Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Page 14
74 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005 Fréttir DV Karl Sædal Sveinbjörns- son Fæddur 1968. Leigjandi íbúðarinnar. Haukur Hauksson Fæddur 1963. Frændi Heiðars. Atli Gíslason Lögmaður konunnar. „Hún var eitthvað feimin í fyrstu og sagði við mig að vera ekki að þessu. Ég hélt áfram að kyssa hana og síðan byrja ég að taka hana úr buxunum og þá gefur hún eftir...“ Svona lýsti Heiðar Ágúst Ólafs- son aðdraganda hópnauðgunar sem hann átti frumkvæðið að um verslunarmannahelgina 2002. Heiðar var ekki sóttur tii saka fyrir verknaðinn, né heldur samverka- menn hans. Konan sem var hópnauðgað gafst þó ekki upp og sótti rétt sinn í einkamáli sem hún vann í héraðsdómi í nóvember 2004 og nú síðast í Hæstarétti þann 22. september. Nauðgararnir voru dæmdir til að greiða henni skaða- bætur fyrir að hafa svívirt líkama hennar og æru. Ein með ofbeldismönnum Fórnarlambið hitti ofbeldis- mennina á fimmtugskvöldið fyrir verslunarmannahelgina 2002. Hún var ein síns liðs á skemmtistaðnum Nelly’s og var boðið á borð þar sem þeir Heiðar, Haukur og Karl sátu ásamt fleira fólki. Þegar staðnum var lokað var ákveðið að fara í eft- irpartí en þegar ekkert slfkt fannst var ákveðið að fara heim til Karls Sædal, sem þá bjó í blokkaríbúð í Torfufelli. Stjörf af hræðslu í blokkaríbúðinni sátu íjór- menningarnir um nokkra stund. Kvöldið tók þó örlagaríka stefnu þegar konan ákvað að fara inn í eitt herbergja íbúðarinnar þar sem Hæstiréttur Sögulegur úrskurður kveðinn upp 22. september. hægt var að reykja. Þar var staddur Heiðar Ágúst Ólafsson, þrítugur Suðumesjamaður. Konan segir að hún og Heiðar hafi rætt saman og reykt sígarettur um nokkra stund en skyndilega hafi hann ráðist á sig, tekið sig háls- taki og sett hönd sína fyrir munn hennar. Því næst sleppti hann henni en skipaði henni um leið að afklæðast. Konan var þá þegar orð- in stjörf af hræðslu. Hún sagði ffá því síðar að skömmu fyrir nauðg- unina hafi hún séð þátt með Oprah Winfrey þar sem konum var sagt að streitast ekki á móti. Það myndi að- eins auka líkumar á því að hún yrði beitt meira ofbeldi. Gerðu sig klára Konan gerði því eins og Heiðar skipaði henni. Hann hóf að nauðga henni. Konan sagði við lögreglu að hún hafi verið of hrædd til þess að kalla á hjálp enda þekkti hún mennina sem frammi vom ekki neitt. Líklegast hefði það heldur ekki breytt miklu því á meðan Heiðar Ágúst fékk vilja sínum fram- gengt vom félagar hans frammi að gera sig tibúna til að taka þátt í sví- virðingunni. Dofin og hrædd Fyrstur til þess að koma inn var frændi Heiðars, Haukur Hauksson sem kom inn í herbergið með lim- inn beran og stinnan. Því næst vin- ur frændanna og leigjandi íbúðar- innar, Karl Sædal, sem kom inn í herbergið á nærbúxunum einum fata. Á meðan Heiðar hafði samfar- ir við konuna aftanfrá lét Haukur hana hafa við sig munnmök. Seinna, þegar konan var beðin um að lýsa því hvað hafði gerst, sagði hún að það væri eins og þetta ætti að ganga hringinn. Totta einn og annar upp á sig. Svo koll af kolli. Það eina sem hún gat gert var að loka augunum, sagði hún seinna. Hún sagðist hafa verið dofin, hrædd og aðeins hugsað um að halda lífi. Þrjú ár Þegar þremenningarnir luku sér loks af fór Heiðar inn á klósettið og þreif sig. Haukur og Karl, sem báð- ir em fjölskyldumenn, fóru fram í stofu. Þegar Heiðar var búinn að þrífa sig kom hann fram og vildi meira. Við það brotnaði konan niður og fór að gráta. Heiðar hreytti þá ein- hverju í hana og varð reiður. Karl bað hann um að róa sig og það virt- ist duga til. Heiðar og Haukur yfir- gáfu þá íbúðina og röltu út á bensínstöð, sem er skammt frá. Karl bað konuna um að vera áfram því Haukur og Heiðar gætu beðið eftir henni fyrir utan. Konan féllst þó ekki á það og sagði síðar að eina hugsun hennar hefði verið að komast út og burt. Það gerði hún og hljóp beinustu leið til vinafólks sem býr skammt ffá. Því næst hringdi hún beint í lögreglu sem var komin á staðinn þremur mínútum síðar. Það tók íslenska réttarkerfið hins vegar þrjú ár að ná fram réttíæti, ef réttlæti skyldi kaila, fyrir fórnar- lamb þessa hræðilega verknaðar. andri@dv.is Heiðar Ágúst Ólafsson Fæddur 1975. Forsprakkinn í bópnauðguninni. Gátu samræmt vitnisburð Frændurnir Heiðar Ágúst Ólafsson og Haukur Hauksson sem tóku þátt i hópnauðgun á konu á heimili Karls Sædal voru ekki handteknir vegna kæru fórnarlambs þeirra eins venja er. Lögreglan ákvað frekar að boða þá til yfirheyrslu viku siðar. Það gaf frændunum tima og tök á því að samræma vitnisburð sinn fyrir lögreglu. Þriðji maðurinn, Karl Sædal, var handtekinn daginn eftir nauðgunina en sleppt samdægurs eftir skýrslu- töku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.