Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Page 35
Menning DV
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 35
skýiastiganum sínum
hann átti hara eitt. Það var bæði
mamma hans ogpabbi. “
Saknaði einhver hans, var ekki
einhver sem grét?
„Jú, vinir hans söknuðu hans.
Besti vinur hans grét mest, ég man
ekki hvað hann heitir. En einn
heitir Andrés."
Steig upp til himna í skýja-
stiganum sínum
Svo þegarhann vardáinn, hvað
þá?
„Hann var lifandi og steig upp
til himinsins."
Oghvað þýðir það?
„Þá var þetta bara búið."
En afhverju höldum við upp á
páskana?
Þórdís svarar fyrst: „Því þá steig
Jesús upp til himna í skýjastigan-
um sínum," og Jóhann útskýrir
hvemig skýjastiginn lítur út:
„Hann er ekki harður, heldur
mjúkur."
„Svo borðum við páskaegg
auðvitað á páskunum," bæta þau
við.
Afhverju eru borðuð páskaegg
á páskunum. Hver haldið þið að
hafi byrjað með þau?
„Kannski hafa hermennimir
fundið upp á þessu - eða lygarinn.
Kannski hefur hann búið til páska-
egg til að fá peninga til að kaupa
sér eitthvað. Kannski hefur hann
viljað vera rlkur."
Þegar talið berst að peningum
iæðir Þórdís þvf að að á mörgum
stöðum séu baukar sem maður
getur sett peninga í:
„Þá getur maður gefið peninga
til fátækra barna. Pabbi minn er
þar núna, Jói pabbi, ég á sko tvo
pabba," segir hún stolt. „Jói pabbi
er núna hjá fátæku börnunum.
Hann tók með sér nesti til að gefa
þeim."
Allir föstudagar jafn langir
Talið þið einhvern tíma við
Guð og Jesúm?
Já, það segjast þau flest gera,
nema Jóhann sem segist alltaf vera
svo þreyttur: „Ég get bara ekki tal-
að við hann, ég er svo þreyttur á
kvöldin."
Dagur segist ekki geta sagt mér
bænina sína, en hann segi alltaf
„Vor Guð."
„Ég tala oft við Jesúm, alltaf
þegar ég fer að sofa segir mamma
mín bænir með mér," segir Há-
kon.“Ég kann ekld ennþá neina
bæn sjálfur."
Þórdís biður um orðið: „Ég segi
alltaf á kvöldin: „Leiddu mína litlu
hendi, Ijúfi Jesús þér ég sendi. Bæn
frá mínu hjarta, sjáðu. Ljúfi Jesú að
mér gáðu. Amen." Ég enda allar
bænirnar mínar á amen," bætir
hún við.
En passa Guð og Jesús okkur á
jörðinni?
„Já, þeir em að passa allt fólkið
á jörðinni. Jesús sendir okkur rign-
ingu - eða kannski er það Guð."
En afhverju haldið þið að dag-
urinn sem Jesús var krossfestur
heiti föstudagurinn langi?
„Það veit ég ekki. Það em allir
föstudagar jafn langir."
En hvað gerðist á páskadaginn?
„Þá reisti Guð Jesúm upp frá
dauðum," segir Hákon Elliði. „Það
var gott fyrir okkur að hann skyldi
deyja og rísa upp."
annakristine@dv.is
Dagur Ari Kristjánsson I
„tg veit ekki afhverju Jesús HP
var krossfestur. Ég var ekki W,
tilígamladaga.“ fy'
Johann Axelsson
„Þeirnegldu nagla ó
fæturna og hendurnar
og alls staðar...“
l