Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 43
Helgarblað UV
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 43
bræðurnir hvor á sínu hljómborð-
inu, rythmasveitin er drifin áfram
af þeim Axel Riel og Niels Henn-
ing, gestirnir eru blakkir: blásarinn
Ben Webster, sem hafði þá búið
um nokkurt skeið í Danmörku og
lést skömmu eftir upptökur plöt-
unnar, og stór kvennakór sem fór
um Höfn og söng með í þremur
lögum. Babylon var illa tekið. Hún
markaði líka endalok samstarfs
Savage Rose og stærri plötuútgef-
enda. Þau skiluðu einni plötu til
Polidor 1973 sem ber táknrænt
nafn: Wild Child.
Alþýðuiistamenn
Langt hlé á hljóðritunum gekk í
hönd. Næsta plata þeirra kom ekki
út fyrr en 1978.
Útgefendur voru andstöðufor-
lögin Mai, Nexo og Rosen. Þessi ár
eru kölluð neðanjarðarárin í þeirra
sögu: Áhuginn fór að snúast meira
um gleymda andstöðutónlist. Þau
tóku upp akústísk hljóðfæri, hættu
að spila rafmagnaða tónlist,
Thomas tók nikkuna meira í notk-
un og allur blærinn á ferli þeirra
þessi ár minnir mest á þjóðlaga-
hreyfinguna sem var á þessum
árum að mestu horfin.
Það er þó í þennan tíma sem
þau koma fram í dagsljósið marg-
oft sem virkir kraftar í allskyns
fundum og sámkomum sem bar-
áttufólk. Hjá þeim blandast saman
líf og list, stjórnmál og einkalíf: De
kan ikke slá os ihjel varð fleygt lag
á þessum árum til varnar fríríkinu
Kristjaníu og það er til marks um
þá almennu viðurkenningu sem
þau nutu að Thomasi var falið að
semja lag til minningar um hund-
rað ára afmæli fótbolta í Dan-
mörku: Stjerneskud er annað og
meira en hvatningarsöngur fyrir
þann sem tekur boltann og skýtur
- það er hylling til lífsins, leiksins,
og er talið með sígildum sönglög-
um dönskum.
Tveggja heima
Þau hjón tóku sér langt hlé frá
hljóðritunum frá 1990 til 1995 og
voru þá komin til Silver Lake í Los
Angeles þar sem þau hljóðrituðu
safn laga sinna frá fyrri tíð: Black
Angel. í kjölfar þess fluttu þau sig
um set og dvöldu jöfnum höndum
í Los Angeles, á Púertó Ríkó og
höfðu nýverið keypt sér hús í
sumarbústaðahverfi sunnan við
Kaupmannahöfn í gömlum
Kolonihave.
Þá voru þau aftur farin að ferð-
ast reglulega til Danmerkur og
sópuðu að sér áhorfendum í tug-
um þúsunda hvenær sem þau
voru á ferðinni með stórhljóm-
sveit sína. Þar í landi eru þau ekki
síst tákn fyrir baráttu gegn stríði
og valdsmennsku af hvaða tagi
sem er. Voru aktíf í mótmælum
gegn Iraksstríðinu undir það síð-
asta.
Tónleikaplatan Are you ready
kom út 2003, en frá 1998 höfðu
þau sent frá sér þrjú lagasöfn sem
eru að mestu spiluð af Thomasi í
þungum vef margvíslegra hljóð-
færa. Thomas hafði nýlokið við
einleiksdisk sem mun væntanlega
koma út á þessu ári og í bígerð var
tónleikaferð um Danmörku í haust
Savage Rose var eina
norræna bandið sem
náði viðurkenningu vest-
an hafs fyrir daga Abba.
Þau eru eitt affáum nor-
rænum böndum sem
hafa virðingarsess í dæg-
urlagamenningu vestan
hafs og er oft til þeirra
vitnað í yfirlitsverkum
um merkustu bönd síðari
hluta aldarinnar.
Thomas Koppel á Hróarskelduhátíðinni 2002
og frágangur á nýjum hljóðritun-
um í nafni sveitarinnar.
Eitt af fáum norrænum
böndum
Savage Rose var eina norræna
bandið sem náði viðurkenningu
vestan hafs fyrir daga Abba. Þau
eru eitt af fáum norrænum bönd-
um sem hafa virðingarsess í dæg-
urlagamenningu vestan hafs og er
oft til þeirra vitnað í yfirlitsverkum
um merkustu bönd síðari hluta
aldarinnar.
Jafnframt störfum í Savage
Rose vann Thomas Koppel verk
fyrir stærri hljómsveitir eins og
Visions Fugitive fyrir píanó og
hljómsveit, Sinfóníu fyrir börn
götunnar og Trúðinn frá Sarajevo.
Hann samdi balletttónlist fyrir
skautasvellið í Tívolí eftir sögunni
um Nýju fötin keisarans, sinfón-
ískt verk, Mass for a Case og leik-
hústónlist af ýmsu tagi og vann við
kvikmyndir.
Mynd:Polfoto
Listamaður þjóðar sinnar
Honum var sýndur ýmis heiður
af dönskum sjóðum og þau hjón
voru bæði tilnefnd til verðlauna
Norðurlandaráðs, hvort þeirra sitt
árið. Koppel var heiðraður með
ævilaunum úr danska Listasjóðn-
um 1998. Verk Savage Rose voru
talin til helstu menningarverð-
mæta dönsku þjóðarinnar á um-
deildum lista danska mennta-
málaráðuneytisins í haust - sem
Thomas og Annisette, rétt eins og
Kim Larsen, mótmæltu harðlega.
Það er til marks um stöðu hans að
báðar rásir danska ríkissjónvarps-
ins helguðu honum heila kvöld-
dagskrá í vikunni eftir andlát hans.
Annisette hefur lýst yfir að
haldið verði áfram: Einleiksdiskur
Thomasar kemur út innan
skamms. Hún ætlar að klára nýja
plötu í nafni bandsins og ætlar
ekki að víkja frá áætlunum um
stóra hljómleikaför um Danmörku
í haust.
í dag hverfur Thomas Koppel til
Thomas Koppel á fyrstu árum Savage Rose Mynd: Polffoto
jarðarinnar sem ól hann og hann
hafði svo mikla trú á að gæti rúm-
að okkur öll. Og himnarnir munu
opnast fyrir þessum mikla mann-
vini og listamanni. pbb@dv.is
Vefir með efni um þau hjón eru margir:
Savagerose.com og thomaskoppel.corH*
eru helstir. Þar má nálgast verk þeirra í
hljóðritunum.
Black Angel Safnplata
þeirra hjóna frá 1995 þar
sem þau endurunnu nokkur
helstu lög sín íLos Angeles.
Babýlon Meistaraverk þeirra
bræðra frá 1972 þar sem kafað
er I gospel-hefðina. Niels Henn-
ing Örsted Pedersen og Ben
Websterléku á henni.
Dödens Triumph Balletttónlist samin
við dans Flemmings Flindt 1970. Mest
sótti ballett I sögu Konunglega danska
ballettsiris meðyfir tvö hundruð sýnmg■
| ar. Platan kom út tveimurarum siðar.
Annisette
Á sviði 2003.
X