Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2006, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006
Síðast en ekki síst DV
♦
Kiddi Rót í framboð
Þær fréttir berast frá Hveragerði
að veitingamaðurinn og fyrrum ráð-
herrabflstjóri Jóns Baldvins, Kiddi
Rót, hyggi á framboð. Ætlar Kiddi að
freista þess að ná fjórða sætinu á
sameiginlegum framboðslista Sam-
fylkingarinnar og Framsóknar-
flokksins í Hveragerði.
Kiddi Rót er vel kynntur í Hvera-
gerði en þar hefur hann rekið ágætt
veitingahús um tíma. Er staðurinn
ekki síst þekktur fyrir róm-
antíska hamborgara sem
njóta vinsælda hjá vegfarendum. Þá
er Kiddi einnig með pizzur sem
þykja ekki verri en þær sem seldar
eru í höfuðborginni.
Ekki er vitað til þess að Kiddi Rót
hafi áður farið í framboð en hann
kann þó ýmislegt fyrir sér í þeim
efnum eftir að hafa ekið Jóni Baldvin
um árabil á meðan sá síðarnefndi
var ráðherra. Ók Kiddi þá oft hratt
en aldrei nema eftir skipun ráðher-
rans.
Þátttaka í pólitík í Hveragerði
getur leitt til frekari frama á því sviði
og er skemmst að minnast þess
þegar Árni Magnússon var formaður
bæjarráðs á staðnum. Nú er hann
félagsmálaráðherra eins og alþjóð
veit. í ljósi þess er ómögulegt að
segja til um hvernig þetta endar hjá
Kidda Rót. Kannski fær hann sjálfur
ráðherra-
bílstjóra
áður
en
langt
um
h'ður.
Leikn-
um er
ekki lokið
fyrr en
dómarinn
hefur blásið 1
flautuna.
Hvað veist þú um
varaforseta
Bandaríkjanna
1. Hvað heitir varaforseti
** Bandaríkjanna?
2. í forsetatíð hvers var
hann starfsmannastjóri
Hvíta hússins?
3. Hver er vinurinn sem
varaforsetinn skaut óvart
um helgina?
4. Hvenær er varaforsetinn
fæddur?
5. Hvað heitir eiginkona
hans?
Svör neðst á síðunni
Hvað seqir
mamma?
„Hún var farin að syngja áður en hún fór
að tala,“segir Sigriður Ouðmarsdóttir,
móðir Tinnu Bjarkar Guðjónsdóttur Idol-
stjörnu.„Þegar hún var iáttunda bekk fór
hún að blómstra I söngnum og söng við
hinarýmsu uppákomur hér á Egilsstöð-
um. Mér finnst hún standa sig ótrúiega vel
og það þarfsterk bein til að standa
frammi fyrir alþjóð og syngja. Tinna er
mjög sjálfstæð og býryfir miklu jafnaðar-
-r geði. Hún eryndisleg stelpa og ég er mjög
stolt af henni."
Sigríður Guðmarsdóttir er móðir
Tinnu Bjarkar Guðjónsdóttur Idol-
stjörnu, sem datt úr keppninni síð-
astliðið föstudagskvöld. Tinna er
fædd 18. maí 1989 og hefur búið á
Egilstöðum frá þvi hún fæddist. Hún
er við nám í Iðnskólanum í Reykjavík
á hársnyrtibraut.
GOTT hjá Jóni Sigurðssyni hjá Össuri að
gefa fótalausa Pólverjanum gervilimi.
1. Richard B. (Dick) Cheney. 2.1 tíð Geralds Fords. 3.
Harry Whittington lögmaður. 4. 30. janúar 1941. 5.
Lynne Ann Vincent.
Garöar Thar í Laugardalshöll
Syngur meö breskri dívu
Tenórinn Garðar Thor Cortes mun
halda tónleika í Laugardalshöllinni í lok
aprfl ásamt bresku óperusöngkonunni
Katherine Jenkins. Það er Concert, um-
boðsfyrirtæki Einars Bárðarsonar, sem
stendur fyrir tónleikunum. Garðar Thor er
staddur í Feneyjum þessa dagana þar sem
hann fór í prufur fyrir hlutverk í stórri óp-
erusýningu í Óperunni í Feneyjum. Hann
er væntanlegur heim fyrir helgi til að syngja
í öskubusku í íslensku óperunni.
