fyrirmynd margra
annarra sveitarfélaga í Bandaríkjun-
um um margt. Þó er glæpatíðni í
hverfinu yfir meðallagi; bæði hvað
varðar likamsárásir, morð og inn-
brot.
Ásakaskrá
Sem kunnugt er hefur Jón
Gerald Sullenberger stund-
að siglingar á snekkjum og
þykir snjall sem slíkur. Ekki
er hann síður sleipur í við-
skiptum með báta. Sigling-
amar urðu þó til þess að Jón Gerald
lenti á sakaskrá hjá lögregluyfirvöld-
um í Flórída fyrir að hafa siglt á of
mikilli ferð nærri viðkvæmum fiski-
miðum. Hlaut hann fyrir það sekt og
nafh sitt á sakaskrá ríkisins þar sem
það verður um ókomna tíð.
Hættulegur stormur
Þrátt fyrir stöðugt sólskin og hæg-
an vind er Coral Gables á hvirfil-
vindasvæði og em íbúar allir meðvit-
aðir um hættuna sem því fylgir. Geta
þeir búist við ellefu til fimmtán hvirf-
ilbyljum árlega, þar af fjómm meiri-
háttar. Fyrir bragðið hvetja bæjaryfir-
völd íbúa til að vera viðbúna tÚ að yf-
irgefa svæðið með stuttum fyrirvara
þegar hætta skapast af fárviðri. En
það er aðeins hluti af lífinu í Coral
Gables þar sem Jón Gerald Sullen-
berger unir hag sínum vel þrátt fyrir
allt.
Coral Gables Þekkt fyrir fegurð
og stíl enda aldrei nefnd annað
en The City Beautiful.
Sigling-
arnar urðu
þótilþess
aðJón Ger-
ald lenti á
sakaskrá hjá
lögregluyfir-
völdum í Flór-
ída fyrir að
hafa siglt á of
mikilli ferð
nærri viðkvæm-
um fiskimiðum.
Jon Gerald
Sullenberger
Keypti sér hús í
Coral Gables fýr-
ir 215 þúsund
dollara í fyrra.
Viggó kann þá list að gera sig að fífli
Svarthöfði hefur haft gaman af
því að fylgjast með handboltaþjálf-
aranum Viggó Sigurðssyni síðan
hann tók við landsliðinu seint á síð-
asta ári. Viggó hefur verið iðinn við
að standa í iUdeilum eða verða sér til
skammar á þessu tímabili. Svart-
höfði man vel eftir deilunni við
Jaliesky Garcia í janúar en þá þótti
honum Garcia skila sér seint og illa
heim til íslands eftir jarðarför föður
hans á Kúbu. Viggó gekk meira að
segja svo langt að halda því fram að
Garcia hefði slakað á á sólarströnd á
Púertó Ríkó í stað þess að koma
heim og æfa. Forsvarsmenn HSÍ
Svarthöfði
reyndu að koma í veg fyrir að Viggó
færi í fjölmiðla en tókst það ekki.
Svarthöfði fagnar því enda hefðu
landsmenn þá farið á mis við að sjá
landsliðsþjálfarann gera sig að fífli
dag eftir dag eftir dag.
Að gera sig að fífli virðist vera list-
grein sem Viggó er að ná góðum tök-
um. Svarthöfði fylgdist með fréttum
af því í sumar þegar Viggó datt í það
í flugvél. Viggó átti að vera fyrir-
mynd ungra handboltamanna í góð-
um siðum en varð í staðinn fyrir-
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþaö mjög fínt," segir Aðalheiöur Ólafsdóttir. Heiða tók þáttí Idol-keppninni I fyrra
en hún fór afstað íþriðja sinn ígær.„Þetta var frábær tími. Ég hvet krakkana sem komast
áfram að nota tímann í botn. Þetta erþað skemmtilegasta sem þau munu lenda I á lífsleið-
inni. Það er nauðsynlegt að láta ekki stressið og kvlðann ná tökum á sér í Idolinu, “ segir
Heiða sem vinnur á leikskólanum Efstahjalla og kennir litlum krílum að syngja.
myndarflugdólgur. Viggó fékk ekki
nógu mikið brennivín að hans eigin
mati og réðst því á saklausan flug-
þjón. Viggó taldi eftir á að honum
hefði verið neitað um þau grund-
vallarmannréttindi að fá nægilegt
magn af áfengi. Viggó slapp
skrekkinn eftir þennan skandai en
eins og hans er von og vísa þá er
hann byrjaður á nýjan leik.
Svarthöfði hefur nú horft upp
á Viggó Sigurðsson standa í rit-
deilum við Alfreð Gíslason,
virtasta handboltaþjálfara
landsins. Alfreð sagði íslenska
handboltamenn ekki vera í
formi en Viggó svaraði því til
að Alfreð ætti að hugsa um eigið
lið og ekki vera að skipta sér af
því sem honum kæmi ekki við. For-
ystumenn handboltahreyfingarinn-
ar supu hveljur en Viggó hafði enn
einu sinni gert sig að fi'fli.
Svarthöfði