Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2006, Blaðsíða 48
DV Fréttir
Lesendur
48 LAUGARDAGUR 4. MARS 2006
Charlie Chaplin aðlaður
Hetja þöglu myndanna, Charlie
Chaplin, var aðlaður af Elísabetu
Bretlandsdrottningu á þessum degi
árið 1975. Chaplin fæddist árið 1889
og skildu foreldrar hans skömmu
síðar. Móðir hans gat hvorki séð fyrir
honum né eldri bróður hans og svo
fór að þeir fengu vist á
munaðarleysingjahælinu Hanwell.
Hann hóf snemma leikferil sinn enda
einungis fimm ára þegar hann lék
fyrst á sviði. Hann kom til
Bandarfkjanna árið 1912 ásamt vini
sínum Stan Laurel, sem síðar varð
þekktur í tvíeykinu Stan and Hardy,
eða Olli og Steini upp á íslensku.
Ferill hans varð hraður upp á við,
enda hafði Chaplin einstaka hæfileika
til að miðla tilfinningum til fólks í
gegnum kvikmyndir. Persónugerð
hans varð að vörumerki. Myndir eins
og The Kid og Gold Rush urðu
geysivinsælar og með tilkomu
talmyndanna náði Chaplin nýjum
hæðum með myndum eins og The
Great Dictator (Einræðisherrann) og
Limelight. Árið 1919 stofnaði hann,
ásamt öðrum, dreifingar- og
framleiðslufyrirtækið United Artists
og sat í stjóm þess fram á sjötta
Charlie Chaplin Ihlutverki sínu sem
einræðisherra.
áratuginn. Á tímum McCarthyismans
í Bandaríkjunum varð hann fyrir
töluverðu áreiti yfirvalda sem lauk
með því að vegabréf hans var
afturkallað. Hann fluttist búferlum til
Sviss og kom aðeins einu sinni aftur
til Bandaríkjanna, þá til að taka á móti
heiðursverðlaunum óskarsins í
I dag
áriö 1971 endurheimtu
íslendingar síöasta
geirfuglinn með hæsta
boöi á uppboði í London.
Fyrir honum hafði verið
safnað um land allt og er
nú í Náttúrufræðistofnun
við Hlemm í Reykjavík.
annað sinn árið 1972.
Við athöfnina í Buckingham
Palace fyrir 31 ári var Chaplin
bundinn við hjólastól. Hann lést að
heimili sínu á jóladag árið 1977. Hans
er minnst sem einnar merkustu
persónu kvikmyndanna fyrr og síðar.
Úr bloggheimum
Síðan opnuð aftur
„Góðir háisar. Þessi heimasiða
er svolítið eins og unglingspilt-
ur sem rétt skrapp meðafa sin-
um I sund I Garðabæjartaugina.
Fyrir utan að þetta er ekki unglingspiltur
heldur litill strákur.. og hann skrapp ekki í
sund heldur niður i kjallara og þetta er
ekki afi hans heldur Steingrimur Njáisson.“
., Elias Blöndal
- blog.central.is/rulluf
Þjáist af þremur sjúkdómum
v„ég er búin að komast að því
, að ég þjáist af3 hættulegum
sjúkdómum. LETI, EINBEIT-
INGALEYSI og SVEFN-
LEYSI......já eins og þið getið
imyndað ykkur er þetta
hræðilegt að vera svona veik en
ég bara nýkomin með þessa sjúkdómiÝog
vil ég trúa þvl að ég hafí smitast afykkur
stelpurli! T.d. er ég að fara I jarðfræðiprófá
morgun og ég er ekki búin að lesa
staf....jábbs believe it or not þá bara meika
ég ekki að opna bók og ég er með rifandi
samviskubit."
Perla Steinsdóttir
- blog.central.is/9princess
'vj’eyna sitt besta en
misakast
; „Það er eitthvað við fyrstu
• tinuna ÍFixYou meðCoid-
[ play, sem er svo einfalt en
> samt svo sorglegt að mig
langar alltafað verða dramatísk
og fara aðskæla þegar ég heyri hana.
„When you tryyour best butyou dorít
succeed“. Þvl það ætti að vera bannað.Að
gera sitt besta og mistakast samt. I góðum
ameriskum biómyndum geristþað til
dæmis aidrei, þá er nóg að bíta á jaxlinn
og gera sitt besta og þá gengur allt upp.“
Unnur Margrét Arnardóttir
- vettlingur.blogspot.com
Hvítur svertingi
„Ég eraðskifa fyrsta text-
ann minn I mánuð núna.
Seinasti texti sem ég skrif-
aði var I laginu Kinkaðu Kolli
sem er feat. Maximum og ein-
hverjir ættu að hafa heyrt (efekki er það á
www.myspace.com/herraskitsama).Text-
inn sem ég er að skrifa er við lag sem heitir
hvað þykist þú geta dæmt mig? þar sem
ég er að svara fyrir allri gagnrýni sem að
ég fæ, ekki rapplega heldur bara i lífínu.
