Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Page 28
28 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
snu/^tivuucíunu
Gróa Ásgeirsdóttir, þjón
ustustjóri Flugfélags fs-
iands. Erl vinnu og skóla
ásamt þvíað vera með heim
« en leggur jafnframt mikið
UPP úr þvl að líta vel út.
Brúnleitur varalitablýantur firá
NoName
Ég nota hann oft yfir daginn
ásamt glossunum.
ít COSMStlCS ICtlAND
Gloss frá Channel, margir litir
Ég nota mjög mikið varaliti. Vin-
konur mínar segjast spæna upp
sína varaliti ef þær eru lengi nálægt
mér því þetta er
smitandi. Þær taka upp sína varaliti
þegar ég tek upp mína.
Spegiil
Að sjálfsögðu. Maður verður að
sjá hvað maður er að gera.
Púður firá Mac
Þettta er svona púður sem
hressir upp á útlitið
þegar þreytan segir
til sín.
Gylltur augnblýantur frá Mac
Mér finnst hann bæði fallegur,
þægilegur og mátulega látlaus.
Gróa Ásgeirsdóttir, framleiðslu- og þjónustustjóri hjá Flugfélagi fslands, opnar
snyrtibudduna sína að þessu sinni. Hún segist alltaf mála sig áður en hún fer að
heiman á morgnana og það sem er í buddunni er til að halda snyrtingunni við
yfir daginn. Dagarnir eru langir hjá Gróu því í viðbót við vinnuna hefur hún haf-
ið nám við Háskólann í Reykjavlk. Þar er hún að loknum vinnudegi frá fjögur tii
níu. „Þetta er rosalega gaman. Bæði er námið skemmtilegt og svo kynnist mað-
ur nýju fólki og uppgötvar að það er líf handan við tölvuna manns í vinnunni.
En maður verður náttúrlega að líta þokkalega út," segir hún hlæjandi.
Athafnakonan
Fabrikan er fimm manna auglýsingastofa
sem fagnaði tveggja ára afmæli nú í september. Það voru
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir, Inga Elsa Bergþórsdóttir og
Valgerður G. Halldórsdóttir sem stofnuðu fyrirtækið eftir að
hafa áður unnið á ýmsum vettvangi í auglýsingageiranum.
Gréta verður fyrir svörum, en
hún er hæstánægð með fyrirtækið
og samstarfið. „Þetta hefur gengið
mjög vel hjá okkur. Við erum ný-
fluttar í eigið húsnæði í Ingólfs-
stræti 5 og finnst við vera í mið-
punkti Reykjavíkur."
Varðandi rekstrarfyrirkomulag-
ið segir hún að yfirbygging fyrir-
tækisins sé engin. „Hér eru engir
yfirmenn eða undirmenn þótt
verkefnum sé skipt markvisst milli
okkar. I Fabrikunni sinnum við
jöfnum höndum viðskiptatengsl-
um og hönnun - erum í beinum
samskiptum við viðskiptavininn,
ólíkt því sem tíðkast víða á stóru
stofunum. Við köllum til samstarfs-
aðila eftir þörfum viðskiptavin-
anna og verkefnum. Þannig vinn-
um við til dæmis með textasmið-
um, Ijósmyndurum, vefforriturum,
markaðsráðgjöfum og hugmynda-
smiðum og veljum saman starfs-
hóp sem við teljum hæfa hverju
verkefni best. Með því höfum við
samskipti við fjölbreyttan hóp fólks
sem virkar hvetjandi á skapandi
vinnu. Þetta er líka hagkvæmt
rekstrarfyrirkomulag sem skilar sér
í hagstæðu verði til kúnnans - án
þess að slegið sé af kröfum um há-
gæða vinnu og þjónustu."
Eigendur fyrirtækisins eru allir
grafískir hönnuðir en Gréta segir
það starfsheiti vera að breytast.
„Erlendis tíðkast meiri sérhæfing í
auglýsingageiranum en grafískir
hönnuðir á íslandi gera svo miklu
meira en að vera nákvæmlega það
sem starfsheitið segir til um. Okkar
verksvið nær yfir verksvið nokkurra
starfsheita erlendis."
