Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Sport DV
Ólafur Stefánsson er ekki
rifsbeinsbrotinn eins og óttast
var, eftir því
sem Einar Þor-
varðarson sagðí
við DV Sport í
gær. „Hann
verður hvíldur
gegn Dönum í
dag (í gær) en
við vonumst til
að hann verði
klár fyrir Ungverjaleikinn á
sunnudag," sagði Einar. Mark-
vörðurinn Roland Valur Eradze
var ekki heldur með íslending-
um gegn Dönum í gær en hann
meiddist á æfingu fyrr í vik-
unni. Búast má við því að frek-
ari ákvarðanir verði teknar í
hans máli í dag.
Serbar náðu sér
á strik
Landslið
Serbíu -
Svartfjalla-
lands vann í
gær góðan
sigur á Ung-
verjum á
EM í Sviss
en liðin eru með íslandi í riðli.
Serbar náðu sér vel á strik eftir
að hafa tapað fyrir íslendingum
í fyrradag og juku möguieika
sína á sæti í milliriðlum um-
talsvert. Sigur gegn Dönum á
morgun gulltryggir áffamhald-
andi þátttöku á mótinu. Zikica
Milosavljevic skoraði átta mörk
fyrir Serba sem höfðu eins
marka forystu í hálfleik. Ung-
verjar náðu mest þriggja marka
forystu í fyrri hálfleik en Serbar
héldu forystu sinni allan sfðari
hálfleikinn.
Ólafur ekki
brotinn
íslenska handboltalandsliðið tryggði sig áfram í milliriðlakeppn-
ina eftir jafntefli gegn Dönum í æsispennandi leik. Þar sem Ung-
verjar töpuðu í gær geta Islendingar ekki lent í neðsta sæti riðils-
ins og skiptir því leikurinn gegn Ungverjum engu máli. ísland er
komið áfram í milliriðlakeppnina með þrjú stig í farteskinu. ís-
lendingar fengu tækifæri til að tryggja sigurinn í síðustu sókn
leiksins en dómarar leiksins refsuðu ekki fyrir brot danskra varn-
armanna á síðustu stundu og jafnteflið því staðreynd.
Danir skoruðu fyrsta mark leiks-
ins eftir nokkuð langa fyrstu sókn en
íslendingar voru mun fljótari í þeirri
næstu. Arnór Atlason var greinilega
staðráðinn í að sýna sig og sanna og
keyrði sig laglega í gegnum vöm
Dana. Því miður varði Kasper Hvidt,
markvörður Dana, sem hefur okkur
oft reynst erfiður ljár í þúfu.
Brottvísun snemma í leiknum
Vamarleikurinn var frábær gegn
Serbum og hann byrjaði ágætlega á
móti Dönum. Sigfús Sigurðsson fékk
að vísu tveggja mínútna brottvísun
strax á fjórðu mínútu og mátti ís-
lenska liðið alls ekki við því að hann
lenti f „vifluvandræðum". Það var
hins vegar afar jákvætt að Birkir ívar
Guðmundsson varði vítið sem dæmt
var á Sigfús.
Ólafur Stefánsson var fjarri góðu
gamni og þó svo að Guðjón Valur
Sigurðsson væri með fyrirliðaband-
ið í hans stað þá var það Snorri
Steinn Guðjónsson sem dró vagn ís-
lenska liðsins á vellinum. Hann
skoraði tvö af fyrstu fjórum mörkum
íslands á meðan Danir skomðu að-
eins eitt. Danir tóku leikhlé í þeirri
stöðu, strax á sjöundu mínútu, og
greinilegt að þeir voru bangnir.
„Þjóðarsálin getur
huggað sig við að
ísland er komið áfram
í milliriðlakeppnina."
um mönnum þegar mest á reyndi og
Asmussen í marki Dana datt í „stuð-
ið". Leikur íslands hmndi algerlega
undir lok hálfleiksins en þeir náðu
þó að bjarga andlitinu fyrir rest.
