Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2005, Side 40
40 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER2005 Helgarblað DV Brenndi son sinn lifandi Tæplega þrítug kona er fyrir rétti I Ohio I Bandaríkjunum sökuð um að hafa brenntéára son sinn lifandi. Nicole Diar byrlaði Jakobi syni slnum lyfog kveikti I húsi þeirra eftir aö hann var sofnaður. Ef hún verður fundin sek geturhún áttyfirhöfði sér dauðarefsingu. Kviðdómur fékk I vikunni að heyra að Nicote hafi brunnið illa þegar hún var barn en ástæða fyrir morðinu liggur ekki fyrir. Stal af munað- arleysingjum Sextugur bandarískur viðskiptafræð- ingur hefur verið dæmdur 140 ára fangelsi fyrir að stela milljónum doll- ara af munaðarleysingjum og öryrkj- um. Maðurinnjames R. Gibson, var dæmdur til að greiða meira en 83 milljónir til fórnarlamba sinna. „Þú ert algjörlega samviskulaus/'sagði dómarinn en Gibson hafði lifað í vellystingum árum saman og hafði meðal annars keyptsér glæsilega lúxusskútu. Hann hafði peningana af fórnarlömbunum með svikum og peningaþvotti. Ung stúlka finnst myrt Átján ára stúlka fannst látin á götum Croydon ísuður London í vikunni. SannlyAnne Bowman hafði verið stungið til bana en krufning leiddi I Ijós að henni hafði blætt út. „Þetta er þvllík sóun á lífi ungrar konu," sagði lögreglan við fjölmiðla. „Við biðjum aila þá sem gætu vitað eitthvað um málið að gefa sig fram." Þrír karl- menn, unglingur, tvítugur maöur og fullorðinn karlmaður, hafa verið handteknirí tengslum við málið. Ekk- ert morðvopn hefur fundist. Rann- sókn málsins heldur áfram. Alexander Pring-Wilson var 25 ára nemandi úr Harvard sem kom frá efnaðri efri stéttar fjölskyldu. Michael Colono var sonur fátækra innflytjenda. Örlögin leiddu þá saman í apríl árið 2003. Fjölskyldur þeirra munu aldrei jafna sig eftir hinn ör- lagaríka fund sem endaði með morði. Herra Hv/tari en hvítt Fjölmiölar teiknuðu upp mynd afAlexandersem ofdekruðum krakka sem hafði fæðst með silf- urskeið í munninum. Alexander Pring-Wil- son Sanders eins og hann var kallaður kom úr auð- ugri fjölskyldu. Hann átti allt lífið fram undan og allir spáðu því aðhann myndi ná langt. auk annarrar stúlku sem hafði verið með honum úti á lífinu. Stelp- an svaraði ekki en kviðdómur fékk að heyra símtalið á símsvaranum. „Tveir menn réðust á mig á leiðinni heim. Ekki segja neinum en ég stakk einn þeirra. Eg er loksins kominn heim eftir að hafa gengið alla leið og er að drepast úr hausverk. En ég skemmti mér þvílíkt vel. Við verðum að gera þetta aftur bráðlega. Taia við þig síðar. Bless." Þegar lögreglan yfirheyrði hann daginn eftir breytti hann sögunni og sagðist aðeins hafa ætlað að hjálpa ókunnum manni sem Colono hafði ráðist á. Þegar hann hafi séð mann- inn draga upp hníf hafi hann hins vegar forðað sér. Lögreglan fann hins vegar blóðugan hnífinn heima hjá honum og vinkonur hans sögð- ust hafa séð hann með hnífinn fyrr um kvöldið. Pring-Wilson var ákærður fyrir morð. Ætlaði aðeins að hjálpa „Er eðlilegt að vera með hníf á sér á djamminu? Pring-Wilson hafði aldrei lent í vandræðum áður og til hvers bar hann þá á sér vopn? Ef hann var svona klár af hverju gekk hann þá ekki í burtu þegar mennirn- ir fóru að hreyta í hann ónotum? Michael Colono beið ekki boðanna en hann var óvopnaður. Hinn ákærði réðist á óvopnaðan ungling," hélt saksóknarinn fram. Lögfræðingur Alexanders kom með aðra útgáfu. „Alexander hélt að mennirnir í bflnum væru villtir. Þeg- ar hann ætlaði að hjáipa þeim réðist Colono að honum. Hvað átti hann að halda? Allt í einu mundi hann eft- ir hnífnum sínum og dró hann úr vasanum til að verja sig." Þama hafði Alexander komið með nokkrar útgáfur frá atburðin- um. „Ef hann er saklaus af hverju sagði hann þá ekki sannleikann strax," spurði saksóknarinn og benti á að einu ummerkin um slagsmál væru örlítið mar á enni Alexanders. Peningar eru völd Eftir langa umhugsun og miklar deilur komst kviðdómur að niður- stöðu. Pring-Wilson var sekur um annars gráðu morð og dæmdur til sex til átta ára fangelsisvistar. Fjölskylda Colono trúði ekki sín- um eigin eyrum. „Alexander er kannski gáfaður en mér finnst afar heimskulegt að fremja morð," sagði systir Michaels. „Völdin sem hvítir, rfldr karlmenn hafa eru skelfiieg. Peningar em völd en þeir ættu ekki að hafa áhrif á réttlætið. Af hverju skiptir máli hvort hann komi frá auðugri fjölskyldu? ímyndaðu þér refsinguna sem fátækur innflytjandi fengi fyrir að myrða ríkan, hvítan strák." Rígur miili stétta „Ég trúði ekki mínum eigin eyr- um þegar lögreglan hafði