L/ka fyrir 1 og hálfu ári sá ég þetta þegar
það var birtur linkur á b2.is undir nafninu
hvítur svertingi."
Guðjón „Ramses" Helgason
-blog.central.is/herra_skitsama
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Dýrar flatbökur á Pizza Hut
Gunnar skrifar.
Mér datt nú bara í hug að skrifa
þetta þegar ég las fimmtudagsblað-
ið. En þar var maður sem segir Múla-
kaffi dýran stað, að hann hafi keypt
saltkjöt sem var alveg rándýrt. Þaðan
fékk ég hugmyndina að því að skrifa
um þetta. Eg og nokkrir félagar mín-
ir fórum um daginn á Pizza Hut. Við
erum sestir og farnir að skoða mat-
seðilinn. En þá blöskrar okkur gjör-
samlega. 16“ pitsumar á Pizza Hut
Lesendur
eru að kosta um 3000 krónur, já ég
sagði 3000 krónur fyrir eina pitsu án
alls meðlætis og án goss. Svo er hægt
að kaupa þarna könnu af t.d. pepsi
eða coke eða hvað sem það var og þá
kostar ein kanna sem er 1,7 lítrar
heilar 830 krónur. Já, 830 krónur, er
bara ekki allt í lagi með þá sem
ákveða verðin á þetta? Tveggja lítra
flösku af kóki eða pepsi getur maður
fengið í Hagkaup eða einhverstaðar
bara á innan við 200 krónur. En
þarna er verið að leggja á ekki einu
sinni tvo lítra heilar 630 krónur.
Þetta er svo mikið rugl, þegar maður
labbar framhjá Pizza Hut þá er orðið
nóg fyrir mann að sjá fólk þar inni.
Maður bara hugsar, hvað er fólk eig-
inlega að pæla? Er fólki alveg gjör-
samlega sama um peninginn sinn?
Já, allavega ég og mínir félagar fórum
einu sinni á þennan stað og aldrei
aftur. Að minnsta kosti ekki ef þetta á
að vera svona dýrt. Þegar mað-
ur er farinn að þurfa að borga
3000 krónur fyrir eina pitsu og
830 krónur fyrir 1,7 lftra af gosi
þá getur maður nú bara farið
eitthvað annað. Þetta er algjört
rugl og ég skil ekki af hverju fólk
er tilbúið að borga svona svim-
andi háar upphæðir fyrir pitsu og
gos. Vert að taka fram að ég hef
akkurat ekkert á móti Pizza Hut.
Það er-bara verðið eitt sem fær mann
til þess að koma ekki þarna inn.
bygging sem ég vil setja út á. Ég vil
benda þeim mönnum sem halda um
stjómartaumana í bænum að standa
að annarri uppbyggingu. Sú upp-
bygging lýtur að tómstundum. Það er
sorgleg staðreynd að í Reykjanesbæ
er Ktið sem ekkert hægt að gera á
kvöldin. Jú, það em kaffihús og síðan
er það þessi frægi rúntur upp og nið-
ur Hafnargötuna í bænum. I bæjarfé-
laginu er enginn keilusalur, engin
skautahöll, enginn leikjasalur og al-
menningur hefur aðgang að tveimur
snókerborðum og tveimur poolborð-
um. Meira er það ekld. Við og for-
svarsmenn Reykjanesbæjar verðum
að gera okkur grein fyrir því að það
þarf að byggja upp ýmiss konar af-
þreyingu fyrir íbúana á svæðinu ef
þetta á að vera ákjósanlegur staður tif
þess að búa á í framtíðinni. Meirihluti
íbúa, sem vill gera eitthvað skemmti-
legt á kvöldin, sækir afþreyinguna í
Reykjavík. Þökk sé tvöföldun Reykja-
nesbrautar þá er eldd ýkja langt í
skemmtunina.
Tómstundir Erþað sem vantarí
Reykjanesbæ að mati
Guðbjargar en hún sækir
afþreyingu i Revkiavík I stnrímr,
Byggið upp tómstundir
Guðbjörg skrííar:
Ég er íbúi á Suðumesjum og vil
fyrst koma því á framfæri að ég er
mjög hlynnt þessari miklu uppbygg-
ingu sem á sér stað í Reykjanesbæ.
íbúum fjölgar hratt og allir sem vilja
geta byggt hús. Það er þó ekki sú upp-
Lesendur
Svava Sigbertsdóttir
fór í skólabúning og
lékíauglýsingu.
