Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 50
> 50 LAUGARDAGUR I1. MARS2006 Menning TSV Síminn er lokaður hjá gömlu kjall- arakonunni því ellilífeyrir hennar var hirtur uppí ýmis gjöld. Hún vefur sig inní ótal sjöl og hímir uppí rúmi sínu mállaus og lömuð af ótta og Svæðis- stjórn málefnanna víðs fjarri og kannski engin mappa til sem geymi skrá yfir hremmingarnar sem lífið og kerfið hafa úthlutað henni af óstórri nísku. tMegas; Bjöm ogSveinn.) Úr sýningunni Við erum öll Marlene Dletrich Nú fá Frakkar aö berja hana augum. Qtrás Dansflokksins (dag heldur (slenski dansflokkur- inn í sýningarferð til Maubeuge ( Frakklandi. Þar mun hann sýna verkið Við erum öll Marlene Dietrich FOR á VIA, alþjóðlegri listahátfð, en eins og íslenskt dans- áhugafólk veit þá er verkið unnið í samstarfi við Maska Production í Slóveníu og Listahátíð í Reykjavik. Sýningarferðin er hluti af mikilli út- rás sem flokkurinn hefur staðið í að undanförnu, en á síðasta ári sýndi dansflokkurinn 22 sýningar í 14 borgum v(ðs vegar um heiminn. Á næstunni liggja fyrir sýningar- ferðir til Glasgow (Skotlandi og Gautaborgar (Svíþjóð.Við erum öll Marlene Dietrich FOR á VIA verður aftur tekið til sýninga á fslandi í ma( á Listahátíð vegna mikillar eft- irspurnar. Einungis þrjár sýningar verða á verkinu. Dansflokkurinn snýr aftur til (s- lands um miðja næstu viku og heldur áfram sýningum áTalaðu við mig. - Slóð hátíðarinnar er: http://www.lemanege.com/via2006 Hver fetar í fót- spor Dags? Kvikmyndahátíðin ( Brussel í Belgíu verður haldin dagana 30.júní til 8. júl(. Sem kunnugt er, þá eru að- standendur hennar alltaf að leita að ungu hæfileikafólki og í tengsl- um við hátíðina verður haldin sam- keppni um hugmynd að kvikmynd 'Tfullri lengd. Ennfremur á keppnin að vera hvatning til ungra evr- ópskra handritshöfunda að þróa hugmyndir sínar. Keppnin er opin fyrir leikstjóra og handritshöfunda frá 25 Evrópulöndum'og tveir þeirra munu hljóta ^yrktil þess að þróa hug- myndir sínar og handrit áfram. Sem kunn- ugt er, þá vann Dagur Dagur Kárl Pétursson Kári Pét Kvikmyndin Voksne Menn- urssontil fari0sl9uríör um Evropu. verðlauna (Brussel (fyrra, fyrir mynd sína Voksne Mennesker, sem kölluð var Dark Horse á engilsaxneskunni. jJJngir (slendingar sem vilja feta í fótspor Dags Kára hafa frest til 1. júnf, til þess að skila inn handriti. Það heyrir ekki til tíðinda að BBC framleiði vandaða þáttaröð um nátt- úrufræði. Þeir eiga langan feril að baki í slíkum röðum og hafa lengi haft hinn virðulega sjónvarpsmann David Attenborough í forsvari. Síð- asta stóra röðin með honum hefur verið á dagskrá Ríkissjónvarpsins um nokkra hríð um líf í lággróðrinum. Bók um heim hryggleysingjanna kom út, fylgdi í kjölfar samnefndrar bókar á markaði á liðnu hausti. Á sunnudag hefst ný röð á BBCl sem nefnd er Planet Earth og ættu þeir sem hafa aðgang að stöðinni um hnött eða á breiðhandinu að doka við. Erfitt efni í Planet Earth stígur breska ríkis- sjónvarpið nýtt skref. Þættirnir voru fjögur ár í vinnslu sem þykir ekki til- tökumál í Bristol þar sem náttúm- deildin er staðsett. Erfiðleikarnir vom ekki síst hvaða tökustaðir vom valdir inn í verkefni: loftmyndir ofan á Everest reyndust erfiðar. Svo hátt flýgur engin þyrla og njósnavélar Nepalstjórnar vom eina leiðin. Snjóhlébarðinn í Afganistan reyndist torfúndinn og vandamál að komast á svæðið nema með nánu samstarfi við hemaðaryfirvöld, bæði hernámsliðs og andstöðumanna. Bjarnahíði á Kóngs Karls landi hafa lengi verið leyndarmál norskra yfirvalda en nú vom þau sótt heim. Háskerputækni Tökumar vom líka erfiðar vegna þess að allt var tekið með HDTV-vél- um. Áhorfendum kemur það ekki til góða, útsendingar em aðeins hafnar í Japan í þessu formati sem skilar I David Attenborough I Hinn vinsæli sjónvarpsmað- I ur heldur áfram störfum Ikominn á eftirlaunaaldur. skarpari mynd en venjulegt sjón- varp, ein bæði þarf útsending og móttaka að vera sniðin að nýjum staðli. Vélabúnaður í tökum er líka í þró- un og vélar sem komnar em á mark- að em enn á þróunastigi. Þannig get- ur aðeins ein vél náð hæghreyfing- um sem kvikmyndavélin á auðvelt með. Því var hlaupandi snjóhlébarði filmaður þannig. Ætla má að Ríkisútvarpið sýni Planet Earth á næsta ári en það hefur lengi átt forgang að efiii af þessu tagi hjá BBC. pbb@dv.is mi Þjóðverjar fá ekki nóg af Jóni Kalmani Á vef bókaforlagsins Bjarts var sagt frá því í gær að hinn nýverð- launaði rithöfundur, Jón Kalman Stefánsson, væri nú á leið til Þýska- lands í upplestarferð. Segja Bjarts- menn að salan í bókum Jóns á hinu þýska málsvæði sé orðin svo góð að útgáfufyrirtæki hans „þyki ástæða til að láta flugvélar fljúga með hann yfir hafið svo aðdáendur hans geti hlýtt á hann lesa og komist í þægilega ná- lægð við skáldið". í Þýskalandi hafa komið út bæk- urnar: Skurðir í riginingu, Sumarið á bak við brekkuna, Birtan á íjöllun- um og Snarkið í stjörnunum, en af þeirri síðastnefndu seldust meira en tíu þúsund eintök á síðustu mánuð- um. Ýmislegt um risafumr og tím- ann er væntanleg síðar á árinu og verðlaunabókin Sumarljós og svo kemur nóttin birtist Þjóðverjum á næsta ári. „í þetta skiptið er ferðinni fyrst heitið til Leipzig, þar sem Reklam, forlag Jóns, hefur höfuðstöðvar. Þar verður lesið áf miklum móð. Næst er það Berlín og svo liggur restin af Þýskalandi fyrir fótum Jóns. Auk þessa hafa svissneskir menningar- forkólfar boðið Jóni að koma síðar á árinu til að árita bækur og lesa upp,“ er ennfremur sagt á Bjartsvefnum. Því má bæta við að Jón Kalman gaf eitt sinn út ljóðabækur undir nafninu Jón Stefánsson, en það var áður en hann tók sér hið óvenjulega eftimafn, sem menningarsíðan hef- ur áreiðanlegar heimildir fyrir að beygist eins og Kjartan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.