Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 1 I. MARS 2006
Fréttír DV
DÓMSTÓLL
götunnar
Er ásættanlegt
að þingmenn
séu á launum í
einkaferðum?
„Nei, mér finnst að
þeir eigi að leggja út
fyrir slnu sjálfir."
Röskva Vigfúsdóttir
nemi.
„Ekki við hæfi að þeir
geri það.Þóverður
það að liggja skýrt
fyrir aö menn séu I
einkaferð
Hrafn Hjartar náms
maður.
„Þeir eiga rétt á að fá
sína orlofsgreiðslu
eins og aðrir. Annars
eigaþeirekkiaðfá
neittmeira."
Jakob Traustason
röltari.
„Nei, þeir eiga að
borga sitt sjálfir aö
minu mati."
Hrafnhildur Þórólfs-
dóttir söngnemi.
„Mérfinnstþaðekki
við hæfi.Ég er sjálf
rikisstarfsmaður og
borga sjálffyrir min
fri."
Helga Þ. Stephensen
ieikkona.
„Útaf fyrir sig erþað
ekki ásættanlegt.
Annars er þetta
ákveðin þróun sem ég
sé I samfélaginu I
dag. Menn sem eru
meira að segja I
einkageiranum eru farnir að stunda þetta."
Kristinn Zófaníasson múrari.
„Þeoriskt finnst mér
það óásættanlegt.
Það sama á að eiga
við um alla."
Pjetur Maack
kennari.
„Nei.mérfinnstþað
einfaldlega óásætt-
anlegt."
Ingibjörg Garðars-
dóttir viðskipta-
fræðingur.
„Nei.finnstþaðekki
ásættanlegt. Allir eiga
að hafa sömu kjör."
Guðmundur Tómas-
son sölumaður.
„Þeir eiga að fá eitthvað fri, eins og allir aðrir.
Almenningur fær sitt helgarfri. Við getum
ekki búist við því að þingmennirnir okkar séu
I vinnunni alla tíma
sólarhringsins.
Þannig að þetta er
ekki bara klippt og
skorið, þetta er á gráu
svæði."
Helga Braga Jóns-
dóttir leikkona.
Fréttir DV af boðsferð fjögurra þingmanna til Taívan hafa greinilega komið við kaun-
in á mörgum á Alþingi. Ekki hvað síst Sólveigu Pétursdóttur, forseta þingsins, sem
séð hefur ástæðu til að setja sérstaklega ofaní við Össur Skarphéðinsson fyrir að hafa
vakið athygli á þessum boðsferðum. Og margir þingmenn eru fúlir út í Össur.
Taugatitringur á þingi
vegna Taívanferða
Arnbjörg Sveins-
dóttir Lofar forseta
Taivan að koma á und-
irnefnd um málefni
landsins á Alþingi.
N ÝTT-N ÝTT-N ÝTT
Hárspangir frá kr. 290
Síðar hálsfestar frá kr.990
Síðir bolir kr. 1990
Nýja vorlínan frá Pilgrim
komin l\lý breiö belti
og margt fleira
SKARTHUSIÐ
LdUgavegí 12, *>. ‘562 2466
Einhver taugatitringur er nú á Alþingi vegna frétta DV af boðs-
ferð fjögurra þingmanna til Taívan. Hefur þetta bitnað hvað
harðast á össurri Skarphéðinssyni sem segir á blogg-síðu sinni
að ýmsir þingmenn séu fúlir út í sig. Og Sólveig Pétursdóttir,
forseti þingsins, hefur séð ástæðu til að setja sérstaklega ofaní
össur fyrir að hafa vakið athygli á þessum boðsferðum.
Málið, eins og það snýr að DV, er
sáraeinfalt, þótt allir þingflokks-
formennirnir hafi reynt að grugga
vatnið með sameiginlegri fréttatil-
kynningu í fyrradag. Vissulega var
það blogg frá össurri sem vakti fyrst
athygli blaðsins, fjórir þingmenn í
boðsferð tii Taívan á miðju þingi án
þess að ferð þessi væri á neinn hátt á
vegum Aiþingis heldur hrein og klár
einkaferð. í framhaldinu athugaði
DV hvernig viðkomandi þingmenn
höfðu skráð sig í fjarvistarskrá
Alþingis og kom þá í ljós að tveir
þeirra voru skráðir með leyfi sem
þýðir að þeir séu utanlands og tveir
þeirra höfðu aðeins skráð sig fjarver-
andi sem þýðir að þeir hafl þess
vegna getað verið á skrifstofu sinni í
næsta hiísi.
