Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2006, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2006
Helgarblaö DV
I Samvlskusöm Margrét
Oaaa bætir upp fyrir van-
kunnáttu sina i elda
mennsku með þvi að setja
alltafi uppþvo tta vélina.
Eldhúsiö mitt
Forsteíkt snitzel og
pakkakartöflumús Það eina
sem er á boðstólum þá sjald-
an Margrét eldar.
Árið 1988 sló lag Magnúsar Kjartanssonar, Sólarsamba, í gegn svo um munar í forkeppninni fyrir
Eurovision. Lagið er enn þann dag í dag gríðarlega vinsælt, sérstaklega þegar fer að nálgast sumar.
Dóttir Magnúsar, litill stelpuhnokki með tíkóspena, söng lagið með honum. Stelpuhnokkinn er kona í
dag. Hún heitir Margrét Gaua Magnúsdóttir, er kennari og skipar fjórða sæti á lista Samfylkingarinn-
ar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. DV fékk að líta inn í eldhúsið hennar.
WWtOfHiBDUÍ
mmhed potatoes
Þetta er það eina sem ég get
eldað, forsteikt snitzel af ýmsu
tagi. Grísa, nauta, lamba og svo
eru það náttúrlega kjúklingamán-
arnir. Þeir hafa komið mjög sterkir
inn í seinni tíð, en þeir eru seldir
með mismunandi fyllingum. Úr-
valið er orðið svo mikið. Með
þessu geri ég svo pakkakart-
öflumús frá Maggí,“ segir Margrét
Gaua Magnúsdóttir þegar hún er
spurð af afrekum í eldhúsinu sem
virðast ekki hafa verið mikil í gegn
um tíðina.
Brennir kartöfiumúsina
Margrét segist sjaldan klúðra
matnum þá sjaldan hún eldar
enda hafi hún í raun aldrei eldað
neitt að viti. „Ég er svo dekruð í
þessum málum, ég er alin upp af
mömmu sem hefur unun af elda-
mennsku, síðan giftist ég manni
sem hefur einnig unun af elda-
mennsku og í vinnunni eldar Sollí
matráðskona ofan í mig. Þannig að
ég bý, og hef búið, vel í þessum
málum."
Margrét segir eldamennskuna
vera eitthvað sem vex henni í aug-
um. „Ef ég er ekki góð í einhverju
þá geri ég það ekki. Þetta er eins og
með BA ritgerðina mína. Hún vex
mér líka í augum. Ég er ekki góð í
að gera hana. En snitzelin og mús-
in eru mitt mál. Ég fer eftir leið-
beiningunum og þetta er yfirleitt
alveg ljómandi. Samt brenni ég
stundum kartöflumúsina því þar
þarf að hafa virkilega snör hand-
tök.“
spyrnu hjá FH. Hún á með honum
dótturina Björk sem er átta ára og
hundinn Óskar sem er þriggja ára.
Þau hjónin eiga svo von á öðru
barni í ágústbyrjun. „Ég ætla að
eiga það á afmælisdegi Odds afa
míns, þriðja ágúst, þótt fæðingin
sé sett á þann fyrsta."
Fjölskyldan býr í Bjarnabæ,
gömlu húsi við Suðurgötuna í
Hafnarfirði. Þau hafa eytt miklum
tíma í að gera húsið upp en eiga þó
nokkuð langt í land. „Þetta er allt
að koma. Húsið er orði flott að
innan, til dæmis er eldhúsið stórt
og flott. Við eigum samt eftir að
taka það í gegn að utan.“
Stefnir á toppinn
Margrét hefur mikið starfað að
æskulýðs og félagsmálum og var
lengi vel formaður ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði. Hún skipar
nú fjórða sætið hjá Samfylking-
unni í væntanlegum sveitarstjórn-
arkosningum og stefnir enn hærra
í framtíðinni „Ég ætla að verða
fyrsti kvenbæjarstjórinn í Hafnar-
fírði. Ég er bara rétt þrítug þannig
að fjórða sætið er fínt núna."
Þegar barnastjarnan fyrrver-
andi er spurð hvort forn frægð nýt-
ist henni í pólitíkinni segir hún svo
ekki vera. „Nei, það er frekar hið
gagnstæða. Ég var lengi vel kölluð
Magga Sólarsamba, en það hefur
nú verið minna um það í seinni
tíð.“
Samfylkingin hefur verið sterk í
Firðinum síðustu ár og segist Mar-
grét vera viss um að áframhald
verði á velgengninni sérstaklega ef
hún stígi á stokk með Gunnari
Svavarssyni á kosningafundum
þegar nær dregur. „Við eigum
samt eftir að ræða það betur," seg-
ir Margrét að lokum og hiær.
rap@dv.is
Eiga von á öðru barni
Margrét er gift Davíð Arnari
Stefánssyni, smið og garðyrkju-
fræðingi sem einnig þjálfar knatt-
UNI
Helgarnar mættu vera lengri
Ásgeir Kolbeinsson er dagskrár-
gerðarmaður á Sirkus, fyrrverandi dag-
skrárstjóri FM957 og síðast en ekki síst
helgarpabbi.
Ásgeir segir tímann sem hann eyðir
með syni sínum fvani Degi, sem er
nýorðinn þriggja ára vera mjög dýr-
mætan. „Það er rosafínt að vera helg-
arpabbi en auðvitað vildi maður eiga
meiri tíma með honum. Þessar helgar
mættu vera svo miklu lengri. En þetta
er rosalega fínn tími þegar ég er með
hann og þegar ég er ekki með hann hjá
mér þá hef ég allavega eitthvað til að
hlakka til.“
Alltaf eitthvað skemmtilegt
Ásgeir segir það gríðarlega mikilvægt
fyrir börn að samkomulag foreldranna
sé gott. „Það er líka mjög mikilvægt að
það sé gott á milli foreldranna því ef það
er ekki skilar það sér beint heim.“
Ásgeir segist reyna að gera eitthvað
skemmtilegt í hvert skipti sem ívan Dag-
ur er hjá honum. „Hvað við gerum
hverju sinni fer oft eftir veðri og vindum.
Það er alltaf gaman að fara út ef það er
hægt, að fara í sveitina að skoða dýrin.
Það er frábært að fara í dýragarðinn í
Slakka eða eitthvað styttra eins og í
Heiðmörk. Maður reynir að gera eitt-
hvað öðruvísi en þetta daglega þegar við
erum saman."
Andabrauð og húsdýr
Það er minna um sveitaferðir hjá
þeim feðgum um háveturinn. „Það er
ekki hægt að fara mikið í langferðir núna
en maður getur farið út á snjóþotu og
svoleiðis. Eða náttúrlega þetta týpíska,
að gefa öndunum brauð eða fara í hús-
dýragarðinn. Svo er líka voðalega gott að
hangsa bara og eyða tíma með honum,
maður hefur ekki svo mikinn tíma og
ekki hægt að vera á þeytingi allan tím-
ann."
Þegar Ásgeir er spurður hvort hann
fmni fyrir því að kvenfólk setji það fyrir
sig að hann eigi barn kveðst hann svo
ekki vera. „Einu konurnar sem setja það
fyrir sig eru konur sem hafa engan áhuga
á börnum. Ég held að maður mundi ekk-
ert hafa fyrir því að kynna þær fýrir barn-
inu sínu hvort sem er.“
DV-mynd Hari