Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2006, Blaðsíða 42
42 LAUCARDAGUR 4. MARS 2006
Helgarblað DV
::3¥ilg8l
Felix Bergsson er mikill sælkeri. Þrátt
fyrir að hafa áhuga á matargerð segist Fel-
ix ekki gefa sér nógan tíma í eldhúsinu.
■ Matargerðin verði því oft skylda frekar en
hitt. Felix bauð DV í heimsokn í eldhúsið.
Felix Bergsson
„Égermjög
spennturfyrir
sumrinu enda er
grillið ákafiega
góð eldunarað-
ferð þvi maturinn
verður ekki eins
feitur fyrir vikið."
eigi ekki að borða mat sem buinn se
til annars staðar og því er maður í
stökustu vandræðum með að finna
hollan skyndibita. Ég fer nú ekkert
endilega eftir þessu en veit að þetta
er alveg rétt hiá henni."
V
„Ég er eins duglegur í eldhúsinu
og ég get og það fer eftir því hversu
mikið er að gera," segir Felix Bergs-
son leikari og annar umsjónar-
manna þáttarins 6 til sjö sem sýndur
er á Skjá einum.
Grænmeti með öllum mat
Felix og sambýlismaður hans
elda alltaf þegar börnin þeirra eru
áýá þeim. „Við reynum að vera dug-
legir í eldhúsinu og þá sérstaklega
þegar börnin eru hjá okkur sem er
um það bil helmingur tímans. Þá
eldum við allt mögulegt eins og
kjúkling og fisk og stundum folalda-
kjöt sem okkur þykir voðalega gott,“
segir Felix og bætir við að hollur
matur skipti þá miklu máli. „Við
erum ekki með grænmetisrétti á
boðstólum en pössum upp á að
boðið sé upp á grænmeti með öllum
mat." Hann segist hafa mikinn
áhuga á mat og eldamennsku en
hafa hins vegar afar takmarkaðan
"tíena til að leika sér í eldhúsinu.
„Fyrir vikið verður matseldin meira
að skyldu en hitt. Það sem ég kann
lærði ég í skóla og það nám hefur
reynst mér afar vel.“
Gaman að grilla
Uppáhaldsmaturinn hans Felix
er fiskur. Hann segist hlakka mikið
til sumarsins enda séu þeir Baldur
duglegir að grilla. „Ég er mjög
spenntur fyrir sumrinu enda er
grillið ákaflega góð eldunaraðferð
því maturirm verður ekki eins feitur
fyrir vikið. Við grillum oft í viku og
erum með ansi góða aðstöðu á sól-
pallinum," segir hann. Felix segir
eldhús þeirra vel búið nýjustu græj-
um en þeir séu ekki nógu duglegir í
að prófa sig áfram í lífrænt rséktuð-
um matvælum. „Við erum vel búnir
tólum og tækjum enda er vel passað
upp á mann og manni gefið hitt og
þetta sem vantar. Varðandi lífrænt
ræktaða matinn áetla ég að fara að
taka mig á í þeim efnum og því fylgj-
ast með þættinum Heil og sæl sem
sýndur er á Skjánum."
Erfitt að fá hollan skyndibita
Felix segist hugsa mikið um holl-
ustuna í þeim mat sem hann láti
ofan í sig og sína. Þegar börnin séu
hjá þeim borði þeir hollari mat en
þegar þeir eru tveir heima. „Þegar
við erum tveir erum við ekki eins
bundnir af því að borða heima og
förum því frekar í ræktina um
kvöldmatarleytið og fáum okkur svo
eitthvað á Viktor eða Thorvaldsen.
Dísa í World Class segir að maður
Fer reglulega í ræktina
Þegar Felix er spurður út í uppá-
haldsveitingastaðinn nefnir hann
Austur-Indíafjelagið enda spennt-
ur fyrir indverskum mat. „Mér
finnst þessi staður alveg geggjaður
enda er ég heilmikið fyrir ind-
verskt þótt ég kunni ekki að búa
hann til sjálfur. Þegar við erum í
útlöndum finnst okkur líka
gaman að prófa nýja staði og
það sem landið býður upp á
hverju sinni. í París eltum við
hins vegar uppi eitthvað öðru-
vísi og spennandi og fórum ný-
lega á íranskan stað sem var
rosalega skemmtilegt auk þess
sem við förum reglulega á gyð-
ingastaði," segir Felix og bætir
við í lokin að þótt hann sé mik-
ill sælkeri passi hann Íínurnar.
„Mér fmnst ekki verra að fá
smá sykur við og við en ég
reyni að passa mig og fer
reglulega í ræktina."
indianatwdv.is
^ Samkvæmt nýrri breskri rannsókn fitnessgúrúsins Dax Moy
eyðir nútímamaðurinn 22 tímum á dag liggjandi eða sitjandi
Hreyfingarleysi ogröng líkams-
beiting veldur sjúkdómum
Grænmeti með ollu „Við
erum ekki með grænmetisrétti á
boðstólum en pössum upp á að
boðið sé upp á grænmeti með
öllum mat.“
BSM
Ef þú ert á meðal þeirra 80% sem
finna stöðugt til í bakinu gætirðu
kannski fengið bót þinna mála.
Hvernig berðu þig? Ef þú lagar stöð-
una líturðu ekki aðeins út fyrir að
vera hærri og grennri heldurðu bæt-
irðu heilsuna líka. „Slæm líkams-
staða getur orsakað mörg vandamál
tengd heilsunni," segir breski fit-
nessgúrúinn Dax Moy. Hann heldur
því fram að með rangri líkamsbeit-
ingu getirðu nælt þér í leiðinlega
sjúkdóma líkt og mígreni og síþreytu
auk þess sem slæm líkamsbeiting
verði til þess að við meltum matinn
síður. Moy heldur ffam að mörg okk-
ar hangi firam á tölvurnar í stað þess
að sitja upprétt í skrifstofustólnum.
„í rannsókn sem byggði á 200 ein-
staklingum kom í ljós að næstum all-
ir þátttakendur eyíidu um það bil 22
klukkustundum liggjandi eða sitj-
andi fyrir framan tölvu eða sjónvarp.
Líkaminn aðlagast þessu letilífi sem
veldur því að vöðvar og líffæri hætta
að starfa á sinn eðlilega hátt," segir
Moy. Sem betur fer taki ekki nema
28 daga þjálfun til að laga þetta.
„ímyndaðu þér að það sé bein lína
frá ökklum, í gegnum líkamann,
hnén, mjaðmimar, brjóstkassann og
eyrun. Þetta er hin rétta líkams-
staða," segir Dax.
Bakverkur
Stattu bein og
lagaðu bakið.