Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 52
52 LAUGARDACUR 11. MARS 2006
Sviösljós DV
Ný ásýnd Svona mun
svæðið lita út eftir
framkvæmdirnar.
Nýtt tónlistarhús mun rísa þar sem
Faxaskálinn er í dag. DV kíkti í
miðbæinn og spurði vegfarendur
hvemig þeim litist á hugmyndina.
HEFfll MATT KOMA FYRIR 20 AROM
Marfa Alva Roff
Finnst teikningarnar og hugmyndin frdbær.
Kominn tími til
„Þetta er frábært. Ég hef séð allar teikningarnar og grunnhug-
myndina. Það er allt betra en það sem er núna. Þetta verður svona
verslunargötu-moll. Það er alveg kominn tími til að breyta."
Skúli Helgason
Tónlistarhúsið leggst vel í hann og hefði
mdtt vera búið að þessu fyrir 20 árum.
-V
Musteri tónlistar
„Þetta tónlistarhús leggst
mjög vel í mig. Það hefði mátt
gera þetta fyrir 20 árum. Von-
andi verður þetta musteri fyrir
allar tegundir tónlistar. Teikn-
ingarnar eru ágætar og falla vel
inn í umhverfið. Þetta skemmir
ekki útsýnið."
Pétur Kristján Árnason Fagnar tón-
listarhúsinu.
Ýtir undir mannlífð í
borginni
„Mér líst vel á þetta. Það er
ekkert spes sem ég myndi vilja
sjá þama en engu að síður
spennandi að þarna muni rísa
tónlistarhús. Það er gríðarlega
gott að ýta undir mannlífið í
bænum. Ég fagna þessu, því fyrr
því betra."
Peningaeyðsla?
„Skattpeningurinn hefur far-
ið í meiri vitleysu en þetta."
Klara Sif Skarphéðinsdóttir og
Guðný Ósk Sveinbjörnsdóttir
Finnst byggingin vera ofstór og að við
séum að reyna að herma eftir öðrum
löndum.
Viljum alltaf vera eins og í
útlöndum
„Þetta verður ömgglega geð-
veikt flott, en samt alltof stórt.
Reykjavík er svo lítil og þægileg.
Við viljum alltaf vera eins og í
útlöndum. Fleiri koma samt
ömgglega í bæinn. Ef við fáum
kaffihús verðum við ánægðar."
Jón Örvar Skagfjörðsson
Finnst tónlistarhúsið vera afhinu góða.
Börnin og barnabörnin fá
að njóta þess
„Þetta er fallegt og gott og af
hinu góða, en það tekur tíma að
byggja þetta og ég á ekki eftir að
sjá þetta. Börnin mín og barna-
börn eiga eftir að njóta þess."
Pétur Óskarsson
Pétur segir tónlistarhúsið frábært
framtak og betra en álver.
Alls engin peningaeyðsla
„Teikningamar eru fínar.
Þetta er frábært framtak, betra
en álver. Mér finnst hugmyndin
mjög góð eins og hún er og hef
engu að bæta við hana. Ég held
að þetta verði fjölmenningar-
legt, eða ég vona það að
minnsta kosti.
Peningaeyðsla?
„Nei, langt frá því."