Um nafnið, Fabrikan, segir
Gréta að einn daginn hafi þær
ákveðið í hálfkæringi að velja nafn
á fyrirtækið með því að opna eld-
gamla orðabók og velja það nafn-
orð sem þær rækju fýrst augun í.
„Fabrika var áður notað hér á landi
yfir verksmiðju og okkur fannst
það hæfa vel - hér fer verksmíði
fram, samhliða hugmyndasmíð-
inni, og þegar mikið er að gera
framleiðum við mikið og vinnu-
dagarnir eru oft langir. En starfið er
skemmtilegt og fjölbreytt - það
skemmtilegasta við þetta allt sam-
an er að sjá hugmyndir verða að
veruleika. Stefnan er svo að halda
áfram að veita viðskiptavinum okk-
ar góða þjónustu - og gera svo
alltaf betur og betur."
Konur hungrar í nýja tegund tímarita
Tímaritið Psychologies hefur slegið í gegn í Evrópu og er rifið úr hillunum
á Spáni, Ítalíu og Frakklandi þar sem það er í öðru sæti á eftir hinu vin-
sæla Marie Claire.
Útgefandi tímaritsins í Bret-
landi, Hachette Filipacchi, gerði ít-
arlegar kannanir meðal breskra
kvenna áður en ráðist var í útgáfuna
og niðurstaðan varð sú að konur
hreinlega þráðu að sjá nýjar áhersl-
um á tímaritamarkaðnum. Að sögn
ritstjóra bresku útgáfunnar,
Maureen Rice, leiddi könnunin
tvennt í ljós: „Annars vegar að kon-
ur hungrar í nýja tegund tímarita og
hins vegar að nú er í gangi ný bylgja
í lífi kvenna sem hefur verið nefnd
þriðja bylgjan. Sú fyrsta tengist ár-
unum 1960-1970 þegar konur vökn-
uðu til nýrrar félagslegrar vitundar
og skoðuðu upp á nýtt merkingu
orða eins og „eiginkona" og „kyn-
þokki". Bylgja númer tvö tengist ár-
unum 1980-1990 þegar konur
streymdu út á vinnumarkaðinn,
urðu efnahagslega sjálfstæðar og
uppgötvuðu kraftinn í sjálfum sér.
Nú teljum við að þriðja bylgjan sé
hafin," segir Rice, „þar sem konur
einbeita sér að jafnvægi og sönnum
lífsgæðum, leitast við að skilja sjálf-
ar sig og öðlast þroska, bæði einar
sér og í öllum sínum samböndum.
Um það snýst einmitt
Psychologies." Rice segir að tímarit-
inu hafi verið ætlað að höfða til
kvenna á aldrinum 30-55 ára en
strax fyrstu dagana eftir það kom út
fór að berast tölvupóstur frá konum
og körlum á öllum aldri.
„Ef fólki er umhugað um sjálft
sig, hegðun sína og sambönd í lífinu
þá hentar þetta tímarit. Þessi hlutir
skipta máli hvort sem maður er 25
eða 65 ára.“ segir Rice. „Ég elska
sjálf góð tískutímarit og slúður. Ég
býst ekki við að fólk muni endilega
skipta um tímarit heldur bæta
þessu við þau sem það les nú
þegar."
Meg Ryan prýðir forsíðu fyrsta
tölublaðsins í Bretlandi undir fyrir-
sögninni: „Ég þurfti að breyta öllu í
lífi mínu" en þar er hún í viðtali við
ritsjtórann sjálfan um móðurhlut-
verkið, skilnaðinn og það að verða
miðaldra. Meðal annars efnis í
blaðinu eru svör sálfræðings við
ýmsum spurningum, greinar um
meðvirkni, foreldrahlutverkið og
hjónabandið, svo eitthvað sé nefnt,
en blaðið lætur sér fátt mannlegt
óviðkomandi.
Forsíða Psychologjes í
Bretlandi. Meg Ryan erí opin■
skáu viðtali við ritstjórann.