Á launum
Það stendur skýrt í lögum um
þingfararkaup að ef þingmenn fara
erlendis í meira en flmm þingdaga
skuli þeir skrá sig með leyfi og kalla
inn varamann sinn á þing. Vara-
maður sitji minnst tvær vikur og er
viðkomandi þingmaður launalaus á
meðan. Við að vera aðeins skráður
fjarverandi heldur viðkomandi
þingmaður fullum launum. Þau Ásta
R. Jóhannesdóttir og Bjarni Bene-
diktsson skráðu sig fjarverandi. DV
greindi svo einfaldlega frá þeirri
staðreynd að þau tvö væru í boðs-
ferð erlendis á fullum launum. Til
samanburðar má geta þess að þeir
flórir þingmenn sem fóru í sams-
konar boðsferð til Taívan á síðasta
ári skráðu sig allir með leyfi. Ásta R.
hefur að vísu sagt að einhver mis-
skilningur hafi verið með skráningu
hennar í fjarvistarskrá þingsins. DV
hefur ekki náð tali af skrifstofustjóra
Alþingis til að fá upplýsingar um
þennan misskilning
Alltaf á launum?
í fyrrgreindi tilkynningu frá þing-
flokksformönnunum segir m.a.:
„Fjarvistarskráning hefur ekki áhrif
á launagreiðslur til þingmanna."
Samkvæmt því virðist það vera
skilningur þessara formanna að
þingmenn geti valsað hingað og
þangað um heiminn í einkaferðum
á meðan á þinginu stendur án þess
að það hafi áhrif á launagreiðslur
þeirra frá Alþingi. í fyrrgreindu
bloggi össurrar segir að DV hafi
greinilega verið að rangar upplýs-
ingar í höndunum þegar blaðið
skrifaði Taívanfréttirnar. Sökum
þessara orða skal tekið fram að upp-
lýsingar DV voru beint úr fjarvistar-
skrá Alþingis sem er öllum opin á
heimasíðu þingsins.
Á ábyrgð forseta
„Það er auðvitað aðeins á ábyrgð
forseta þingsins ef blaðamenn fá vit-
lausar upplýsingar um fjarveru
þingmanna, og þær reglur sem um
þær gilda,“ segir össur í bloggi sínu í
gær. „Blaðamenn DV voru greini-
lega með rangar upplýsingar í hönd-
um þegar þeir skrifitðu Taívanfrétt-
irnar, sem kipptu taugakerfi bæði
forsetans og ýmissa annarra í þing-
húsinu úr venjulegum takti. Því
miður má álykta af því máli að
forseti þingsins hafi álíka stjórn á
upplýsingagjöf þingsins til íjölmiðla
og á þingmönnunum sjálfum."
Þingmannasamband
Það sem gæti orðið mun alvar-
legra mál við þessa Taívan ferð er að
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, tjáði Chen
Shui-bian, forseta
Taívan, að hún /
ætlaði að beita j -
sér fyrir stoftiun
sérstakrar undir-
nefndar á Al-
þingi um mál-
efni Taívan. Þetta
mun Kína, eitt
stærsta efna-
hagsveldi heims-
ins í dag, að öll-
um líkindum
taka óstinnt upp.
Raunar gerir Óss-
ur þetta atriði
umtalsefni í
bloggi sínu og segir: „Halda menn
að ríkisstjórnin á Taívan sé einhver
fyrirmyndarríkisstjórn varðandi
mannréttindi og lýðræði? Svo las ég
frétt um að nú ætíaði Sjálfstæðis-
flokkurinn, undir forystu þing-
flokksformannsins, að setja á stofn
sérstakt þingmannasamband til
stuðnings Taívan. Það hlýtur að vera
gert með samþykki forsetans. Varla
getur þingflokksformaður Sjálfstæð-
isflokksins efnt til útíátasamra nýrra
þingmannasamtaka nema með
samþykki hennar - svo fremi það sé
einhver stjórn á þinginu?"
Sólveig segi skoðun sína
Og Össur spyr réttilega hvort ekki
sé þá kominn tími til að forseti
þingsins útskýri skoðun sína á
Taívanreisunum fyrir fjölmiðlum
fyrst hún hefur áhuga á því „... að
koma viðhorfum sínum um málið á
framfæri við einstaka þingmenn
eins og ég hef orðið áþreifanlega var
við?“
Sólveig Pétursdóttir þarf að sjálf-
sögðu að svara því hvort Alþingi ætli
að blanda sér í mjög
viðkæma milliríkja-
deilu milli Kína og
Taívan alveg að
ástæðulausu.
Og þó. Taív-
an er búið
að bjóða 17
þingmönn-
um héðan í
rausnarlegar
boðsferðir á
síðustu fjór-
um árum. Og
eins og máltækið
segir: „Æ sér gjöf
til gjalda."
fri@dv.is
Sólveig Pétursdóttir
Hefurskammað Össur
Skarphéðinsson fyrir að
vekja athygli á Taivan-
ferðum.