samband við mig," sagði Cynthia móðir Alex- anders. Hún var fyrrverandi sak- sóknari og vissi strax að sonur henn- ar var í miklum vandræðum. „Ég þekki son minn og veit að hann er ekki ofbeldisfullur. Ég skil ekki hvað getur hafa gerst sem leiddi til þess að vesalings drengurinn týndi lífi sínu." Málið kom af stað miklum deil- um í samfélaginu. Pring-Wilson var úr efnaðri efri stéttar fjölskyldu en Colono sonur fátækra innflytjenda. Sanders, eins og hann var kallaður hafði fengið gott uppeldi. „Við vor- um öll sammála um að þessi dreng- ur færi á toppinn," sagði John Riker prófessor í Harvard-skólanum. „Hann hefði getað orðið frábær há- skólakennari, viðskiptajöfur, lög- fræðingur eða stjórnmálamaður." Herra hvítari en hvítt Fjölskylda Colono gat aðeins ímyndað sér hvers konar Iífsstfl Al- exander og hans fjölskylda stund- uðu. Michael hafði eignast barn með kærustunni sinni aðeins 15 ára gamall og hafði á bakinu nokkra dóma fyrir líkamsárásir og fíkniefna- sölu. „Það eina sem við fáum að Sögunni breytt A meðan á þessu stóð hringdi Al- exander nokkur símtöl sem áttu síð- ar eftir að skemma fyrir honum. Hann hringdi í 911 og tilkynnti um líkamsárás. „Einhverjir menn stukku út úr bfl og réðust að öðrum og ég heyrði að einhver öskraði að hann hefði verið stunginn. Sá meiddi gekk í burtu en ég var vitni að þessu." Þegar hann kom heim til sín hringdi hann í vinkonur sínar sem höfðu orðið vitni að árásinni Hvað gerðist nákvæmlega þann 12. aprfl 2003 á götum Cambrigde í Massachusetts mun lfldega aldrei koma almenniiega í ljós. Alexander Pring-Wilson, 25 ára afburða náms- maður úr Harvard-háskóla, gekk heim rétt eftir miðnætti eftir skemmtun. Hann og vinkonur hans biðu eftir píitsu þegar gamall bfll keyrði upp að þeim. Eitt er víst. Inn- an nokkurra mínútna voru siagsmál hafin. Alexander, sem gekk alltaf með hníf á sér, stakk hinn 18 ára Michael Colono í hjartastað sem lést af sárum sínum. Michael Colono Michael varð faðirað- eins 15 ára gamall. Hann átti afbrotaferil að baki en hafði reynt að snúa við blaðinu. heyra er hversu frábær námsmaður Alexander var," sagði Marcus bróðir Michaels. „Hann átti frábæra fjöl- skyldu, hann átti framtíðina fýrir sér, hann var svo hæfileikaríkur. Mér verður óglatt af þessu rugli. Bróðir minn var ekki vopnaður. Herra Hvít- ari en hvítt var það. Annars væri Michael á lífi í dag. Það er stað- reynd." Lést á sjúkrahúsi Lögfræðingur Alexanders sagði skjólstæðing sinn hafa dregið upp hnífinn í sjálfsvörn. Colono hefði kallað Alexander niðrandi nöfiium. Samkvæmt vinkonum Alexanders fóru mennirnir tveir að rífast sem endaði með því að Alexander bað Colono um að stíga út úr bflnum. Pring-Wilson var mun stærri og þyngri en Colono. Michael var samt hvergi hræddur enda hafði hann lent í verri aðstæðum og stökk út úr bflnum með hnefana á lofti. „Ég sá þennan stóra mann kýla hann nokkrum sinnum," sagði bflstjórinn. „Ég héit að hann væri að kýla hann og gerði mér ekki strax grein fyrir að hann væri með hníf. Þegar ég gerði mér grein fyrir því stökk ég út úr bflnum og ýtti Alexander af honum. Við komum Michael upp í bflinn og keyrðum af stað í leit að næsta sjúkrahúsi." Fundinn sekur Cynthia Pring gengurút úr réttarsalnum eftir að sonur hennar var fundinn sekur. Hvítur, píhup og stóphættulegup Harvard Alexand- erætlaði að verða lögfræðingur. Sakamál Ung stúlka drepin af fyrrverandi kærasta móður hennar Myrti og framdi sjálfsmorð Fórnarlamb Fyrrverandi kærasti móður Caitlin rændi henni og myrti. Hann framdi svo sjálfsmorö. Lík unglingsstúlku frá Okla- homa sem hvarf er hún gekk heim úr skólanum í síðustu viku fannst á mánudaginn. Caitlin Elizabeth Wooten, sem var 16 ára, hafði verið skotin tii bana. Lík af fyrrverandi kærasta móður hennar fannst einnig á sama stað. Lögreglan telur að maður- inn hafi framið sjálfsmorð eftir að hafa myrt Caitlin. „Hinn látni, Jerry Don Savage, hafði oft hringt í ömmu Caitlin og hótað að meiða stúlkuna," sagði tals- maður lögreglunnar og bætti við að Savage hefði verið handtek- inn nokkrum sinnum fyrir að reyna að ræna móður stúlkunnar sem hafði í kjölfarið fengi nálg- unarbann á hann. „Við handtók- um Savage í síðasta mánuði en hann hafði sloppið út rétt áður en Caitlin hvarf. Við vorum því að leita að honum því okkur grunaði að hann vissi um stúlk- una." Savage hafði keyrt með stúlk- una upp að bóndabæ þar sem líkin síðar fundust. Bóndinn á bænum hefur verið handtekinn í tengslum við málið en hann og Savage voru kunningjar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.