Arnór naut sín
Þar sem Ólafur var fjarverandi
bjuggust flestir við því að Einar
Hólmgeirsson myndi blómstra en
þvert á móti var það Arnór Atlason
sem greip óvænt tækifærið. Hann
skoraði fjögur góð mörk í fyrri hálf-
leik og gaf þar að auki fjórar
stoðsendingar. Einar byrjaði reynd-
ar síðari hálfleikinn af krafti og jók
forystu íslands í tvö mörk.
íslendingar héldu naumu for-
skoti fyrsta stundarfjórðunginn í
síðari hálfleik en ljóst var að Danir
ætluðu ekkert að gefa eftir. Leegaard
hélt áfram að hrella íslenska liðið og
virúst sem að Danir skomðu úr nán-
ast hverri einustu sókn.
Dæmigerð barátta
| Guðjón Valur Sigurðsson
og Daninn Lars Jorgen-
sen berjast um boltann I
leiknum / gær. Guðjón
Valur varþó langt frá
slnu besta I leiknum en
fékk reyndar úr litlu að
moða.
Sætt jafntefli-lsland
Auðvelt hjá
Rússum
Rússland
vann skyldusig-
ur á Portúgal í
D-riðli í gær og
er því enn með
fulit hús stiga
eftir fyrstu tvo
leikina. Rússar jg
náðu fljótlega
þriggja marka forystu og leiddu
í hálfleik með sex marka mun
og var sigur liðsins aldrei í
hættu. Mestur var munurinn
átta mörk og gátu Rússar leyft
sér að slaka á síðasta stundar-
fjórðunginn. Portúgalar náðu
að minnka forskotið í fjögur
mörk áður en yfir lauk.
Norðmenn réðu
ekki við
Króata
Króatar unnu
Ifjögurra marka
Isigur á Norð-
Imönnum í gær,
128-32, en Króatar
Ihöfðu gott
forskot stærsta hlut leiksins og
vom með sex marka forskot í
hálfleik, 20-14. Norðmenn hafa
þar með tapað báðum leikjum
sínum og spila úrslitaleik við
Portúgali á sunnudag um sæti í
milliriðlinum. Norðmenn réðu
lítið við Ivano Balic sem
skoraði 8 mörk úr 11 skotum.
Birkir ívar frábær
Birkir ívar byrjaði einnig leikinn
frábærlega og lokaði markinu þessar
fyrstu mínútur. Hvidt gekk hins veg-
ar illa og kom váramarkvörðurinn
Kristian Asmussen inn á og byrjaði á
því að verja fyrstu tvö skotin sem á
hann komu. En Birkir fvar hélt
áfram að verja eins og berserkur og
við það fílefldust leikmenn fslands.
Þegar það virtist sem að íslend-
ingar ætluðu að sigla endanlega
fram úr Dönunum tóku við skelfileg-
ur fimm mínútna leikkafli þar sem
Danir skoruðu fimm mörk í röð og
jöfnuðu leikinn. Viggó tók þá leik-
hlé, sagði sínum mönnum að ör-
vænta ekki og tókst þeim að bæta
við einu marki áður en flautað var til
leikshlé.
Skyttan Per Leegaard fór fyrir sín-
Hvarvoru hraðaupphlaupin?
Hraðaupphlaupsmörkin voru af
skornum skammti í leik íslands og
vantaði þar tilfinnanlega Ólaf Stef-
ánsson til að bera upp boltann. En
Viggó gat leyft sér að nota þá Sigurð
Eggertsson og Heimi örn Árnason
þó væri í aðeins skamman tíma og
komu þeir með ferskleika í íslenska
liðið. I sömu sókninni fengu tveir ís-
lendingar að fjúka út af og þótti það
ekki góðs viti. Danir komust í kjöl-
farið yfir í leiknum í fyrsta skipti síð-
an á fyrstu mínútu.