Ballerínan segir
2000 nærbuxna-
lausarskólastelpur
Svakaleg prófavika var að
klárast hjá mér. Ég sýndi nokkur
verk á dag. Var meðal annars í
afrískum ættbálk, hershöfðingi,
egypskur þræll og hefðarfrú frá
1850. Svo leikstýrði ég líka. Þetta
eru búnir að vera frábærir dagar,
samt langir og erfiðir.
En Guð, spennan í skólanum!
Fólk niðurdregið og grátandi því
verkin þeirra gengu illa. Ég hef
ekkert grátið því að, auðvitað,
elskuðu þau mín. Hahahaha!
Fyrir utan að vera í stanslaus-
um prófum og að vinna, lék ég
einnig í auglýsingu fyrir MTV og
Channel á. Verið er að auglýsa
The School Disco geisladiskinn
og það var algjör brandari. Við
vorum sjö og þurftum að klæðast
týpískum skólabúning: stuttu
pilsi, hnésokkum, skyrtu og niMft
tíkó. Það voru því ansi margir'**'
sem gláptu á mig þegar ég tók
lestina í þessum druslubúningi
niðrí bæ.
Auglýsingin var tekin upp á
klúbbi. Ég vissi eklci að það væru
til klúbbar, sem þú verður að
vera f skólabúning til að komast
inn. Staðurinn rúmar um 3000
manns og er alltaf troðfullur! Og
það er svið í miðjunni og þar
vorum við sjö að dansa við
skólatónlist og með myndavélar.
Þetta var ótrúlega sérstök
reynsla en eftir fimm tíma var ég
samt orðin frekar þreytt á því að
hrista á mér rassinn.
En ótrúlegur klúbbur! Þarna
voru konur upp í sextugt klædd-
ar eins og litlar, óþekkar skóla-
stelpur og ég sá, því miður oftar
en einu sinni, að margar voru
ekki í neinum nærbuxum. Ha
strákar! ímyndið ykkur bara,
2000 skölastelpur að missa sig.
Stórfengleg hundasýning um helgina
„Eg mátti aldei eiga hund sem
krakki," segir Hanna Björk Kristins-
dóttir, sýningarstjóri hundasýning-
ar Hundaræktarfélags fslands sem
haldin verður um helgina. „Þess
vegna var ég dugleg við að banka
upp á hjá nágrönnunum sem áttu
hund til að fá hann lánaðan og
viðra. Þegar ég svo flutti að heiman
tók ég strax að mér hund. Ári síðar
var ég komin með þrjá hunda og
einn kött í þessari litlu tveggja her-
bergja íbúð sem ég bjó í. Síðan þá
hafa dýrin verið mismörg og af ólík-
um tegundum. Ég hef lengi verið
með hesta, hæsni, kalkúna, gæsir,
hunda og ketti en fuglarnir eru
reyndar flognir frá mér núna. Það
að vera í nærveru dýra er að nauð-
synleg fyrir mig enda gefa þau svo
mikið til baka.“
Hanna segir mikinn ! misskiln-
ings gæta um Hundaræktarfélagið.
„Það halda margir að við séum
félag um hundaræktun. Það er ekki
megintilgangurinn, heldur snýst
þetta um að rækta hundinn sinn og
félagsskapurinn er öllum opinn,
enda er um að ræða mikið og öflugt
starf félagsins sem nú telur um 2000
félaga. Félagið er ekki bara fýrir
hundana, heldur fólkið, enda eru
það eigendumir sem em félags-
menn, en ekki hundarnir sjálfir. Við
þurfum að gera mikið í að eyða
þessum fordómum í okkar garð.
Hanna segir hundasýningu sem
þessa vera mikið afrek þeirra sjálf-
boðaliða sem að henni koma.
„TU að gera þetta svona glæsilegt
eins og hefur verið, er mikil sjálf-
boðavinna að baki, enda væri
ómögulegt að gera þetta öðruvísi.
Markmiðið með sýningunni er að
dæma hunda samkvæmt hans
ræktunarmarkmiði.
„Það halda margir að
við séum félag um
hundaræktun og að
við séum snobbhanar
sem erum bara með
hreinræktaða hunda."
Hver hundur á sitt ræktunarmark-
miðið sem segir til um hvernig
hundur af viðkomandi tegund á að
líta út, svo sem varðandi lfkams-
byggingu, feldgerð, lundarfar og
fleira. Héma á íslandi em til svo
margir fallegir hundar svo ég geri
ráð fyrir mjög skemmtilegri helgi."
Hundasýningin verður haldin um
helgina í Reiðhöll Fáks í Víðidal.
Hanna er fædd og uppalin í Reykjavík, dóttir hjónanna Sigrúnar Ingibergsdóttur og
Kristins Jóhannessonar. Hún stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík og Viðskiptaskóla
Stjórnunarfélagsins. Hún starfar nú sem skrifstofustjóri Hundaræktarfélags (slands.
.. 3