Einar Bárðarson sagði í samtali við DV
að ekkert yrði til sparað á tónleikunum hjá
þessum söluhæsta tónlistarmanni á íslandi
á síðasta ári. „Hann hélt stórkostlega tón-
leika í Grafarvogskirkju og við ætlum að
endurtaka þá tónleika nema bara gera þá
glæsilegri. Það verða „allir stælarnir" tekn-
ir, hljóð, ljós og tenórar í bullandi gír.“
Eins og áður sagði verður ekkert til spar-
að til að gera þessa tónleika sem glæsileg-
asta. Einar sagði að 24 manna strengjasveit
myndi spila undir auk rythmasveitar með
þá Friðrik Karlsson og Óskar Einarsson inn-
anborðs. Garðar Cortes mun stjórna hljóm-
sveitinni sem spilar undir söng sonar hans
og Jenkins.
Aðspurður um Katherine Jenkins sagði
Einar að það væri frábært að fá þessa söng-
konu til landsins sem væri einn glæsilegasti
fulltrúi ungu kynslóðarinnar
í Bretlandi í dag.
„Það er ekki sjálfgef-
ið að söngkona eins og /
hún komi til íslands J' t
og syngi. Hún hefur
meira en nóg að |
gera og þarf ekki á
minni hjálp að'
halda til að verða
sér út um verkefni,"
sagði Einar og
bætti við að
hann byggist
við fjölda
áhorfenda frá
Bretlandi enda
kæmi Jenkins
sjaldan fram.
Katherine
Jenkins Glæsi-
leg kona með
fagra rödd.
Nordic
Photos/Getty
Images
JohnTravolta-dansarnir kenndir
„Þetta var það sem er kallað
Street Hustle-dans,“ segir Sóley
Jóhannsdóttir, fyrrverandi dansari
og danskennari. Gamla myndin er
tekin árið 1980 á hinum goðsagna-
kennda skemmtistað Hollywood. Á
henni taka Sóley og Garry Kosuda
danspor.
„Garry Kosuda kom til þess að
kenna Street Hustle-dansana.
Þessir diskódansar voru rosalega
vinsælir á þessum tíma. Þetta var
dansbylgja sem var að ganga yfir
heiminn í kjölfar Saturday
Night Fever. Eftir að mynd-
in var sýnd fylgdum við
henni eftir með því að fá
Garry til þess að kenna
John Travolta-dansinn,"
segir Sóley, sem hætti að
kenna dans fýrir um tíu
árum síðan.
„Nú er ég að sjá um
leikfimi en ég sakna þess
að kenna að dansa."
Garðar Thor Cortes
Metsölusöngvari syngur á
stórtónleikum I Höllinni.
Diskódans Á myndinnistiga Sói-
ey Jóhannsdóttir og Garry Kosuda
þekkt spor, sem sáust meðal ann-
ars ÍSaturday Night Fever.
Krossgátan
Lárétt: 1 kæn,4ólykt, 7
brúkar, 8 hópur, 10 jörð,
12 svik, 13 götu, 14 yfir-
ráð, 15 heiður, 16 naut,
18 skipalægi,21 gagns-
lausi,22 orðrómur,23
sál.
Lóðrétt: 1 fikt, 2 ofn, 3
vandvirkni, 4 óstöðuga,
5 væta, 6 sár, 9 hindra,
11 nærri, 16 fjör, 17 upp-
haf, 19 stök, 20 flýtir.
Lausn á krossgátu
■|se 07 'ma 6L Ioj zl
'dyj 91 '6æ|eu l l 'erye 6 'pun 9 'ej/C s 'ej|eA||eg y 'mjæ6jso>t £ 'uuo 7 je>| 1 luajQo-j
•|pue £7 'ped zz 'IJAuo 17 'e6a| 81
'JJej 9 L 'ejse s l 'PIQa f l 'Bjjs £ L jej 7 L 'pue| 0 L 'suej 8 'Jejou 7 'n|Aj y '>|op| l :uatn
DV-mynd Valli