Æsispennandi lokamínútur
Danir komust í tveggja marka
forystu og tókst okkar mönnum ekki
að jafna leikinn á ný fyrr en í þriðju
tilraun. Strax í næstu sókn fengu
leikmenn íslands tækifæri til að
„Cuðjón Valur Sigurðsson skoraði sitt fyrsta og
eina mark í leiknum á 54. mínútu og segir það
meira en margt annað"
komast yfir en Hvidt varði slappt
skot Arnórs. Danir tóku leikhlé í
kjölfarið og héldu í sókn er rúm mín-
úta var til leiksloka. Þeir fengu hins
vegar dæmda á sig leiktöf og reyndu
íslendingar án árangurs að skora í
kjölfarið en án árangurs. Viggó Sig-
urðsson tók leikhlé er átta sekúndur
voru til leiksloka. fslendingar stilltu
upp, Alexander keyrði á vörnina og
reyndi skot en það var brotið á hon-
um og skotið geigaði. Ekkert var
dæmt hins vegar og jafntefli stóð.
Jafntefli betra en tap
Þetta eru ásættanleg úrslit miðað
við stöðuna þegar tíu mínútur voru
eftir en íslenska liðið átti aldrei að
hleypa Dönum inn í leikinn eftir að
hafa byggt upp svo gott forskot í fyrri
hálfleik. En jafntefli er betra en tap
og getur þjóðarsálin huggað sig við
að fsland er komið áfram í
milliriðlakeppnina með þrjú stig.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
sitt fýrsta og eina mark í leiknum á
54. mínútu og segir það meira en
margt annað. eirikurstaydv.is
Liðsheildin stóð upp úr í fjarveru Óla
„Þetta var stórkostieg skemmt-
Mikill baráttuleikur þar sem
sigurinn gat endað hvoru megin
sem var," sagði Sigurður
. Valur Sveinsson,
, handboltaþjálfari og
\fyrrum landslið-
jskempa en hann er
’ sérfræðingur DV
e Sports. Hann var
kampakátur eftir
leik Islands og
Dana í gær. „Við
vorum í raun
óheppnir að svo fór sem fór því við
áttum að byggja upp enn meira
forskot í fyrri hálfleik en við gerð-
um. En þetta var engu að síður
mikill sigur fyrir okkur í dag því úr-
slitin í leik Serba og Ungverja þýða
að við erum komin áfram með
góða möguleika á að taka þrjú stig
með okkur í milliriðilinn.
Það er alveg ljóst að við eigum
Einar Hólmgeirsson inni en Arnór
Atlason stóð sig frábærlega í gær.
Þarna er á ferð ungur drengur sem
tók einfaldlega af skarið og sýndi
■■■■■■■
úr hverju hann er gerður. Það var
sérstaklega jákvætt í ljósi þess að
Ólafur var ekki með og Guðjón
Valur náði sér ekki á strik. Það gera
úrslit þessa leiks enn betri fyrir
vikið. Birkir ívar átti einnig skín-
andi góðan leik og skóp þá forystu
sem við náðum í fyrri hálfleik. En
að öðru leyti er erfitt að taka
ákveðna menn út - liðsheildin var
það sem stóð upp úr í fjarveru Óla.
Það þarf ekki að eyða mörgum
orðum í það hversu litlu mátti
muna að við hefðum tapað leikn-
um. Þá væri staða okkar allt önnur.
En núna erum við í algerri lykil-
stöðu og þurfum ekki að taka
nema tvo leiki í milliriðlinum og
þá erum við komnir í leiki um
verðlaunasæti - eins og ég var
löngu búinn að spá fyrir um. En
það þýðir ekkert að slá slöku við í
næsta leik. Við eigum að gera það
sem við gerum best, keyra á þá frá
fyrstu mínútu og klára dæmið
strax í fýrri hálfleik. Strákana á að
hungra í að ná sem allra bestum
árangri."