Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 42
42 LAUCARDAGUR 11. MARS 2006
Helgarblaö DV
í dag verður til grafar borinn í Kaupmannahöfn danski hljómborðsleikarinn og lagasmiðurinn Thomas
Koppel. höfuðpaurinn í dönsku hljómsveitinni Savage Rose. Ekkja hans, söngkonan Annisette, lýsti því
yfir á miðvikudag að útförin yrði opinber og allir samferðamenn þeirra Thomasar væru velkomnir til
^ristjánskirkju í Kristjánshöfn. Er búist við að mannfjöldi fylgi Thomasi til grafar.
Thomas Koppel lést á Púertó Ríkó þann 25. febrúar í sumarhúsi
þeirra hjóna. Hann varð bráðkvaddur við hljómborðið sitt og varð
aðeins 61 árs. Hann var fæddur í Svíþjóð, en foreldrar hans höfðu
flúið Danmörku undan Þjóðveijum. Faðir hans var gyðingur.
Mynd-.Polfoto
Thomas var því frá fæðingu í
baráttunni miðri gegn kúgun og
hernaðarhyggju en var aldrei gef-
inn fyrir að renna af hólmi eða
víkjast undan sannfæringu sinni.
Thomas stofnaði Savage Rose
ásamt yngri bróður sínum Anders
og Annisette, síðar eiginkonu
hans, 1966 og dró saman krafta
sem síðar fylgdu hljómsveitinni
4»m yfir 1970, þeirra á meðal hinn
virta djasstrommara Axel Riel.
Thomas leiddi bandið til gríðar-
legra vinsælda í Danmörku og við-
urkenningar um alla Evrópu og í
Ameríku.
Á götunum er fólk með fána
og spjöld
Thomas var menntaður sem pí-
anisti uppá klassískan máta enda
kominn af tónlistarfólki, móðirin
Vibeke og faðirinn Hermann voru
bæði tónlistarmenntuð og börnin
þeirra þrjú lögðu öll fyrir sig tón-
list. Hermann var virt tónskáld og
einleikari á píanó.
Thomas vakti athygli þegar inn-
an við tvítugt sem undrabarn í
tónsmíðum, en sagði að sér líkaði
ekki einsemd æfingasalanna þegar
úti fyrir færi fólk um götur með
fána og spjöld. Hann var tuttugu
og þriggja ára þegar hann stofnaði
Savage Rose ásamt Andrési bróður
sínum, sem þá var farinn að skrifa
og gera kvikmyndir. Þeir fengu í lið
með sér unga stúlku sem var búin
að vera söngkona frá sjö ára aldri,
Annisette Hansen.
Þeir bræður sömdu saman
mest af verkum, lengri stykkjum
og sönglögum, bæði við texta And-
ers, Thomas og síðar Annisette.
Framan af ferli þeirra var
samhljómur þeirra bræðra í píanói
og orgeli eitt helsta einkenni sveit-
arinnar, utan hinnar sérstöku
raddar Annisette.
Upphafsár
Margir sterkir og óvenjulegir
varðar voru á ferli hljómsveitar-
innar: Fyrsta plata þeirra, oft köll-
uð guia platan, stendur fyllilega á
sporði flestu sem stendur uppúr
frá árinu 1968. Önnur plata þeirra,
In the plain, dró uppi Sergent
Pepper sem hafði ráðið í efsta sæti
allra lista, kom út síðar sama ár.
Með sínum gyllta grunni og svart-
röstuðu myndum bar hún með sér
sterkan anda frá átakaárinu sem
skóp hana og kynslóðin var kennd
við.
Sumarið eftir fór bandið vestur
um haf og spilaði á Newport-hátíð-
inni. Savage Rose kom þar fram á
eftir Sly Stone og á undan James
Brown. Þar með voru þau komin á
kortið í Ameríku. Þau áttu vísa um-
fjöllun um verk sín í Rolling Stone
og voru í miklum metum meðal
áhrifamikilla rokkskríbenta. í kjöl-
farið tóku þau Travellin upp í New
York, hún ber merki ferðalaga
sveitarinnar og óvissu í stefnu.
Langferð um Bandarikin skilaði
þeim til Rómar og upptöku á Your
Daily Gift fóru þar fram súmarið
1970. Það var að koma í ljós gjá
milli útgefenda þeirra og lífsstefnu
hljómsveitarinnar: Væru þau til í
að fara til Víetnam og spila nokkr-
um sinnum fyrir hermenn? Nei,
takk.
Sigur dauðans
Savage Rose hlaut að renna sitt
skeið eins og títt var um bönd á
Savage Rose á árið 1969
þessum tíma. Ferðalögin voru
stríð fyrir hljómsveit sem gaf út í
fjöruti'u löndum og brátt fóru
menn að heltast úr lestinni. Þegar
Koppel-bræðrum var boðið að
semja balletttónlist fyrir ungan og
dáðan stjórnanda, Flemming
Flindt, hjá Konunglega danska
ballettinum slógu þau til. Þar
runnu saman í eitt rokk og spenn-
andi hugmynd dansahöfundar.
Verkið var samið eftir leik Ionesco,
Sigri dauðans. Bandið lék á yfir tvö
hundruð sýningarkvöldum og
gafst þannig hlé til að íhuga
áframhaldið. Koppel og Annisette
höfðu þá búið saman um nokkurt
skeið og voru farin að taka æ ríkari
þátt í andófi gegn borgaralegum
öflum. Samnefndur diskur kom út
1972 og verkið endurflutti Ballett-
inn 1994.
í kjölfar þessa kom lokahnykk-
urinn á tíma hljómsveitarinnar í
upphaflegri mynd: Refugee sem
Jimmy Miller, upptökustjóri Roll-
ing Stones á þessum árum, vildi
vinna með þeim. Upptökur voru
unnar á sveitasetri Micks Jagger.
Koppel lýsti henni sem bestu rokk-
plötu þeirra. Hún var hljóðrituð
vítt og breitt um herragarðinn og
sagði Koppel að aldrei hefði hann
kynnst jafn lyfjuðu heimilishaldi
ogíþvíhúsi. Refugeekomút 1971.
Arfur þeirra svörtu
Bræðurnir og Annisette voru
afar spennt yfir Bandaríkjunum og
leituðu uppi tónlist þaðan. Það var
óróatími í hreyfingum blakkra
vestan hafs og þau settu sig vel inn
í þeirra mál. Ur varð meistaraverk-
ið Babylon, svört plata með sálma-
kenndri tónlist þar sem á takast
Manebarn / safni þeirra ski/itast á
verk sem sungin eru á ensku og
dönsku. Barn mánans var siðasta
safnið sem kom frá þeim fyrir seinna
I hléið sem stóð frá 1992 til 1995.
Are you ready Tónleikaplata
frá 2003. Áriö 2002 sóttu hund-
rað og fimmtiu þúsund gestir
tónleika sveitarinnar iDan
mörku. Fyrir dyrum stóð túi
Danmörku næsta haust.
iucu siiiuiii ser-
kennilega hljómi pianós,
hammonds og harpsikords.
setri Micks Jagger undir
stjórn Jimmys Miller 1971